„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Úr heimi tölvuleikja

Und­an­farin ár hefur kvik­mynda­verum tek­ist að fá öfl­uga leik­ara til að fara með aðal­hlut­verkið í tölvu­leikja­myndum og þannig aukið aðsókn á þær. Hér eru nokkrar af þeim þekkt­ustu.

Úr heimi tölvuleikja

Faldir fjár­sjóðir
Tölvu­leik­irnir um Löru Croft nutu gríð­ar­legra vin­sælda á síð­asta ára­tug og gerðar voru tvær kvik­myndir með Angelinu Jolie í aðal­hlut­verki. Lara Croft kemur úr breskri aðals­fjöl­skyldu, en stundar það að fara á sögu­lega staði og safna forn­munum, úr must­erum, gömlum borgum, og fleiri slíkum stöðum, víða um heim­inn, og hún lætur ekk­ert stöðva sig, ekki einu sinni lífs­hættu­legar aðstæður. Í fyrri mynd­inni, Lara Croft: Tomb Raider, sem kom út árið 2001 berst Lara við leyni­fé­lag sem kall­ast Illu­minati í leit að fornum vernd­ar­grip sem gefur þeim sem hefur hann undir höndum mögu­leika á því að stjórna tím­anum. Í mynd númer tvö, Lara Croft Tomb Raider: The Cradle of Life, leitar hún að öskju Pandóru í keppni við kín­versk glæpa­sam­tök. Nú er von að nýrri mynd með Aliciu Vikander í hlut­verki Löru Croft.

Aftur í tíma
Assassin’s Creed-tölvu­leik­irnir eru níu tals­ins og ger­ast allir á tímum sögu­legra átaka. Aðal­sögu­hetjan Desmond Miles getur ferð­ast aftur í tíma í gegnum minn­ingar for­feðra sinna og getur þannig haft áhrif á fram­gang sög­unnar. Skömmu fyrir ára­mót kom út kvik­mynd sem er sjálf­stæð ein­ing innan þessa heims og kynnt er til sög­unnar ný hetja. Callums Lynch er afkom­andi hins víg­fima Aguilar sem ásamt félögum sínum barð­ist á móti órétt­læti á tímum spænska rann­sókn­ar­rétt­ar­ins. Með sér­stakri tækni getur Callum ferð­ast aftur í tím­ann, tekið sér ból­festu í lík­ama Aguilar og haldið verkum hans áfram. Það er eng­inn annar en Michael Fass­bender sem fer með hlut­verk Lynch og Aguilar í kvik­mynd­inni (sjá aðal­mynd).

Ógn upp­vakn­inga
Resident Evil er lík­lega stærsta kvik­mynda­sería sem byggð er á tölvu­leik. Þrátt fyrir slæma dóma njóta kvik­mynd­irnar mik­illa vin­sælda og nú er von á sjöttu og síð­ustu mynd­inni. Mynd­irnar segja frá fyr­ir­tæk­inu Umbrella sem er eitt valda­mesta fyr­ir­tæki heims en það á vel­gengni sína að þakka rann­sókn­ar­stöð neð­an­jarðar þar sem nýstár­leg vopn eru prófuð og fram­leidd. Í fyrstu mynd­inni er sagt frá því þegar veira sem fyr­ir­tækið býr til, sleppur út og breytir hund­ruðum vís­inda­manna í hungr­aða upp­vakn­inga. Tölvu­kerfið lokar stöð­inni vegna sýk­ing­ar­hættu og Alice ásamt neyð­ar­sveit er send til að slökkva á tölv­unni og koma höndum yfir veiruna. Það gengur ekki alveg eftir og veiran sleppur út og verður að far­aldri. Í næstu fimm myndum reyna Alice og föru­neyti hennar að ráða nið­ur­lögum Umbrella og bjarga mann­kyn­inu frá upp­vakn­ingum.

Prinsinn til bjargar
Í Prince of Persia-leikj­unum er fylgst með prins einum í Persíu á mið­öldum sem lendir í ýmsum ævin­týrum og hremm­ingum. Leik­ur­inn kom fyrst út árið 1989 og var end­ur­vak­inn árið 2003. Kvik­myndin Prince of Persia: The Sands of Time sem er byggð á leiknum kom út árið 2010 og segir í raun bak­grunns­sögu prins­ins, en hann er í raun ekki raun­veru­legur prins heldur fátækur mun­að­ar­leys­ingi sem kon­ung­ur­inn tók í fóstur. Á full­orð­ins­árum fær hann tæki­færi til að end­ur­gjalda greið­ann og bjarga kon­ung­inum. Hann þarf að stöðva fyr­ir­ætl­anir bróður kon­ungs­ins sem ætlar að breyta tíma­lín­unni með hjálp Tímarýt­ings­ins þannig að kon­ung­ur­inn deyr sem barn og bróð­ir­inn verði kon­ungur. Myndin skartar ein­vala liði leik­ara, svo sem Jake Gyl­len­hal og Ben Kingsley, en hún fékk engu að síður fremur lélega dóma gagn­rýnenda.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu