„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Níðsterk gólfefni sem endast

Fyr­ir­tækið Epoxy gólf ehf. mun sýna úrval sam­skeyta­lausra og níð­sterkra gól­f­efna um helg­ina. Starfs­menn búa yfir allt að 35 ára reynslu og taka vel á móti gestum.

Níðsterk gólfefni sem endast

„Epoxy gólf ehf. sér­hæfir sig í gól­f­efnum fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki sem eru bæði sam­skeyta­laus og níð­sterk. Fyrir vikið henta þau vel þar sem kröfur eru gerðar um hrein­læti og langa end­ingu,“ segir Torfi Már Hreins­son, einn af eig­endum fyr­ir­tæk­is­ins. „Á sýn­ing­unni um helg­ina ætlum við að sýna gestum úrval af bestu lausnum okkar sem henta stórum og litlum heim­ilum, auk fyr­ir­tækja og vinnu­rýma, á borð við mat­væla­vinnslur, fisk­vinnslur, spít­ala, lag­er­hús­næði, sund­laugar, bíla­geymslur og eld­hús, svo ég nefni nokkur dæmi. Yfirborð gólfa okkar er sam­skeyta­laust og algjör­lega lokað. Það þýðir að auð­velt er að þrífa gólfin og halda þeim hreinum. Starfs­menn okkar búa yfir allt að 35 ára reynslu og því óhætt að segja að gestir sýn­ing­ar­innar komi ekki að tómum kof­anum hjá okkur.“

„Efnið er sett á fleti þar sem óskað er eftir nútíma­legu steypu­út­liti á gólf eða veggi.“

Úrval lausna
Fyrst nefnir hann til sög­unnar Micro-Top sem er slitsterkt og langvar­andi Micro-sem­ent fyrir bæði veggi og gólf. „Efnið er sett á fleti þar sem óskað er eftir nútíma­legu steypu­út­liti á gólf eða veggi. Þar sem þessi lausn er full­kom­lega vatns­held hentar hún ein­stak­lega vel á bað­her­bergi og raunar flest önnur rými á heim­il­inu. Einnig mætti nefna skrif­stofur og sýn­ing­ar­sali sem eru heppi­leg rými fyrir Micro-Top en það kemur í ólíkum litum.“

DECO-LINE er glæsi­legt gól­f­efni sem býður upp á hámarks­þæg­indi og kemur í nokkrum und­ir­flokkum sem hann skýrir nánar. „Comfort er mjúkt og teygj­an­legt gól­f­efni en um leið mjög slitsterkt. Það gerir það að einu end­ing­ar­besta gól­f­efni sem völ er á. Hægt er að blanda tveimur eða fleiri litum saman til þess að fá skemmti­lega hreyf­ingu í gólfið.“
Comfort Ultra er enn þægi­legra og mýkra gól­f­efni auk þess að vera með meiri dempun. „Comfort gefur auk þess ótrú­lega hljóð­ein­angrun, eða um og yfir 18 desi­bil (dLw) í hávaða­minnkun.“

Epoxy gólf ehf. sér­hæfir sig í gól­f­efnum sem eru bæði sam­skeyta­laus og níð­sterk fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki.

EVO-gól­f­efni er hugsað fyrir iðnað og almenn fyr­ir­tæki, að sögn Torfa. „Um er að ræða harð­asta og sterkasta pólý­úretangól­fefnið sem við bjóðum upp á. Kerfið er því full­komin lausn fyrir léttan og miðl­ungs­stóran iðnað, ólík fram­leiðslu­svæði og vöru­geymslur.“
Að lokum nefnir hann Premium-efnið sem hann segir lúx­us­gól­fefna­lausn fyrir fyr­ir­tæki og stofn­anir. „Yfirborð Premium hefur bakt­er­íu­vörn og því er lausnin mikið notuð á heil­brigð­is­stofn­unum og rann­sókn­ar­stofum. Enda er þetta vin­sælasta gólf­lausnin sem Quartzline, birgir okkar, fram­leiðir“

Sterk og við­halds­lítil
Epoxy Kvarts-gól­f­efnin eru end­ing­ar­bestu gól­f­efni sem völ er á fyrir iðnað, að sögn Torfa. „Þessi gól­f­efni eru mjög sterk, við­halds­lítil og sam­skeyta­laus. Við bjóðum bæði upp á hefð­bundna lausn og mál­aða. Helsti mun­ur­inn er að lit­ur­inn á gól­f­efn­inu er í lakk­inu en ekki í kvarts­sand­inum sem gefur mögu­leika á hálku­vörn. Þess vegna er málað Epoxy Kvarts yfir­leitt valið á fisk­vinnslur og aðrar mat­væla­vinnslur þar sem bleyta er á gólfum.“

Einnig verður til sýnis stein­teppi, sem er glæsi­legt gól­f­efni með marm­ara eða kvarts, auk þess sem Metallic Epoxy verður til sýnis en um er að ræða fal­legt, skemmti­legt og slitsterkt gól­f­efni sem er hægt að fá í mis­mun­andi litum.

Nánari upp­lýs­ingar á www.epoxygolf.is.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Epoxy gólf ehf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilið

Garðhúsgögnin komin í Rúmfatalagerinn: Vönduð, sterk og viðhaldsfrí
Kynning

Garð­hús­gögnin komin í Rúm­fatalager­inn: Vönduð, sterk og við­halds­frí

Rúm­fatalager­inn hefur í gegnum árin boðið upp á mikið úrval garð­hús­gagna og nú þegar stytt­ist í vorið er farið að stilla því nýjasta hvað þau varðar upp í versl­unum Rúm­fatala­gers­ins. „Þau er vönduð, sterk og við­halds­frí,“ segir Rósa Dögg Jóns­dóttir, mark­aðs­stjóri Rúm­fatala­gers­ins, um garð­hús­gögnin sem fást í versl­unum keðj­unnar hér á landi. „Hús­gögnin þola íslenska veðr­áttu vel – þau þola...
„Mikill misskilningur að lítil rými þurfi eingöngu að vera í ljósum litum“
Mannlífið

„Mikill mis­skiln­ingur að lítil rými þurfi ein­göngu að vera í ljósum litum“

Í litlum rýmum er mik­il­vægt að hönn­un­ar­lausnir séu góðar. Gott skipu­lag er einnig lyk­il­at­riði en auk þess þarf rým­is­upp­lifunin að vera ánægju­leg. Við tókum Katrínu Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt tali og báðum hana um að gefa les­endum góð ráð varð­andi hönnun á litlum rýmum. Katrín Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt útskrif­að­ist með BSc í inn­an­húss­arki­tektúr frá Art Institute of Fort Lauder­dale á Flórída en að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Kynning

Kynning

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum

Kynning

Brakandi ferskt grænmeti á matardiskinn sama dag og það er uppskorið

Kynning

Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Kynning

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

Kynning

Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum

Kynning

Meiri litagleði að færast í baðherbergistískuna