„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Heilsa er ekki megrunarkúr“

Telma Matth­í­as­dóttir er 42 ára móðir, unnusta, þjálf­ari, íþrótta­kona og eig­andi vef­síð­unnar fitu­brennsla.is. Hún rekur sinn eigin heilsu­rekstur í HRESS HRESS í Hafn­ar­firði og hefur gert síð­ast­liðin 20 ár. Í 40.tbl Vikunnar fengum við Telmu til að gefa okkur nokkrar upp­skriftir að holl­ari útgáfu af til­völdum réttum í sauma­klúbb­inn – nú, eða við hvaða til­efni sem er.

„Heilsa er ekki megrunarkúr“

Telmu líður að eigin sögn alltaf best úti í nátt­úr­unni að hjóla, hlaupa eða ganga á fjöll. Hún segir áhuga­málin sín að mörgu leyti snú­ast um vinn­una mína, fjöl­skyld­una og heils­una. „Ef ég er ekki að vinna þá er ég að æfa eða ferð­ast.  Það er nefni­lega svo merki­legt við það að við stjórnum okkar lífi alveg sjálf og ég kaus að láta mitt líf snú­ast um mín áhuga­mál, alltaf gaman, lifa, leika og njóta!“

Tuttugu ár eru liðin frá því að Telma missti heils­una og tók líf sitt í gegn. „Enn þann dag í dag er ég að vinna í minni eigin heilsu ásamt því að hjálpa öðrum. Ég elska mat og hef alltaf gert og hef aldrei verið þekkt fyrir það að vera róleg. Í dag kýs ég að lifa líf­inu í heil­brigðum lík­ama, full af orku og í and­legu jafn­vægi og til þess að það tak­ist þarf nær­ing og hvíld að vera góð. Auðvitað þarf þetta að vera skemmti­leg vinna alla daga,“ segir hún.

Ég elska mat og hef alltaf gert og hef aldrei verið þekkt fyrir það að vera róleg. Í dag kýs ég að lifa líf­inu í heil­brigðum lík­ama, full af orku og í and­legu jafn­vægi og til þess að það tak­ist þarf nær­ing og hvíld að vera góð

Einfalt virkar alltaf best

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Þegar Telma er spurð um helstu ráð til þeirra sem vilja skipta yfir í holl­ari venjur segir hún matar­æðið síður en svo þurfa að vera flókið. „Eldum mat sem okkur finnst góður. Einfalt virkar alltaf best,“ segir hún og heldur áfram. „Við þurfum öll að hlusta á okkar eigin þarfir, ekki apa upp eftir öðrum. Öll erum við ólík og með mis­mun­andi mat­ar­smekk. Aðal­málið er að borða nær­ing­ar­ríkan mat, hafa hann lit­ríkan og ekki borða of mikið í einu, mest úr jurta­rík­inu, græn­meti, hnetur og fræ, ávexti og hreinan prótín­gjafa eins og baunir, egg, fisk, kjúkling og hreint kjöt. Það er alltaf hægt að teygja sig í epli eða egg þegar hungur sækir að. Grund­vall­ar­at­riðið er að þekkja orku­efnin, nær­ing­una, vítamínin og stein­efnin sem lík­am­inn þarf til að starfa eðli­lega. Soðinn fiskur, kart­öflur og smjör með græn­meti á brún­inni er góð og ein­föld mál­tíð. Öll vitum við að sykur er eitur.“

Að sleppa takinu er besta ráðið

Telma veit að eigin reynslu hversu dýr­mætt það er að hafa góða heilsu og lík­ama sem manni líður vel með. Hún leggur áherslu á góðan stuðn­ing í þjálfun sinni og gengur út frá því að heilsa sé ekki megr­un­ar­kúr. „Að sleppa tak­inu er mitt besta ráð. Heilsa snýst ekki um holda­far, 90% af þeim sem leita til mín eru með það mark­mið að létt­ast, líta betur út og fá meiri orku sem er alveg eðli­legt og heil­brigt líka. En það á allt að ger­ast á fjórum vikum og það er óheil­brigt. Ég kenni fólki að fara heilsu­sam­legar leiðir, hjálpa þeim að hlakka til að takast á við næsta dag, finna hreyf­ingu sem er skemmti­leg, borða mat sem er góður og spenn­andi og í kaupæti þá breyt­ist lík­am­inn og líðan. Heil­brigður lífs­stíll á nefni­lega að veita þér vellíðan og gefa þér orku til að takast á við hvaða verk­efni sem er út ævina en ekki draga úr þér alla orku og drepa niður sjálfs­á­litið. Stærsta breyt­ingin á sér stað í koll­inum á okkur, læra að elska sjálfan sig, fara vel með það ein­tak sem við eigum og vera sinn eigin keppi­nautur.“

„Heilsa snýst ekki um holda­far, 90% af þeim sem leita til mín eru með það mark­mið að létt­ast, líta betur út og fá meiri orku sem er alveg eðli­legt og heil­brigt líka.“

Lestu við­talið í heild sinni í 40.tbl Vikunnar. Þar má einnig finna nokkrar góm­sætar upp­skriftir frá Telmu.
Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu