„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hefur tileinkað sér mínimalískan lífsstíl í sjö ár

All­margir hafa eflaust heyrt um mínimal­ískan lífs­stíl, en vita kannski ekki hvar er best að byrja á stórri lífs­stíls­breyt­ingu eins og þess­ari. Við náðum tali af Sig­ur­laugu Elínu Þór­halls­dóttur en fjöl­skylda hennar hefur til­einkað sér lífs­stíl­inn í sjö ár og fengum við að for­vitn­ast örlítið um hvað málið snýst.

Hefur tileinkað sér mínimalískan lífsstíl í sjö ár

Hvað er mínimal­ismi og lítur hann eins út fyrir alla?

„Margir kann­ast við mínimal­isma sem list­stefnu en þá sér fólk fyrir sér fáa, hreina liti, ein­föld geó­metrísk form og notkun lýs­ingar og tómra rýma til áherslu­auka. Mínimal­isma sem lífs­stíl er hins vegar öllu erf­ið­ara að sjá fyrir sér því þar er um að ræða ótal birt­ing­ar­myndir. Í grunn­inn má segja að mínimal­ískur lífs­stíll snú­ist um að losa sig við hvers kyns óþarfa í líf­inu með það að mark­miði að geta ein­beitt sér að því sem raun­veru­lega skiptir máli og veitir ham­ingju.

Þetta getur verið allt frá smá­hlutum í skúffu til sam­skipta við vanda­menn. Þar sem skoð­anir fólks á hvað er óþarfi og hvað skiptir máli eru mis­jafnar, lítur mínimal­ískur lífs­stíll alls ekki eins út fyrir öllum. Það er samt gott að muna að þetta snýst ekki aðeins um að losa sig við drasl heldur að draga úr neyslu með það að mark­miði að geta notið þess betur sem maður á.“

Ég hugsa líka stundum til þess að börnin mín munu þurfa að fara í gegnum alla búslóð­ina þegar ég verð farin af þess­ari plánetu.

Hversu lengi hefur þú til­einkað þér mínimal­isma og hvað varð til þess að þú gerðir það?

Viðtalið við Sig­ur­laugu má lesa í heild sinni í 1. tölu­blaði Húsa og Híbýla sem fer úr sölu eftir viku. Sig­ur­laug gefur les­endum m.a. góð ráð sem koma sér vel fyrir þá sem vilja til­einka sér mínimal­ískan lífs­stíl. Hún segir frá snið­ugum gjöfum sem gætu hentað þeim sem aðhyll­ast mínimal­ískan lífs­stíl og mælir með nokkrum bókum og þáttum um lífs­stíl­inn.

„Það eru um það bil sjö ár síðan ég fór fyrst mark­visst að grisja úr skápum og skúffum og losa mig við hluti sem ég hafði verið að geyma „af því bara“. Það var hins vegar fyrir þremur árum sem ég átt­aði mig á að það væri ekki nóg að losa sig við hluti heldur þyrfti lífs­stíll­inn að breyt­ast svo allt myndi ekki bara fyll­ast aftur. Við fjöl­skyldan höfðum þá flutt úr lít­illi íbúð í tölu­vert stærri og ég átt­aði mig á því mjög fljót­lega að það virð­ist ekki skipta máli hversu mikið skápa­pláss ég hafði, það fyllt­ist alltaf um leið.

Þá sökkti ég mér í allskyns pæl­ingar um hvernig væri best að draga úr neyslu og setja sér ein­hverjar skorður í þessum efnum. Ég hugsa líka stundum til þess að börnin mín munu þurfa að fara í gegnum alla búslóð­ina þegar ég verð farin af þess­ari plánetu. Mér finnst ekki góð til­hugs­unum að skilja þau eftir með marga ára­tugi af óþarfa sem hefur safn­ast upp.“

„Í grunn­inn má segja að mínimal­ískur lífs­stíll snú­ist um að losa sig við hvers kyns óþarfa í líf­inu með það að mark­miði að geta ein­beitt sér að því sem raun­veru­lega skiptir máli og veitir ham­ingju.“
Sig­ur­laug hefur til­einkað sér mínimal­ískan lífs­stíl í sjö ár og vandar valið þegar kemur að því að gefa hlutum pláss á heim­il­inu.

Ljós­myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður