„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ef þú ert manneskja sem hefur áhuga á því að vaxa og líða betur, ert þú markhópurinn okkar“

Vin­kon­urnar Eva María Matta­dóttir og Sylvía Briem Frið­jóns­dóttir stofn­uðu hljóð­varpið Normið þar sem þær leit­ast við að svara spurn­ingum eins og af hverju mann­fólkið er eins og það er. Hvers vegna hegðum við okkur á ákveð­inn máta og hvernig getum við öll rifið okkur upp á hærra plan?

„Ef þú ert manneskja sem hefur áhuga á því að vaxa og líða betur, ert þú markhópurinn okkar“

Stöll­urnar kynnt­ust fyrst árið 2014 þegar Eva hóf þjálf­ara­nám hjá Dale Carnegie, þar sem Sylvía var þjálf­ari. Þær segja að um leið og þær hitt­ust fyrst hafi þær fundið hversu óhugn­an­lega líkar þær væru á marga vegu, en það var ekki fyrr en sam­eig­in­leg vin­kona þeirra gekk í gegnum erf­iða tíma að þær fóru að kynn­ast betur. „Við hjálp­uðum henni báðar og hvöttum áfram, þó hvor í sínu horn­inu,“ rifjar Eva upp. „Við sáum frá­bæra breyt­ingu á henni og fundum að vinnan okkar bar árangur. Þá ákvað ég að senda Sylvíu skila­boð sem voru orð­rétt: „Hei, ættum við ekki að fara að hitt­ast og kynn­ast betur?“ Eftir það byrj­aði bolt­inn að rúlla og við fórum að hitt­ast oftar og oftar. Upp­á­halds­stað­ur­inn okkar varð Te & kaffi í Kringl­unni og þar höfum við varið ófáum klukku­tímum í spjall um til­ver­una. Það er ómet­an­legt að eiga vin­konu­sam­band þar sem ein­lægni, plebba­húmor og skiln­ingur er í fyr­ir­rúmi. Og auð­vitað hlát­ur­sköst á fimm mín­útna fresti!“

Mynd / Unnur Magna

Stöðugt að leita leiða til að efla sjálfa sig

Eva og Sylvía eiga það sam­eig­in­legt að hafa brenn­andi áhuga á mann­legri hegðun og sjálfs­vinnu. Sylvía hefur, að eigin sögn, allt frá barn­æsku pælt mikið í fólki og því hvernig hægt sé að verða besta útgáfan af sjálfri sér. „Í því felst stöðug vinna í að leita leiða til að efla sjálfa mig og taka topp­stykkið í hærri hæðir. Það mætti segja að ég sé með þrá­hyggju fyrir mann­legri hegðun og fólki,“ segir hún, og Eva tekur undir. „Áhugi minn liggur helst í því að efla mig. Í sann­leika sagt held ég að sá áhugi hafi bjargað lífi mínu oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Ég hef farið í gegnum alls konar hóla og hæðir eins og allir aðrir og lært mest af stærstu mis­tök­unum.“

Ég reyni að hugsa með hjart­anu, því heil­inn í mér er stundum eins og þeyti­vinda þegar ég leyfi honum að ráða ferð­inni.“

Vin­kon­urnar hafa fjöl­breyttar fer­il­skrár að baki og er margt til lista lagt. Eva segir börnin sín tvö og fimm ára edrú­mennsku vera á toppnum yfir sín helstu afrek. „Ég er óvirkur alkó­hólisti og það er eitt­hvað sem ég er virki­lega stolt af. Tónlist er líka stór partur af mér og ég get alveg gleymt mér í texta­gerð og meló­díum. Svalasta áhuga­málið mitt er samt snjó­bretti. Mér finnst ég mjög svöl að kunna á snjó­bretti og elska að renna mér með góða tóna í eyr­unum, það er fyr­ir­taks hug­leiðsla. Þegar ég var 19 ára flutti ég til Kali­forníu þar sem ég er fædd og lagði stund á leik­list, ég gjör­sam­lega elska að lifa mig inn í hlut­ina og fékk aldeilis útrás í því námi. Ég starfa núna sem Dale Carnegie-þjálf­ari og þjálfa þar ungt fólk í átt að betra sjálfs­trausti, svo tek ég sál­fræði­nám jafnt og þétt með. Ég var reyndar að klára fæð­ing­ar­or­lof í sumar en ég átti strák­inn minn í jan­úar. Nú tekur Normið við og önnur spenn­andi ævin­týri,“ segir hún.

Þegar Sylvía er beðin um að lýsa sjálfri sér nefnir hún fyrst að hún sé for­fall­inn Beyonce-aðdá­andi, ADHD-mamma, með áráttu fyrir fólki og mann­legri hegðun. „Ég er með þessi týpísku áhuga­mál; það allra fyrsta er að njóta og vera með fjöl­skyld­unni, ferð­ast, elda góðan mat, sjá fólk blómstra í kringum mig og fá að vera partur af því, svo eitt­hvað sé nefnt. Ég starfa sem Dale Carnegie-þjálf­ari og vinn hjá Ölgerð­inni. Ég hef lokið námi í Neuro Linguistic Programm­ing, heilsu­m­ark­þjálfa­námi frá New York og ljós­myndun og er núna í sál­fræði­námi. Svo á ég von á öðrum strák núna í febr­úar þannig að það mætti segja að það sé nóg að gera.“

Þráhyggja fyrir mannlegri hegðun

Fyrir skömmu bár­ust þær fréttir að vin­kon­urnar hygð­ust gefa út hlað­varp, sem fengið hefur nafnið Normið. „Við fundum að þessi sam­töl okkar um lífið, sjálfs­traust, kvíða, sam­skipti og allt þar á milli höfðu mikil áhrif og hjálp­uðu okkur veru­lega. Við lærum margt hvor af annarri því við erum einnig mjög ólíkar á margan hátt. Við átt­uðum okkur á því að þessi sam­töl og fróð­leiksmolar gætu hjálpað öðrum til að líða betur og þannig spratt hug­myndin fram um Normið síð­asta sumar,“ segja þær.

Eins og nafnið gefur til kynna er áherslan lögð á að ræða þetta svo­kall­aða norm. „Hvað er normið? Hvað er sam­fé­lags­lega ásætt­an­legt? Erum við sáttar við það? Hvernig getur okkur liðið betur? Hvernig komumst við á stað­inn sem okkur langar að kom­ast á í líf­inu? Markmið okkar er að koma til skila öllum þeim fróð­leik og „life-hacks“ sem við höfum sankað að okkur í gegnum tíð­ina svo það geti mögu­lega gagn­ast öðrum og lyft fólki upp á hærra plan. Við höfum mikla reynslu af því að vinna með fólki og enda­lausri sjálfs­vinnu. Til dæmis höfum við lært Neuro Linguistic Programm­ing, leik­list, mark­þjálfun og heilsu­m­ark­þjálfun. Við erum báðar í sál­fræði­námi, báðar þjálf­arar hjá Dale Carnegie og með þessa þrá­hyggju fyrir mann­legri hegðun og því hvernig hægt er að finna alvöru­lausnir á vanda­málum og van­líðan. Allt þetta myndar skemmti­lega og kraft­mikla reynslu­súpu sem okkur langar til að aðrir drekki í sig. Við viljum tala um hluti sem eru erf­iðir og finna lausnir en líka slá sumu upp í grín því við mann­fólkið getum verið skemmti­lega dramat­ískt inn á milli, og þar erum við tvær alls ekki und­an­skildar.“

Við höfum mikla reynslu af því að vinna með fólki og enda­lausri sjálfs­vinnu.
Mynd / Unnur Magna

Yfirþyrmandi framboð af snilld í hlaðvarpsheiminum

Fyrsti þátt­ur­inn fór í loftið 8. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og hefur hlotið frá­bærar við­tökur. Að sögn Sylvíu allir ættu að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi. „Við eigum það öll sam­eig­in­legt að vera mann­leg en stundum eigum við það flest til að gleyma því og þrjóskast við að reyna að vera óað­finn­an­leg og full­komin. Normið snýst um hluti eins og að þora að vera við sjálf, hræðslu við að gera mis­tök, sjálfs­traust, kvíða, álit ann­arra og allt þar á milli. Ef þú ert mann­eskja sem hefur áhuga á því að vaxa og líða betur, ert þú mark­hóp­ur­inn okkar.“

Þær munu fá til sín áhuga­verða gesti og hvetja fólk til að hafa sam­band við sig sem langar að láta í sér heyra. „Gest­irnir okkar verða fyrst og fremst fólk sem nær árangri, skarar fram úr og kemst yfir hindr­anir með ein­stöku hug­ar­fari,“ segir Eva. „Til­gang­ur­inn með því að fá gesti er í raun að útvarpa visku fólks svo við getum öll lært af því. Mögulega geta hlust­endur nýtt sér visk­una og yfir­fært á sitt líf. Ástæðan fyrir því að við tvær höfum náð langt hvað sjálfs­traust og hug­ar­far varðar er sú að við fylgj­umst með fólki sem treystir á sjálft sig og er óstöðv­andi. Við til­einkum okkur eig­in­leika þessa fólks og til­einkum okkur það sem virkar. Það er eng­inn að finna upp hjólið hérna, maður þarf bara að finna sér sterkar fyr­ir­myndir.“

Aðspurðar segj­ast þær að vissu leyti halda að hlað­vörp séu að taka við af bókum og lestri. „Okkur finnst hlað­vörp frá­bær við­bót við fróð­leiks­flór­una sem til er, en bækur eru ódauð­legar. En það er heill hell­ingur til af hlað­vörpum! Íslensk og erlend. Það er enda­laust af upp­lýs­ingum til hvort sem þær er að finna í bókum, á Netinu, í hlað­vörpum eða ann­ars staðar  – og það skemmti­lega er að allir geta fundið hvað hentar þeim best. Sjálfar hlustum við mikið á hljóð­vörp, af íslenskum mætti helst nefna Snorra Björns og Þarf alltaf að vera grín? Eva hlustar mikið á the GaryVee Audio Experience og How I Built This with Guy Raz. Svo elskum við báðar Opruh Winfrey og hlustum á SuperSoul Conversations. Það er ótelj­andi margt fólk í heim­inum sem hægt er að læra af og stundum er yfir­þyrm­andi hvað það er mikið fram­boð af snilld í hlað­varps­heim­inum.“

Viðtalið birt­ist fyrst í Vikunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu