„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Framúrstefnuleg samtímahönnun hjá Matter

Sýn­ing­ar­rýmið og versl­unin Matter í SoHo, New York var stofnað af banda­ríska hönn­uð­inum Jamie Gray árið 2003. Þar má finna viða­mikið úrval af fjöl­breyttri hönn­un­ar­vöru frá þeim fersk­ustu og flott­ustu í brans­anum.

Framúrstefnuleg samtímahönnun hjá Matter

Árið 2008 kynnti Jamie eigin vöru­línu merk­is­ins „Matt­erMade“ til leiks, en hún var unnin í sam­starfi við unga og efni­lega hönn­uði sem og þekkr­ari nöfn innan hönn­un­ar­heims­ins. Ásamt því að vera verslun er Matter einnig gall­erí, sýn­ing­ar­rými, fram­leið­andi og kynn­ing­ar­að­ili á sér­val­inni og fram­úr­stefnu­legri sam­tíma­hönnun, en í gegnum árin hafa verið haldnar yfir 50 sýn­ingar undir for­merkjum þeirra.

Hönn­uð­ur­inn Jamie Gray stofn­aði Matter árið 2013.

Bandarísk samtímahönnun í forgrunni

Matter er þekkt fyrir að vera ávallt með putt­ann á púls­inum og hefur getið sér það orð að vita alltaf hvaða tísku­straumar og stefnur séu í vændum í hönn­un­ar­heim­inum – en bæði inn­an­húss­hönn­uðir og arki­tektar líta til stúd­íós­ins til inn­blást­urs.

Banda­rísk hönnun hefur þró­ast og breyst mikið á síð­ast­liðnum árum og er nú orðin óað­skilj­an­legur hluti af alþjóð­legu hönn­un­ar­sen­unni. Hönnun frá Banda­ríkj­unum hefur oft og tíðum verið svo­lítið sér á báti og ekki í takt við þá strauma og stefnur sem eru ráð­andi ann­ars staðar í heim­inum. Jamie hjá Matter taldi það mik­il­vægt fyrir banda­ríska sam­tíma­hönnun að efna til sam­tals og efla sam­vinnu milli alþjóð­legra og banda­rískra hönn­uða og brúa þannig bilið þar á milli.

Matter er þekkt fyrir að vera ávallt með putt­ann á púls­inum.

MatterMade

Í upp­hafi var Matter stofnað sem stökk­pallur fyrir unga hönn­uði í Brooklyn en stofn­and­anum Jamie Gray þótti vanta vett­vang fyrir hönn­uði til að selja og sýna vörur sínar. Meg­in­á­hersla Matter er að upp­hefja og auka alþjóð­lega vit­und á banda­rískri sam­tíma­hönnun í gegnum vöru­merki þeirra „Matt­erMade“. Mikið er lagt upp úr sam­starfi við nýja og fram­sækna hönn­uði og fram­leið­endur víðs­vegar úr heim­inum undir hatti vöru­merk­is­ins. Einnig skipar stað­bundin fram­leiðsla stóran sess í ferl­inu og eru allar vörur þeirra fram­leiddar í vinnu­stofu Matter í Brooklyn.

„Banda­rísk hönnun hefur þró­ast og breyst mikið á síð­ast­liðnum árum og er nú orðin óað­skilj­an­legur hluti af alþjóð­legu hönn­un­ar­sen­unni.“

Vöru­línan „Matt­erMade“ sam­anstendur af hús­gögnum, ljós­gjöfum og ýmsum skraut­munum fyrir heim­ilið, en á ári hverju bæt­ast nýjar og spenn­andi vörur í safnið. Við hönnun vöru­lín­unnar kom inn­blást­ur­inn aðal­lega frá hefð­bund­inni banda­rískri hönnun og hand­verki, en mikil áhersla er á form­feg­urð og notkun gæða­efna.

Öðruvísi og eft­ir­minni­legt bað­her­bergi!

Vörurnar eru unnar í sam­starfi við þekkta hönn­uði og fram­leið­endur, en sem dæmi má nefna; Faye Toogood, Studio Visi­bility, Philippe Malouin, Ana Kras, Pedro Paulo Venzon, Paul Loebach, Jonathan Nesci og svo lengi mætti telja, en Jamie Gray hannar einnig sjálfur fyrir merkið. Ekki láta þennan gull­mola fram hjá ykkur fara ef þið eigið leið til New York, sjón er sögu rík­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður