„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Veik fyrir gömlum bárujárnshúsum

Veik fyrir gömlum bárujárnshúsum
|Illugi Jök­uls­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Fasteignasali vikunnar

Vera Sigurðardóttir, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Domusnova, er hrifin af hráu umhverfi, náttúrulegum litum og einfaldleikanum. Við fengum hana í stutt spjall og spurðum fyrst hvað heillaði hana mest við starfið.

„Ég hef mik­inn áhuga á inn­an­húss­hönnun og fal­legum heim­ilum og á auð­velt með að sjá ef hægt er að breyta skipu­lagi, og aðstoða fólk við að sjá mögu­leik­ana. Það er líka dásam­legt þegar vel tekst til að sjá ham­ingj­una hjá fólki með nýja heim­ilið. Það sem gerir hús að heim­ili, fyrir utan fólkið, eru nota­leg­heit og feg­urð þar sem manni líður vel að koma heim og kveikja á kerti eftir langan vinnu­dag,“ segir Vera.

Hún er mikið fyrir opin rými, fáa milli­veggi, mikla loft­hæð og stóra glugga. „Hrátt umhverfi, nátt­úru­legir litir og ein­fald­leiki heillar mig. Ég er ekki til í að eyða of miklum pen­ingum í dauða hluti inn­an­húss svo ég finn yfir­leitt það sem mig langar í eða svipað, fyrir lít­inn pen­ing og breyti þegar ég vil. Ég raða saman gömlu og nýju, minn stíll er svo­lítið grófur og helst stærri hlutir í bland við ein­falda stíl­hreina hluti, svo blundar í mér örlít­ill hippi. Þegar kemur að bygg­ing­ar­stíl er ég dálítið hrifin af funkíarki­tektúr, stórum gluggum og stíl­hreinum stíl en svo er ég mjög veik fyrir gömlum báru­járns­húsum.“

Vera í hnot­skurn:

Fjöl­skylda? „Ég er í sam­búð með Árna Róbert Sigurðar, á tvær upp­komnar dætur og einn son. Ég nýorðin amma og á von á öðru barna­barni í sumar.“

Upp­á­hald­sinn­an­húss­arki­tekt? „Þeir eru líka margir og einn stíll hentar mér ekki en ef ég nefni einn íslenskan þá er það Rut Kára­dóttir.“

Hvað hefur þig lengi dreymt um að eign­ast? „Full­bú­inn pall með öllu til­heyr­andi, að hluta yfir­byggðan þar sem við búum á Íslandi. Með hitara sófa­setti, heitum potti, hengi­rúmi og fleira skemmti­legu. Hver veit nema þetta ræt­ist í sumar, alla­vega að hluta til.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Svartur verður alltaf í upp­á­haldi en í dag er ég veik fyrir steypu­grá­grænum lit sem ég veit ekki hvað heitir en við mál­uðum alla veggi hjá okkur með honum þegar við fluttum í nýju íbúð­ina okkar í sept­em­ber.“

Hvar líður þér best? „Heima við kerta­ljós og með góðan mat.“

Hvaða árs­tíð heillar þig mest? „Get ekki gert upp á milli en sum­arið er tím­inn og haustin eru kósí.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Ég fer ekki oft og er þá dálítið íhalds­söm, ég fíla steik svo ég ætla að velja veit­inga­stað­inn Reykja­vík Meat.“

„Að lifa líf­inu lif­andi er að… eld­ast og njóta frá degi til dags og taka sjálfan sig ekki of hátíð­lega. Mottóið er svo að koma fram við aðra eins og ég kýs að aðrir komi fram við mig.“

Myndir /  Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Kynning

Kynning

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum

Kynning

Brakandi ferskt grænmeti á matardiskinn sama dag og það er uppskorið

Kynning

Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Kynning

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

Kynning

Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum

Kynning

Meiri litagleði að færast í baðherbergistískuna