„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Praktísk og jarðtengd

Þórunn María leik­mynda- og bún­inga­höf­undur lærði í Frakk­landi og Belgíu á síð­ustu öld og hefur því starfað við iðn sína um langa hríð. Hún seg­ist ekki tengj­ast fötum til­finn­inga­legum böndum en sterkar og sjálf­stæðar konur veiti sér inn­blástur á hverjum degi.

Praktísk og jarðtengd
„Þessi kjóll frá Magneu er það nýjasta í fata­skápnum. Ótrúlega fínn, þægi­legur og bæði hægt að dressa upp og niður. Háls­festin, gerð úr reka­við, er eftir Helgu Mogensen.“

Fyrr í sumar starf­aði Þórunn María við List­há­tíð­ar­verk­efnið R1918. Áður vann hún leik­mynd og bún­inga fyrir sviðs­verkið Ahhh … sem leik­hóp­ur­inn RaTaTam sýndi í Tjarn­ar­bíói ásamt bún­inga­hönnun fyrir sýn­ing­arnar Hafið og Föðurinn sem báðar voru settar upp í Þjóð­leik­hús­inu.

„Skórnir minna mig á helg­ar­ferð til Lissabon sem ég fór fyrir nokkrum árum en þar keypti ég skóna í lít­illi hönn­un­ar­búð. Ég fer alltaf hálf­vegis til Lissabon þegar ég fer í þessa skó.“

Þrátt fyrir að sinna ýmsum verk­efnum og fá fjöl­breytta útrás fyrir sköp­un­ar­gáf­una lýsir Þórunn María sínum per­sónu­lega stíl sem ein­földum en þó með örlitlu tvisti. „Ég er frekar praktísk og jarð­tengd. Ég er ekki mikið fyrir mikla neyslu á textíl­vörum en ég hugs­aði samt um dag­inn að nú þyrfti ég að fara að prjóna mér stóra og kósí ull­ar­peysu til að vefja mig inn í á íslenskum sum­ar­kvöldum. Að mínu mati þurfa allar konur að eiga færri en vand­aðri flíkur í fata­skápnum sínum og vera óhræddar við að klæð­ast sömu flík­inni oftar en einu sinni. Sjálf teng­ist ég fötum ekki til­finn­inga­legum böndum og kaupi mest á nytja­mörk­uðum. Búðin í hverf­inu mínu er Hertex sem dæmi. Búðin þar við hlið­ina er Space Concept, verslun Anitu Hirlekar og Magneu sem eru tveir íslenskir, frá­bærir fata­hönn­uðir. Nytja­mark­aðir og hönnun finnst mér fín blanda.“

„Mér þykir vænt um þennan sam­fest­ing sem ég bjó til úr jakka­fötum sem ég saum­aði á náms­árum mínum í París. Þannig gaf ég fötum sem ég saum­aði fyrir 25 árum síðan nýtt líf.“

Aðspurð hvaða konur veiti sér inn­blástur svarar Þórunn María að þær séu þrjár. „Tilda Swinton, Rei Kawakubo og Björk en allt eru þetta sterkar og sjálf­stæðar konur sem stefna ákveðið í sinni sköpun, hver á sínu sviði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu