„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leitin að næsta leiðtoga demókrata

Leitin að næsta leið­toga demókrata er hafin. Leið­tog­inn sem á að tryggja þeim for­seta­emb­ættið í for­seta­kosn­ing­unum 2020. Hér vest­an­hafs hófst und­ir­bún­ingur að for­seta­kosn­ingum um það bil og kosn­ing­unum í nóv­em­ber lauk. Allar líkur eru á því að próf­kjör demókrata verði fjöl­mennt partý .

Leitin að næsta leiðtoga demókrata

Það gefur auga­leið að demókratar þurfa að tefla fram sterkum fram­bjóð­anda sem getur sigrað Donald Trump sem er fjarri lagi hefð­bund­inn fram­bjóð­andi. Trump er til alls lík­legur og erfitt að kort­leggja. Fer fram hjá hefð­bund­inni fjöl­miðla­bar­áttu og notar sam­fé­lags­miðla eins og Twitter óspart. Pólitísk skila­boð um að hann stæði með fólk­inu í land­inu gegn kerf­inu virt­ist virka síð­ast þó kvarnað hafi úr trú­verð­ug­leika þeirra með litlum efndum. Líklegt er að Trump verði óvæg­inn, beiti hvaða aðferð sem er til að vinna og haldi áfram sínu þjóð­ern­is­sinn­aða inn­flytj­end­arausi. Því er það kostur ef sá fram­bjóð­andi sem verður fyrir val­inu geti mætt honum af þunga á þessu svelli.

Elizabeth Warren.

Mörg nöfn eru í hatt­inum. Nokkur hafa þegar lýst yfir fram­boði þar á meðal öld­ung­ar­deild­ar­þing­kon­urnar Elizabeth Warren og Kamala Harris. Elizabeth Warren, fyrrum pró­fessor við Harvard, hefur verið hörð í gagn­rýni sinni á fjár­mála­kerfið, spill­ingu og óheflaðan kap­ít­al­isma. Efn­is­lega er óum­deilt að hún er mjög hæfur fram­bjóð­andi en hana skortir ákveð­inn póli­tískan sjarma, þetta óáþreif­an­lega sem fær fólk til að hríf­ast með. Helsti löstur hennar er að hún er of lík Hillary Clinton. Kamala Harris er frá Kali­forníu og þykir hafa stjörnu­eig­in­leika, hefur barist fyrir frjáls­lyndum borg­a­rétt­indum í þing­inu og fékk mikla athygli í Brett Kavan­augh yfir­heyrsl­unum.

Joseph R. Biden

Aðrir sem þykja lík­legir eru Joseph Biden, vara­for­seti Obama, Eric Garcetti sem er borg­ar­stjóri Kali­forníu og Bernie Sanders. Bernie bauð sig fram gegn Hillary Clinton í próf­kjöri demókrata fyrir for­seta­kosn­ingar 2016. Hann er sós­í­alisti, óhefð­bund­inn fram­bjóð­andi og maður fólks­ins. Lengst af í hópi þeirra þing­manna sem hafa staðið utan flokka.

Bernie var mjög sterkur á sam­fé­lags­miðlum í sinni bar­áttu með slag­orðið „feel the Bern“ og hefur laðað til sín marga unga fylgj­endur sem styðja sós­íal­ískar vel­ferð­ar­á­herslum. Joseph Biden á marga fylgj­endur innan demókra­ta­flokks­ins og hann hefur tvisvar áður reynt við for­seta­fram­boð. Þá hefur John Kerry einnig verið nefndur og Hillary Clinton, en bæði þykja ólík­leg enn sem komið er.

Beto O´Rourke.

Annar mögu­legur fram­bjóð­andi er Beto O´Rourke þing­maður frá Texas. Ungur, með mik­inn póli­tískan sjarma og vakti athygli fyrir að ná til ungra kjós­enda og að safna miklum fjár­munum í bar­áttu sinni fyrir öld­ung­ar­deild­ar­þing­sæti í Texas í nýliðnum kosn­ingum. Öllum að óvörum var hann í miklum sjens að vinna Ted Cruz sem er stórt nafn í Texas, sem almennt er vel rautt ríki. Beto þykir þó of miðju­sinn­aður fyrir marga.

Bernie Sanders sterkur frambjóðandi

Af þeim nöfnum sem eru í hatt­inum hlýtur Bernie Sanders að vera sterkasti fram­bjóð­and­inn enn sem komið er. Hann er maður rétt­læt­is­ins, nokkuð óhefð­bund­inn á banda­rískan mæli­kvarða og ókerf­is­lægur í sínum skoð­unum, rétt eins og Donald Trump. Hans helsti löstur er ald­ur­inn. Hvort að Bernie Sanders sé hið sterka mót­vægi til að fella Donald Trump verður þó að koma í ljós, en hann hefur þegar ákveð­inn grunn til að byggja á sem aðrir fram­bjóð­endur hafa ekki.

Alex­andria Ocasio-Cortez

Margir skemmti­legir nýir þing­menn demókrata eru einnig að vekja mikla lukku meðal ungs fólk og  hrífa til sín fylgi og aðdáun. Þing­konan Alex­andria Ocasio-Cortez hefur verið mest áber­andi í þeim hópi. Því gæti það verið sterkur leikur að fá ungan spútnik fram­bjóð­anda sem vara­for­seta­efni fyrir þann demókrata sem tekst á við Donald Trump árið 2020, sér­stak­lega ef „hefð­bundn­ari“ fram­bjóð­andi verður fyrir val­inu. Það verður að segja að mikið liggur við og því sjálf­sagt mikil pressa á demókrötum að fella Trump.

Sjá einnig: Ný þing­kona hristir upp í hús­inu

Meg­in­at­riðið hlýtur að vera að sam­ein­ast um sterkasta fram­bjóð­anda sem er lík­legur til að sigra og tefla fram öfl­ugri stra­tegíu. Að lesa í hið póli­tíska lands­lag hverju sinni segir líka mikið um hvort hent­ugra sé að fá hefð­bund­inni póli­tískan fram­bjóð­anda t.d. eins og Elizabeth Warren eða meira fútt eins og fylgir Bernie Sanders þrátt fyrir háan aldur. Til­finn­ingin er sú að póli­tískur sjarmi, sterk skila­boð með rétt­lætisí­vafi og hæfnin til að hrífa fólk með sér muni skipta miklu máli í for­seta­kosn­ing­unum 2020. Í öllu falli munu demókratar hafa úr mörgum að velja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Gerði hlé á tónleikum til að tjá sig um Trump: „Dæmdur níðingur sem hatar konur svo innilega“
HeimurTrump

Gerði hlé á tón­leikum til að tjá sig um Trump: „Dæmdur níð­ingur sem hatar konur svo inni­lega“

Grammy-verð­laun­aða söng­konan Billie Eilish er væg­ast sagt óánægð með úrslit for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum en hún gerði hlé á tón­leikum sínum í Tennessee til að tjá hug sinn. Söng­konan lét hug­leið­ingar sínar um kosn­ing­arnar í ljós á tón­leikum í Nas­hville gær­kvöldi, þegar hún tjáði sig um sigur Trump. Gagn­rýndi hún 45 og brátt 47 for­seta Banda­ríkj­anna og sagði hann vera „dæmdan...
Maðurinn sem skaut Trump var tvítugur Repúblikani – Drap einn og særði tvo alvarlega
Heimur

Maðurinn sem skaut Trump var tví­tugur Repúblikani – Drap einn og særði tvo alvar­lega

Yfirvöld hafa birt nafn manns­ins sem skaut á Donald Trump á kosn­inga­fundi hans í Butler, Penn­syl­vaniu í gær. Hann var skráður í Repúblikana­flokk­inn. Einn áhorf­andi lést og tveir eru alvar­lega slas­aðir á spít­ala eftir að maður skaut fimm skotum á kosn­inga­fundi Donald Trump í Penn­syl­vaniu í gær. Trump fékk skot í eyrað og var drif­inn í burtu af leyni­þjón­ustu­fólki. Skot­mað­ur­inn...
Ferðabann Bandaríkjaforseta tekur gildi
Innlent

Ferða­bann Banda­ríkja­for­seta tekur gildi

Ferða­bannið sem Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti setti á 26 þjóðir Evr­ópu til Banda­ríkj­anna, í því skyni að hefta frek­ari út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar, hef­ur tekið gildi. Bannið nær meðal ann­ars til Íslands. Eins og kunn­ugt er hafa um tvö þús­und COVID-19 til­felli greinst í Banda­ríkj­un­um og 43 hafa látið lífið, þegar þetta er skrifað og hefur Banda­ríkja­for­seti lýst yfir neyð­ar­standi vegna kór­óna­veirunnar og...
„Okkur þykir #WWIII slæm hugmynd“
HeimurTrump

„Okkur þykir #WWIII slæm hug­mynd“

Alex Kapranos, for­sprakki hljóm­sveit­ar­innar Franz Ferdin­and, hefur tjáð sig á Twitter um þá stað­reynd að heiti hljóm­sveit­ar­innar fór að trenda á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­far þess að Banda­ríkja­menn drápu einn æðsta her­for­ingja Íran, Qassim Suleimani. Suleimani, sem féll í dróna­árás nærri alþjóða­flug­vell­inum í Baghdad í nótt, var náin sam­starfs­maður Aya­tollah Ali Khamenei, leið­toga Íran. Óttast margir að aftakan muni hafa afdrifa­ríkar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu