„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tapasmeistari frá Barcelona á Bjórgarðinum

Einn af eft­ir­minni­legri gestum á Food & Fun í fyrra snýr aftur á Bjór­garð­inn, Foss­hótel Reykja­vík. Hinn geð­þekki tapasmeist­ari, Esteban Morales, kemur frá Barcelona og býður uppá tapas­hlað­borð ásamt einni gerð af paellu. Óskar finns­son , fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs Íslands­hót­ela segir að gleðin og lífs­nautnin verði í fyr­ir­rúmi á Bjór­garð­inum, Foss­hótel Reykja­vík.

Tapasmeistari frá Barcelona á Bjórgarðinum

Esteban hefur starfað á veit­inga­húsum víða á Spáni, en þó aðal lega á Barcelona-svæð inu og ein­hver ár var hann uppi í Baska hér uð unum,“ útskýrir Óskar. „Hann tók þátt í Master Chef-keppn­inni á Spáni fyrir nokkrum árum og vakti mikla athygli.“ Beðinn um að lýsa nánar nálgun Estebans á mat­ar­gerð stendur ekki á svör um hjá Óskari.

Hinn geð­þekki tapasmeist­ari frá Barcelona, Esteban Morales, snýr aftur á Food & Fun í Bjór­garð­inn, Foss­hótel Reykja­vík, í ár.

„Hann er lífskúnstner og mat­ar­gerð­ar­maður og fyrir honum er matur ekki eitt­hvað til að borða bara af því þú ert svangur held ur hluti af því að njóta lífs­ins,“ segir hann. „Hann tekur sér langan tíma í mat­ar­gerð­ina og það skiptir hann meira máli hvaðan varan kemur heldur en hvernig hún er krydduð, til dæmis. Hann er bæði vist­vænn í hugsun og list­rænn og fyrir honum er mat­ar­gerð ekki það að elda heldur að skapa og upp­lifa gleði og skemmtun. Matur er tákn gleð­innar í hans augum.“

Spurður hvernig mat Esteban muni bjóða gestum Bjór­garðs­ins upp á segir Óskar það verða klass­íska tapas­rétti. „Þetta er alls konar tapas sem á rætur að rekja til Barcelona og Baska hérað anna,“ útskýrir hann. „Og svo verður hann með eina paellu sem hann kallar Valenciapaellu. Það eru nefni­lega notuð öðru­vísi krydd í Val encia en í Barcelona.“ Til að hita upp stemn­ing­una verður lif­andi tón­list fimmtu­dag, föstu­dag og laug­ar­dag milli 19-21.

Spjallar við gestina

„Við setjum mat­inn upp á eins konar tapas­hlað­borð þar sem hver réttur er á 575 kr. Gestir enda svo á því að fá sér smá­vegis af paellu. Þetta er alveg kjörin upp­hitun fyrir kvöldið þar sem gestir fá mjög góðan mat og fá að prófa eitt­hvað nýtt og öðru­vísi.

Esteban leggur mikla áherslu á að hann sé sjálfur mikið á ferð­inni í salnum og spjalli við gest­ina.

Esteban leggur mikla áherslu á að hann sé sjálfur mikið á ferð­inni í salnum og spjalli við gest­ina. Hann leggur mikið upp úr nota­leg­heitum og jákvæðri stemn­ingu.“ Esteban verður á Bjór­garð­inum frá mið­viku­deg­inum 27. febr­úar til sunnu dags­ins 3. mars og Óskar hvetur fólk til að draga heim­sókn­ina ekki fram á síð­asta dag því reynslan frá því í fyrra hafi sýnt þeim að þetta konsept og tapas­réttir Estebans njóti gríð­ar­legra vin­sælda.

„Esteban verður bara hjá okkur á Bjór­garð­inum dag­ana sem Food & Fun stendur yfir,“ segir hann. „Þetta gekk alveg rosa­lega vel í fyrra og þess vegna ákváðum við að fá hann aftur. Hvers vegna að breyta ein­hverju sem virkar svona vel? Það var fullt út úr dyrum alla dag­ana sem hann var hjá okkur í fyrra og við gerum ráð fyrir því að það sama verði upp á ten­ingnum í ár.“

Öðruvísi upplifun

Óskar segir rétti Estebans vera eins og að fá Barcelona beint í æð og það virð­ast gestir Food and Fun svo sann­ar­lega kunna að meta. „Þegar fólk er búið að vera á Bjór­garð­inum í klukku­tíma og smakka alla þessa stór kost­legu rétti þá er það farið að langa alveg svaka­lega til Barce lona,“ segir hann og hlær.

„Fólk finnur að Esteban er í þessu af lífi og sál og það er ekk­ert feik við nálgun hans á mat­ar­gerð­ina. Fyrir utan matar gerð­ina er hann að kenna jóga þrisvar, fjórum sinnum í viku í Barcelona, og hann er alveg hund­rað pró­sent lífs­nautna­maður sem kann að njóta þess góða í líf­inu.“

Venju­legt fisksoð kom ekki til greina, skötusels­haus­arnir eru það eina sem hefur rétt fitu­magn í þetta soð að hans áliti.

Til marks um það hvað Esteban leggur mikið upp úr því að fá nákvæm­lega rétta hrá­efnið í rétt­ina sína nefnir Óskar sem dæmi að hann hafi neitað að nota nokkuð annað en skötusels­hausa til að búa til soðið í paell­una. „Við urðum að hafa mikið fyrir því í fyrra að finna skötusels­hausa fyrir hann. Venju­legt fisksoð kom ekki til greina, skötusels­haus­arnir eru það eina sem hefur rétt fitu­magn í þetta soð að hans áliti. Þannig að hann er ekk ert að kasta til hönd­unum við smá­at­riðin, þótt hans mottó sé fyrst og síð­ast að hafa gaman af því að búa til mat og njóta þess í botn að borða hann.

Þær áherslur smit­ast til gest­anna og ég get lofað þeim sem koma til okkar því að þetta verður öðru­vísi upp­lifun en þeir fá ann­ars staðar á Food & Fun í ár.“

Aðeins er tekið við borða­pönt­unum á net­fang­inu [email protected]
Lifandi tón­list með spænsku ívafi milli kl 19-21 fimmtu­dag til laug­ar­dags og matur bor­inn fram milli 18-22.
Verð er 575 kr. á hvern smá­rétt.

Food & Fun mat­arhátíðin verður haldin í átj­ánda skipti dag­ana 27. febrúar – 3. mars.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Foss­hótel

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

studio-birtingur

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum
Kynning

Unaðsvara vik­unnar: Tvö­faldur kan­ínu­titr­ari með tveimur mót­orum

Unaðsvara vik­unnar Unaðsvara vik­unnar frá Lovísu er titr­ar­inn Muse en varan birt­ist í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Muse er ein af 10 vörum frá ástr­alska vöru­merk­inu Vush, en tækið er bæði end­ur­hlað­an­legt og vatns­helt. Muse er tvö­faldur kan­ínu­titr­ari með tveimur mót­orum, átta mis­mun­andi still­ingum á titr­ing og fimm kraft­still­ingum fyrir mis­mun­andi full­næg­ingu. Ein­stak­lega sveigj­an­legur og er því hið full­komna tæki til...
Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk
Kynningstudio-birtingur

Eru leið­indin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfir­þyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Ertu að glíma við syk­ur­fíkn og hvíld­ar­þörf? Ertu slappur og í yfir­þyngd? Borð­að­irðu of mikið um jólin og fékkst sam­svisku­bit? Viltu breyta lífi þínu til hins betra og öðl­ast betri lífs­gæði og hæfni til útvistar? Ef þér líður þannig skaltu skoða dag­skrá Fyrsta skrefs­ins sem hefst um miðjan jan­úar. Verk­efnið er byggt upp á viku­legum göngum á létt og þægi­leg...
Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina
Kynningstudio-birtingur

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleð­ina

Ertu með lélegt úthald og glímir jafn­vel dep­urð? Langar þig til að passa aftur í gömlu fötin þín? Leiðist þér í lík­ams­rækt­ar­stöðvum? Þá er svarið hér að neðan. Margir hafa kom­ist að raun um að göngu­ferðir um fjöll og flat­lendi á Íslandi eru ein­hver besta heilsutrækt sem kostur er á. Ferða­fé­lag Íslands heldur úti fjöl­mörgum göngu­hópum af ýmusm áreynslu­stigum sem...
Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum
Kynningstudio-birtingur

Návígi við refi og drauga í Dranga­skörðum

Ef þig langar í magn­aða upp­lifun þá kem­urðu með Ferða­fé­lagi Íslands í göngu­ferð fyrir Dranga­skörð og að Dröngum þar sem Eiríkur Rauði á rætur sínar. Ferðin hefst 16. júní á Val­geirs­stöðum í Árnes­hreppi þar sem gist verður í nýupp­gerðum skála Ferða­fé­lags Íslands. Daginn eftir verður siglt með hóp­inn í Dranga­vík þaðan sem gengið verður að Dröngum en far­angrinum trússað. Tjaldað...
Kynningstudio-birtingur

Meiri lita­gleði að fær­ast í bað­her­bergistísk­una

Íris Jensen, eig­andi versl­un­ar­innar Inn­rétt­ingar og tæki, segir að und­an­farin ár hafi meiri lita­gleði færst yfir í bað­her­bergistísk­una. Hún segir skemmti­lega þróun eiga sér stað nú og spenn­andi að sjá hvaða stefnur og straumar eru í gangi núna. Bleikt, blátt, grænt og gult í bland við mött gyllt, svört og hvít blönd­un­ar­tæki eru dæmi um það sem er í tísku...
Kynningstudio-birtingur

Brakandi ferskt græn­meti á mat­ar­diskinn sama dag og það er upp­skorið

VAXA er leið­andi fyr­ir­tæki á sviði svo­kall­aðs lóð­rétts land­bún­aðar. Í fram­leiðsl­unni er lögð áhersla á umhverf­is­væna ræktun og brak­andi ferska og fal­lega afurð fyrir neyt­and­ann. Íris Ósk Val­þórs­dóttir, rekstr­ar­stjóri VAXA, segir græn­metið frá VAXA geta verið komið á diskinn hjá neyt­and­anum dag­inn sem það er upp­skorið. „Maturinn ger­ist ekki ferskari,“ segir hún. Spurð út í sög­una á bak við VAXA,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Kynning

Kynning

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum

Kynning

Brakandi ferskt grænmeti á matardiskinn sama dag og það er uppskorið

Kynning

Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Kynning

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

Kynning

Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum

Kynning

Meiri litagleði að færast í baðherbergistískuna