„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áhrif loftslagsbreytinga á barneignir

Þing­konan Alex­andria Ocasio-Cortez vill meina að lofts­lags­mál hafi áhrif á barn­eignir ungs fólks.

Áhrif loftslagsbreytinga á barneignir

Ummæli sem banda­ríska þing­konan Alex­andria Ocasio-Cortez lét falla í síð­ustu viku, þar sem hún ýjaði að því að ungt fólk, fólk af svo­kall­aðri millennial-kyn­slóð, hik­aði við að eign­ast börn vegna lofts­lags­breyt­inga, vöktu athygli. Alex­andria vill meina að lofts­lags­mál og mögu­leg áhrif lofts­lags­breyt­inga á líf kom­andi kyn­slóða valdi ungu fólki áhyggjum.

„Og jafn­vel þó þig langi ekki að eign­ast börn þá verða áfram börn í þessum heimi, og okkur ber skylda að skilja eftir betri jörð handa þeim,“ sagði hún meðal ann­ars í mynd­bandi sem hún streymdi beint á Instagram. Hún hélt áfram og sagði margt fólk nú velta fyrir sér hvort óhætt sé að eign­ast börn.

Ummælin fóru fyrir brjóstið á mörgum og vildu sumir meina að hún væri ein­hvers konar tals­maður þess að banna barn­eignir.

En getur verið að þing­konan hafi rétt fyrir sér? Blaða­menn Business Insider skoð­uðu málið og settu könnun á lagg­irnar á vef sínum.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar leiddu meðal ann­ars í ljós að um 30% þátt­tak­enda eru þeirrar skoð­unar að pör ættu að íhuga áhrif lofts­lags­breyt­inga á fram­tíð­ina áður en það ákveður að eign­ast börn.

Um 18% voru algjör­lega ósam­mála því að pör ættu að taka lofts­lags­breyt­ingar inn í mynd­ina þegar barn­eignir eru íhug­aðar.

Þá kemur fram að yngra fólk var lík­legra til að vera sam­mála því að mik­il­vægt væri að taka lofts­lags­breyt­ingar til greina þegar fólk íhugar barn­eignir heldur en eldra fólk.

Þess má geta að 1.858 ein­stak­lingar á aldr­inum 20 til 45 ára tóku þátt í könn­un­inni.

Nið­ur­stöð­urnar má sjá í heild sinni á vef Business Insider.

Sjá einnig: Nýr grænn sátt­máli – minni ójöfn­uður og end­ur­nýj­an­leg orka

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“