„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Engar ómissandi jólahefðir

Bjartur Guð­munds­son leik­ari segir frá jól­unum sínum.

Engar ómissandi jólahefðir

Hvernig verða jólin þín í ár? Þetta árið verða þau haldin heima í Garða­bænum í faðmi kjarna­fjöl­skyld­unnar, kannski bæt­ast ein­hverjar góðar sálir við hóp­inn, sjáum til. Þetta er í fyrsta skiptið sem við höldum jólin hér og ég hlakka mikið til. Við ætlum að hafa kalkún eftir upp­skrift frá ömmu kon­unnar minnar en það er hefð sem er að festa sig í sessi. Sjálfur er ég sífellt að hall­ast meira í átt­ina að græn­met­is­fæði svo ég á eftir að finna eitt­hvert tvist á þetta sem mætir báðum pólum.

Átt þú þér ein­hverjar ómissandi jóla­hefðir? Já, nokkrar hefðir en ekk­ert sem er alveg ómissandi. Þetta helsta er söru­bakstur, laufa­brauð, svo erum við með þann hátt­inn á að hengja litlar gjafir á daga­tal og telja þannig niður dag­ana fram að jólum. Það fá samt ekki allir gjöf alla dag­ana heldur fær bara einn fjöl­skyldu­með­limur gjöf á degi hverjum.

Hvað er efst á óska­list­anum þínum? Ég er svo hepp­inn að eiga eig­in­lega allt sem ég þarf. Ég er líka þannig að ég þarf frekar lítið til að vera ánægður. Það er þó eitt apparat sem mig langar í þessa dag­ana og heitir MUSE. Þetta er tæki sem hjálpar fólki að ná tökum á hug­leiðslu með því að mæla heila­bylgjur og lætur vita þegar maður kemst í öfl­ugt hugar- og til­finn­inga­á­stand. Þannig getur maður áttað sig á hvaða hugs­anir virka best.

Hver er eft­ir­minni­leg­asta jóla­gjöf sem þú hefur fengið? Þær eru margar, en þegar ég var 19 ára sagði ég systur minni að ég sakn­aði þess að fá eitt­hvað sem hefði ekk­ert annað nota­gildi en að leika sér með. Hún brá á það ráð að gefa mér pínu­lít­inn fjar­stýrðan bíl sem ég var him­in­lif­andi yfir. Bíllinn var svo lít­ill að mér datt í hug að nota hann til að hrekkja mömmu og varði megn­inu af aðfanga­dags­kvöldi við að sauma músa­bún­ing sem ég klæddi bíl­inn í.

Eins og góðri hús­móður sæmir þá rauk mamma af stað fussandi og svei­andi til að taka upp ruslið og þá kom músa­bíll­inn æðandi í átt­ina að henni.

Svo plant­aði ég bílamúsinni inn í eld­hús og setti haug af mandar­ínu­berki á gólfið nálægt músinni. Eins og góðri hús­móður sæmir þá rauk mamma af stað fussandi og svei­andi til að taka upp ruslið og þá kom músa­bíll­inn æðandi í átt­ina að henni. Útkoman var eft­ir­minni­legt öskur og elt­inga­leikur sem ætl­aði engan enda að taka. Það var ekki fyrr en hún var orðin stein­hissa á hug­rekki mús­ar­innar að hún tók eftir mér með fjar­stýr­ing­una í hlát­ur­skrampa og átt­aði sig á hvað var í gangi.

Besta jóla­lag allra tíma? Upp­haf­lega útgáfan af We Are the World. Ég fæ alltaf gæsa­húð þegar ég hlusta á það. Boð­skap­ur­inn er fal­legur og stemn­ingin í lag­inu er kraft­mikil.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu