„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sjarmerandi sumarhús í Skorradal

Á votum og frísk­andi föstu­dags­morgni lá leið blaða­manns og ljós­mynd­ara í hlý­legt sum­ar­hús í Skorra­dalnum. Hjónin sem við heim­sóttum festu kaup á bústaðnum síðla sum­ars árið 2016 og var hann þá nýsmíð­aður. Hann er rúmir 80 fer­metrar, þriggja svefn­her­bergja og er stað­settur á gró­inni lóð með útsýni yfir Skorra­dals­vatn.

Sjarmerandi sumarhús í Skorradal
||||||||||

Smávægilegar breytingar gerðu gæfumuninn

Það fyrsta sem lagst var í þegar þau fengu sum­ar­húsið afhent var að fjar­lægja vegg sem lok­aði stofu­rým­inu frá svefn­her­bergj­unum og mynd­aði mjóan gang. „Að fjar­lægja þennan vegg gjör­breytti bústaðnum og opn­aði hann gríð­ar­lega mikið.“ Hjónin segja að sá sem byggði húsið hafi verið með ákveðna upp­röðun hús­gagna í huga og fastur á því að horn­sófi skyldi passa upp við vegg­inn. „Fólk virð­ist oft smeykt við að hafa frístand­andi sófa og finnst þeir verða að vera upp við vegg – ég hef séð þetta í mörgum bústöðum, að fólk setji bak sófans upp við glugg­ann og fær þá ekki að njóta útsýn­is­ins en það sem heill­aði okkur við þennan bústað voru einmitt gólf­síðu glugg­a­rnir og útsýnið yfir vatnið.“

Mynd/Unnur Magna

Hlýlegur rustic-stíll

Blaða­maður er for­vit­inn að vita meira um fal­lega lita­tón­inn á veggj­unum. „Við fórum með eina spýtu úr veggnum sem við rifum í bæinn til að gera smá­vegis prufu en okkur lang­aði svo að ná rustic-útliti á við­inn. Þeir hjá Flugger gerðu prufu fyrir okkur sem var hvíttun með gráum tóni en furan á veggj­unum hafði fengið að standa og var orðin örlítið gul sem hleypti ákveðnum hlý­leika í gegn. Við eru rosa­lega ánægð með útkom­una.“

Mynd/Unnur Magna

Aðspurð um hús­gögnin segj­ast þau hafa keypt nán­ast allt í Heimili og hug­myndum sem ljær bústaðnum ákveð­inn heild­ar­brag. „Þetta var mjög hent­ugt, það fór allt saman í einum bíl beint hingað í bústað­inn. Við erum hægt og rólega að skipta út þessu hvíta en þetta er fljótt að vinda upp á sig, við erum búin að mála glugga­karma, spreia ofna og skipta úr raf­magnstenglum og næsta mál á dag­skrá er að skipta hurð­ar­hún­unum út fyrir húna sem eru meira í takt við bústað­inn.“ Hjónin segj­ast hafa fengið góð ráð frá þeim í Heimili og hug­myndum, til dæmis að vera ekki með lok­aða skápa í sum­ar­húsum, heldur frekar að hafa snaga og gler­s­kápa eða opnar hillur í svefn­her­bergj­unum því þá gleymi maður síður hlut­unum. „Eins og sjá má höfum við gleymt páska­eggi,“ segir annar hús­ráð­enda og opnar eina lok­aða skáp­inn í svefn­her­berg­inu. Þau segj­ast einnig vera með tölu­vert af bekkjum en hug­myndin sé sú að auð­velt sé að kippa þeim út á pall þegar veður leyfi.

Mynd/Unnur Magna

„Stíllinn hér er afar ólíkur stílnum heima fyrir og það var sér­stak­lega skemmti­legt að inn­rétta bústað­inn svona á einu bretti eins og við gerðum. Öll hús­gögnin komu í einum sendi­ferða­bíl og á um tveimur tímum var bústað­ur­inn orð­inn eins og hann er núna.“ Undir lok heim­sókn­ar­innar bjóða hjónin upp á dýr­indis kaffi­bolla og gam­al­dags möndluköku, við kveðjum sveit­ina og sjar­mer­andi sum­ar­húsið í Skorra­dal og þökkum fyrir okkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

heimili

Innlit: Stórglæsilegt einbýli í Garðabæ á rúmlega 800 fermetra lóð
Menning

Innlit: Stór­glæsi­legt ein­býli í Garðabæ á rúm­lega 800 fer­metra lóð

Við Garða­flöt 21 stendur ein­býl­is­hús sem nú hefur verið sett á sölu. Flat­irnar eru eitt eft­ir­sóttasta hvefið í Garðabæ enda er það bæði gróið og fjöl­skyldu­vænt. Húsið er skráð 201 fer­meter en lóðin er gríð­ar­lega stór eða 805 fer­metar. Fast­eigna­salan Lind er með eign­ina á skrá hjá sér en húsið er hið glæsi­leg­asta að innan. Líkt og sjá má er...
Gull og marmari – innlit á ótrúlegt heimili Drake
Menning

Gull og marmari – inn­lit á ótrú­legt heim­ili Drake

Heims­frægi rapp­ar­inn Drake á ótrú­legt heim­ili í Toronto en hefur hvert ein­asta smá­at­riði verið vand­lega hugsað og útfært. Á heim­ili rapp­ar­ans má finna körfu­bolta­völl, sund­laug, bíó­sal og marm­ara í miklu magni. Kanadíski arki­tekt­inn og inn­an­hús­hönn­uð­ur­inn, Ferris Rafauli sá um að inn­rétta heim­ili Drake og sá hefur fengið frjálsar hendur eins og sjá má hér að neðan. Borð­stofu­borðið er af stærri...
Ítölsk og rómantísk stemmning í Þingholtsstræti – Sushi innan seilingar
Innlentheimili

Ítölsk og róm­an­tísk stemmn­ing í Þing­holts­stræti – Sushi innan seil­ingar

Sjar­mer­andi er orð sem lýsir íbúð að Þing­holts­stræti 8 sér­stak­lega vel. Íbúðin er stað­sett í hjarta mið­borg­ar­innar með gluggum til þriggja átta og grónum garði til vest­urs. Lind fast­eigna­sala hefur þessa fal­legu eign á skrá. Við­ar­fjal­irnar á gólf­inu og hleðslu­steinn­inn á veggjum skapa róm­an­tíska stemn­ingu og minnir það helst á hlaðin hús í ítölskum stíl. Stof­urnar eru tvær, sam­liggj­andi með...
Jólin eru í hátíðarblaði Húsa og híbýla – Glys og glamúr um hátíðarnar
Mannlífið

Jólin eru í hátíð­ar­blaði Húsa og híbýla – Glys og glamúr um hátíð­arnar

Hátíð­ar­blað Húsa og híbýla er komið út. Blaðið er stút­fullt af fal­legum inn­litum, hug­myndum, inn­blæstri og við­tölum við fag­ur­kera. Þetta er blaðið sem kemur ykkur í hátíð­ar­skap. Við förum víða í nýja blað­inu, til dæmis heim­sækjum við hlý­legt og smart heim­ili á Dalvík og skoðum töff nýbygg­ingu í Reykja­nesbæ þar sem hver hlutur hefur verið val­inn af kost­gæfni. Við hittum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður