„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslenskt lambakjöt og grilluð pera í listilegum búningi

Mathús Garða­bæjar er fjöl­skyldu­vænn veit­inga­staður sem tekur þátt í Food & Fun í ár. Þar er það enski mat­reiðslu­meist­ar­inn Richard Falk sem töfrar fram ljúf­fengan mat­seðil þar sem meðal ann­ars er að finna brauð sem er bakað eftir leyni­upp­skrift hans, gljáða selju­rót, þorsk, lamba­kjöt, blá­skel og grill­aða peru.

Íslenskt lambakjöt og grilluð pera í listilegum búningi

Breski mat­reiðslu­meist­ar­inn Richard Falk hefur hannað mat­seð­il­inn sem verður í hávegum hafður á Mathúsi Garða­bæjar, Garða­torgi 4B, á meðan Food & Fun stendur yfir. Falk vann hluta­störf á veit­inga­stöðum í London á meðan hann stund­aði nám í verk­fræði á sínum tíma og í stað­inn fyrir að snúa sér að rann­sóknum fór hann alfarið að starfa sem mat­reiðslu­maður í borg­inni. Hann vann á veit­inga­staðnum The Dairy þegar hann var val­inn „Best Chef“ á þeim tíma sem verð­launin „Young British Foodie Awards“ voru veitt.

„Ég mæli alltaf með lamba­kjöti, fisk­inum okkar og hörpu­skel svo eitt­hvað sé nefnt og svo hann­aði Falk mat­seð­il­inn út frá sínum hug­myndum.“

„Falk byrj­aði á að spyrja mig hvaða hrá­efni ég mælti með,“ segir Fannar Vern­harðs­son, yfir­kokkur hjá Mathúsi Garða­bæjar. „Ég mæli alltaf með lamba­kjöti, fisk­inum okkar og hörpu­skel svo eitt­hvað sé nefnt og svo hann­aði Falk mat­seð­il­inn út frá sínum hug­myndum.“

Það verður gælt við bragð­lauka þeirra gesta sem koma á Food & Fun í Mathúsi Garða­bæjar. „Gestir fá fyrst smakk en við verðum með baby gem-salat sem verður borið fram með heima­lög­uðum sýrðum rjóma og stökku kart­öflu­hýði. Í for­rétt verður gljáð selju­rót með svörtum hvít­lauk, döðlum og beiskum sal­at­laufum.
Næst kemur þorskur og með honum verður borin fram hveiti­bjórsósa, sætt hvít­kál og sil­unga­hrogn.
Lamba­kjöt verður í aðal­rétt en þemað í aðal­rétt­inum er mjög skemmti­legt en með lamb­inu verður íslenskt þang, blá­skel og kart­öflur.
Eft­ir­rétt­ur­inn sam­anstendur af grill­aðri peru með þeyttri jógúrt, dökku súkkulaði og hesli­hnetum.“

Nýjar aðferðir
Fannar segir að mikil vinna liggi að baki öllum und­ir­bún­ingi fyrir þátt­tök­una í Food & Fun en að þetta sé að sama skapi ótrú­lega gef­andi og skemmti­legt. „Ég er búinn að vera það hepp­inn að fá skemmti­lega og góða kokka í þau skipti sem ég hef tekið þátt í hátíð­inni en það eru held ég 14 skipti. Þetta er bara stemn­ingin. Maður lærir alltaf eitt­hvað nýtt á hverri Food and Fun-hátíð og oftar en ekki eign­ast maður góða vini í leið­inni og er kom­inn með gott tengsla­net um allan heim. Það eru alltaf ein­hverjar nýjar aðferðir og engir tveir kokkar hugsa eins og það er skemmti­legt að fá önnur sjón­ar­mið. Það er góð aug­lýs­ing að taka þátt í Food & Fun en það er fyrst og fremst skemmt­unin sem við erum að leita að og auka­reynsla fyrir utan að um er að ræða góðan mat og góða drykki á góðu verði.“

Á Mathúsi Garða­bæjar er almennt lögð áhersla á vand­aðan mat úr fyrsta flokks hrá­efni, bæði í hádeg­inu og á kvöldin. „Í hádeg­inu er hægt að koma í fisk dags­ins fyrir litlar 1990 krónur, ham­borg­ara eða jafn­vel nauta­steik svo eitt­hvað sé nefnt, á kvöldin er svo mat­seð­ill­inn stærri og er t.d. þriggja rétta mat­seð­ill í boði á mjög góðu verði eða 6.490 krónur. Um helgar er svo brunch-hlað­borð í hádeg­inu og á sunnu­dags­kvöldum er steik­ar­hlað­borð sem er mjög vin­sælt og algjör snilld fyrir fjöl­skyldu­fólk.“

Mathús Garða­bæjar er fjöl­skyldu­vænn veit­inga­staður og er lögð áhersla á að koma til móts við börnin en veit­inga­stað­ur­inn er með sér­stakan barna­mat­seðil. „Hingað kemur margt fjöl­skyldu­fólk. Við erum með barna­horn sem er sér­her­bergi þar sem börn geta horft á teikni­myndir og leikið sér, nóg er af bíla­stæðum og stað­ur­inn er hlý­legur og kósí. Það er algjör snilld að fara með börn á Mathús Garða­bæjar. Ég fer alla­vega ekk­ert annað með börnin mín.“

Aðalmynd: Breski mat­reiðslu­meist­ar­inn Richard Falk hann­aði mat­seð­il­inn sem verður í hávegum hafður á Mathúsi Garða­bæjar á Food & Fun. Mynd / Jade Nina Sarkhel.
Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

studio-birtingur

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum
Kynning

Unaðsvara vik­unnar: Tvö­faldur kan­ínu­titr­ari með tveimur mót­orum

Unaðsvara vik­unnar Unaðsvara vik­unnar frá Lovísu er titr­ar­inn Muse en varan birt­ist í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Muse er ein af 10 vörum frá ástr­alska vöru­merk­inu Vush, en tækið er bæði end­ur­hlað­an­legt og vatns­helt. Muse er tvö­faldur kan­ínu­titr­ari með tveimur mót­orum, átta mis­mun­andi still­ingum á titr­ing og fimm kraft­still­ingum fyrir mis­mun­andi full­næg­ingu. Ein­stak­lega sveigj­an­legur og er því hið full­komna tæki til...
Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk
Kynningstudio-birtingur

Eru leið­indin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfir­þyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Ertu að glíma við syk­ur­fíkn og hvíld­ar­þörf? Ertu slappur og í yfir­þyngd? Borð­að­irðu of mikið um jólin og fékkst sam­svisku­bit? Viltu breyta lífi þínu til hins betra og öðl­ast betri lífs­gæði og hæfni til útvistar? Ef þér líður þannig skaltu skoða dag­skrá Fyrsta skrefs­ins sem hefst um miðjan jan­úar. Verk­efnið er byggt upp á viku­legum göngum á létt og þægi­leg...
Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina
Kynningstudio-birtingur

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleð­ina

Ertu með lélegt úthald og glímir jafn­vel dep­urð? Langar þig til að passa aftur í gömlu fötin þín? Leiðist þér í lík­ams­rækt­ar­stöðvum? Þá er svarið hér að neðan. Margir hafa kom­ist að raun um að göngu­ferðir um fjöll og flat­lendi á Íslandi eru ein­hver besta heilsutrækt sem kostur er á. Ferða­fé­lag Íslands heldur úti fjöl­mörgum göngu­hópum af ýmusm áreynslu­stigum sem...
Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum
Kynningstudio-birtingur

Návígi við refi og drauga í Dranga­skörðum

Ef þig langar í magn­aða upp­lifun þá kem­urðu með Ferða­fé­lagi Íslands í göngu­ferð fyrir Dranga­skörð og að Dröngum þar sem Eiríkur Rauði á rætur sínar. Ferðin hefst 16. júní á Val­geirs­stöðum í Árnes­hreppi þar sem gist verður í nýupp­gerðum skála Ferða­fé­lags Íslands. Daginn eftir verður siglt með hóp­inn í Dranga­vík þaðan sem gengið verður að Dröngum en far­angrinum trússað. Tjaldað...
Kynningstudio-birtingur

Meiri lita­gleði að fær­ast í bað­her­bergistísk­una

Íris Jensen, eig­andi versl­un­ar­innar Inn­rétt­ingar og tæki, segir að und­an­farin ár hafi meiri lita­gleði færst yfir í bað­her­bergistísk­una. Hún segir skemmti­lega þróun eiga sér stað nú og spenn­andi að sjá hvaða stefnur og straumar eru í gangi núna. Bleikt, blátt, grænt og gult í bland við mött gyllt, svört og hvít blönd­un­ar­tæki eru dæmi um það sem er í tísku...
Kynningstudio-birtingur

Brakandi ferskt græn­meti á mat­ar­diskinn sama dag og það er upp­skorið

VAXA er leið­andi fyr­ir­tæki á sviði svo­kall­aðs lóð­rétts land­bún­aðar. Í fram­leiðsl­unni er lögð áhersla á umhverf­is­væna ræktun og brak­andi ferska og fal­lega afurð fyrir neyt­and­ann. Íris Ósk Val­þórs­dóttir, rekstr­ar­stjóri VAXA, segir græn­metið frá VAXA geta verið komið á diskinn hjá neyt­and­anum dag­inn sem það er upp­skorið. „Maturinn ger­ist ekki ferskari,“ segir hún. Spurð út í sög­una á bak við VAXA,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Kynning

Kynning

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum

Kynning

Brakandi ferskt grænmeti á matardiskinn sama dag og það er uppskorið

Kynning

Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Kynning

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

Kynning

Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum

Kynning

Meiri litagleði að færast í baðherbergistískuna