„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vörusvik í rúminu

Typpa­stærð er svo­lítið eins og stærðin á hús­næð­inu manns; hefur engin svaka­leg áhrif nema það sé allt, allt of lítið eða allt, allt of stórt. Með­al­veg­ur­inn er sem sagt fínn í þessu eins og öðru. En hver er með­al­veg­ur­inn og er hægt að lá ein­hleypri konu sem er að leita sér að einnar nætur gamni og finnst hún hafa verið illa svikin þegar smá­reður verður á vegi hennar?

Vörusvik í rúminu

„Það er ekki hægt að sjá bara eitt typpi um ævina! Það bara er ekki hægt,“ full­yrti ein vin­kona mín í saumó hér um árið. Henni var mikið niðri fyrir því við vorum nokkrar í hópnum búnar að vera með sömu kærust­unum lengi og ein okkar hafði bara átt þennan eina kærasta frá þvi hún var í gaggó. Ég skildi ekki alveg æsing­inn í henni vin­konu minni á þessum tíma en ég skildi hann mörgum árum seinna þegar ég var hætt með kærast­anum sem ég hafði verið með í rúman ára­tug. Og já, bara búin að sjá þetta eina typpi í allt of langan tíma.

En hvað með það, ég var ánægð með það og hafði ekki yfir neinu að kvarta þegar kom að þessu allra heilag­asta. Fyrr en einn dag­inn þegar kærast­inn ákvað að fleiri konur mættu sjá það sem ég hélt að væri ætlað mér einni. En það er ekki umræðu­efni vik­unnar.

Ég er í nokkrum sauma­klúbbum sem eiga það allir sam­eig­in­legt að vera fjöl­breyttir og skemmti­legir; þ.e. kon­urnar sem ég er með í þessum sauma­klúbbum eru á ýmsum aldri og koma úr ólíkum áttum. Sumar eru frá­skildar, sumar giftar eða í sam­búð, nokkrar ein­hleypar og aðrar eiga vini með ávinn­ingi (e. fri­ends with benefits).

Eins og gefur að skilja er ýmis­legt rætt, allt frá köku­upp­skriftum upp í kyn­líf. Ég hafði margoft sagt við stelp­urnar að myndi ég kynn­ast ynd­is­legum manni sem væri góður við mig, góður við börnin mín, skemmti­legur og já, ekki algjör eymingi, þá myndi engu máli skipta hvernig hann væri vax­inn niður. Sú full­yrð­ing mín féll í mis­jafnan jarð­veg en allar voru þær sam­mála um að stærðin skipti máli. Engin þeirra myndi sætta sig við pínku­pons.

Vinkonan fann til í vinkonunni

Mér hefur aldrei fund­ist útlitið vera það sem skiptir máli, þótt ég geri vissu­lega kröfur um ákveðna per­sónu­eig­in­leika, hrein­læti og sjálfs­virð­ingu. Ég hef alveg orðið skotin í lág­vöxnum mönnum, hávöxnum, sköll­óttum, hár­prúðum mönnum í topp­formi og mönnum með bumbu. En ekki mönnum sem koma illa fram við annað fólk og dýr, ganga um með aleig­una í plast­poka eða fara sjaldan eða aldrei í sturtu.

Það liðu nokkrir mán­uðir frá því ég skildi við mann­inn minn þar til mér fannst ég til­búin að fara að líta í kringum mig. Skoða mark­að­inn. Og þetta var skemmti­legt tíma­bil. Ég próf­aði alls konar; stutt sam­bönd, skyndikynni, aðeins lengri sam­bönd og vini með ávinn­ing. Allt voru þetta indælis menn, líka þeir sem urðu bara einnar nætur gaman. En ég átt­aði mig á því að ég varð að gjöra svo vel og éta ofan í mig það sem ég hafði sagt við vin­konur mínar. Mér finnst stærðin skipta máli.

Ég held samt að það sé mýta að okkur konur dreymi um risa­stór typpi því það er ekki gott að fá svo­leiðis inn í sig. Það er ekk­ert þægi­legt við það að finn­ast eitt­hvað vera að sting­ast í heil­ann í manni. Ein sauma­klúbbsvin­kona mín sagð­ist til dæmis hafa átt kærasta sem var með svo risa­vax­inn lim að þau gátu ekki stundað kyn­líf. Það var ein­fald­lega bara ekki hægt; hann kom honum ekki inn og ef hann náði því að ein­hverju leyti þá var það of sárs­auka­fullt fyrir vin­konu mína. Og vin­kon­una hennar … Svo það er þessi bless­aði með­al­vegur í þessu eins og öllu öðru. Og með­al­veg­ur­inn er hreint ekki svo slæmur.

One size fits all … O, nei!

Heim­ildum ber ekki alltaf alveg saman um með­al­stærð typpa en þó hafa margar rann­sóknir verið gerðar til að reyna að kom­ast að ein­hverri nið­ur­stöðu. Ein slíkra rann­sókna var gerð á átta­tíu karl­mönnum, og birt í Journal of Urology.

Nið­ur­stöðu hennar voru þær að linur limur væri að með­al­tali um sjö til tíu senti­metrar og með­alum­mál um níu til tíu senti­metrar. Limur í reisn væri að með­al­tali um tólf til sextán senti­metrar og með­alum­málið um tólf senti­metrar. Þó töldu um 45% karl­anna sem tóku þátt í rann­sókn­inni að þeir væru með lítið typpi. Og margir karlar eru óör­yggir með stærð­ina. Sem er kannski ekk­ert skrýtið. Þeir heyra örugg­lega talað um „dyra­bjöllu­typpin“ og sjá klám­mynda­leik­ar­ana með risa­stóru bell­ina sem kon­urnar á skjánum líta girnd­ar­augum. En þessir gaurar landa örugg­lega ekki hlut­verk­unum út á leik­hæfi­leik­ana, heldur frekar út á risa­bell­ina sem eru í kringum 24 senti­metrar eða svo.

Svo er auð­vitað mis­jafnt hvernig fólk skil­greinir stærð. Sumar konar taka þykkt­ina fram yfir lengd­ina og rann­sóknir hafa sýnt að þykktin hefur meira að segja um kyn­ferð­is­lega örvun heldur en lengdin. Í rann­sókn sem birt var í BMC Women´s Health sögðu 45 konur af þeim 50 sem tóku þátt að þykkt lims­ins skipti mestu máli á meðan fimm konur sögðu að þeim þætti betra að lim­ur­inn væri langur. Per­sónu­lega finn­ast mér þessi löngu, mjóu typpi vera eins og gul­rót sem er verið að pota þarna inn og út. Má ég þá frekar biðja um kúr­bít, takk.

Sumar konar taka þykkt­ina fram yfir lengd­ina og rann­sóknir hafa sýnt að þykktin hefur meira að segja um kyn­ferð­is­lega örvun heldur en lengdin.

Að auki má heldur ekki gleyma því að við konur erum mis­jafnar. Með­al­lengd leg­ganga ku vera um átta senti­metrar og leng­ist eftir stærð lims­ins. Þá er breidd þeirra mis­mikil og þau víkka við kyn­ferð­is­lega örvun. Það getur haft áhrif á full­næg­ing­una hjá báðum aðilum. Séu leggöngin í þrengra lagi getur það örvað typpin sem eru í minna lagi og að sama skapi geta stóru typpin misst af stuð­inu séu leggöngin víð. Hér gætu grind­ar­botns­æf­ingar komið að gagni.

Lillemann, í orðsins fyllstu merkingu

Ég hall­ast að því að við ein­hleypu vin­kon­urnar spáum aðeins meira í stærð­ina af því að við erum að þreifa fyrir okkur á mark­aðnum. Sumar að reyna að finna þann eina rétta. Ef maður myndi rekast á hann, þennan sem hefur „allan pakk­ann“, þá myndi maður örugg­lega ekki hugsa um þessa hluti. Held ég alla vega.

Ég trúi því að það skipti meira máli að finna ein­hvern sem er góður maki og vinur manns, góður pabbi, tekur fullan þátt í öllu sem snýr að fjöl­skyld­unni og heim­il­inu og bætir upp fyrir lítið typpi með töktum sínum í rúm­inu. En, og hér legg ég áherslu á orðið en, þegar um einnar nætur gaman er að ræða, eða jafn­vel fyrsta skiptið í þeirri von um að fleiri fylgi síðar, þá eru von­brigðin tölu­verð þegar lillem­ann er lille, í orðs­ins fyllstu merk­ingu.

Við ein­hleypu skvís­urnar höfum reynt að finna ein­hverja sam­svörun á milli litlu typp­anna og útlits eig­end­anna, t.d. hvort skó­stærðin gefi ein­hverja vís­bend­ingu eða hend­urnar. En höfum kom­ist að því að það er ekki hægt að ganga að neinu vísu í þeim efnum. Það hafa verið gerðar rann­sóknir, og við stelp­urnar vissu­lega gert okkar eigin, sem hafa ekki sýnt fram á að hægt sé að tengja typpa­stærð­ina við neitt ákveðið. Og nú hugsa kannski ein­hverjir að það hljóti samt að vera sam­band á milli kyn­þáttar og stærð­ar­innar en heim­ildum ber ekki alveg saman í þeim efnum. Sumar rann­sóknir segja nei, það sé ekk­ert sam­band á milli, á meðan aðrar segja að svo sé.

Skoskur smáreður

Ég hafði ekki sofið hjá í nokkra mán­uði þegar ég fór að hitta gamla skóla­fé­laga niðri í bæ. Besta vin­kona mín sem er í þeim hópi var ákveðin í að koma mér á séns þetta kvöld. Hópurinn hitt­ist á veit­inga­stað og svo var farið yfir á stað þar sem var verið að spila live-tón­list. Við vin­kon­urnar ákváðum að kíkja eitt­hvert annað. Við vorum nýkomnar upp á Lauga­veg­inn þegar vin­kona mín tók í hand­legg­inn á mér og dró mig yfir göt­una, að hópi karl­manna sem voru greini­lega að skemmta sér vel.

Þarna var hann ásamt félögum sínum; í skoskum þjóð­bún­ingi eins og allir hinir í hópnum. Mér fannst hann fal­leg­asti maður sem ég hafði augum litið. Hávaxinn, dökk­hærður og karl­mennskan upp­máluð. Bruce hét hann og var frá Skotlandi. Það neist­aði strax á milli okkar. Ég var hálf­feimin við hann til að byrja með því hann var svo ótrú­lega mynd­ar­legur; með þessi bláu, tindr­andi augu og fal­legt brosið náði alveg til augn­anna. En ekki bara var hann mynd­ar­legur, heldur var hann alveg ótrú­lega skemmti­legur. Hann hafði mik­inn áhuga á Íslandi og vissi heilmargt um land og þjóð; sagð­ist hafa komið hingað áður og ætti örugg­lega eftir að koma hingað aftur.

Kvöldið var ungt og hann bauð mér í drykk. Ég naut þess alveg í botn að vera þarna með honum. Hann kunni líka að daðra. Og kyssa. „Segðu mér nú satt. Eruð þið strák­arnir í ein­hverju innan undir skota­pils­unum?“ spurði ég. „Þú verður bara að kom­ast að því sjálf,“ svar­aði hann og blikk­aði mig.

Svo ég bauð honum heim. Eitt leiddi af öðru og hann reif sig úr föt­unum. En bíddu nú við! Þessi hávaxni maður, sem var byggður eins og grískur guð, með stórar og sterk­legar hendur, dimm­radd­aður og með risa­stóra fætur var með agn­arsmátt typpi. Ætti ég að líkja þessu við eitt­hvað þá var það um það bil helm­ingi minna en kok­teilpylsa. Varla einn munn­biti. Vörusvik, hugs­aði ég með mér. En ég lét á engu bera og hann bætti upp fyrir smæð­ina með ýmsu öðru og hann vant­aði sko ekki sjálfs­traustið.

„Ætti ég að líkja þessu við eitt­hvað þá var það um það bil helm­ingi minna en kok­teilpylsa. Varla einn munn­biti.“

„Er þetta ekki gott? Er þetta ekki gott?“ kall­aði hann þar sem hann ham­að­ist í að því er virt­ist heila eilífð. Ég stökk á fætur og hringdi á leigu­bíl fyrir hann; sagð­ist þurfa að vakna snemma næsta morgun. Að ég væri upp­tekin næstu kvöld og það væri leið­in­legt að ná ekki að hitta hann aftur áður en hann færi heim til Skotlands.

Eina sem ég fékk út úr þessu var nún­ings­sár þarna niðri og ég varð að sleppa spinn­ing-tímunum í nokkra daga á eftir.

Seinna komst ég að því að til er svo­lítið sem kallað smá­reður (e. micropenis) sem telst óeðli­lega lít­ill limur. Smáreður á full­orðnum karl­manni er um fimm senti­metrar á lengd og talið er að um 0,6% allra karla í heim­inum eigi við þetta vanda­mál að stríða. Líklega get ég hakað við boxið „Sofa hjá manni með smá­reður“ eftir reynslu mína með Skotanum.

Þegar öllu er á botn­inn hvolft þá er það ekki typpið sem gerir gæfumun­inn í kyn­líf­inu. Frammi­staðan bygg­ist á svo mörgu öðru; eins og sjálfs­trausti, vellíðan og afslöppun. Svo er hægt að bæta við ýmsum hjálp­ar­tækjum til að auka á unað­inn og skemmti­leg­heitin. Það er meira að segja hægt að kaupa slíður til að setja utan um typpið til að þykkja það í sam­förum. Og svo er hægt að gera svo margt annað til að gera kyn­lífið ánægju­legt. Það þarf ekki bara að stinga typpi í leggöng til að það sé skemmti­legt. Og typpi eru alls konar. Þau eru lítil, stór, mjó, bogin, bein, þykk, bleik, brún, og svo fram­vegis.

Já, og á meðan ég man. Skotinn var í nar­íum. Enda veit ég ekki hvernig þetta hefði verið hefði hann ekki varið sig fyrir íslenska kuld­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu