„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég var ritstjóri Boris Johnson. Hann er gjörsamlega vanhæfur í embætti forsætisráðherra”

Max Hastings, fyrr­ver­andi rit­stjóri Boris Johnson, segir í skoð­anapistli á vef The Guardian, að Boris sé gjör­sam­lega van­hæfur í starf for­sæt­is­ráð­herra. Þá segir hann Íhalds­flokk­inn neyða smekklausan brand­ara upp á breskan almenn­ing verði Boris gerður að for­sæt­is­ráð­herra.

„Ég var ritstjóri Boris Johnson. Hann er gjörsamlega vanhæfur í embætti forsætisráðherra”
| Mynd: Sendiráð Bretlands í Tokyo Japan

Í pistil Hastings, sem ber heitið Ég var rit­sjóri Boris Johnson. Hann er gjör­sam­lega van­hæfur í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra, segir hann Íhalds­flokk­inn vera við það að neyða smekklausan og þreyttan brand­ara upp á breskan almenn­ing. „Ég kynnt­ist Johnson á níunda ára­tugnum. Þá var ég rit­sjóri Daily Tel­egraph og hann frétta­rit­ari blaðs­ins í Brussell,” skrifar Hastings. „Ég hef alltaf sagt að þó borg­ar­stjóra­tíð hans í London hafi haft visst skemmt­ana­gildi þá er hann óhæfur í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Það eina sem skiptir Johnsson máli er að við­halda eigin frægð og frama.”

Aðgreinir ekki sannleika og lygi

„Johnson getur ekki gert grein­ar­mun á sann­leika og lygi, hvorki í sínu per­sónu­lega lífi né því póli­tíska.” Hastings vitnar í Bishop Berkeley, írskan heim­spek­ing sem var uppi á fyrri hluta 18. aldar: „Maður sem er falskur við vini sína og nágranna getur ómögu­lega verið heið­ar­legur við þjóð sína.” Hastings bendir á að aðeins þau sem ekki þekki Johnson telji hann vera góðan mann.

Hastings ber Boris og Jeremy Corbyn, for­mann Verka­flokks­ins, saman og segir Corbyn heið­ar­legri en líkt og í Johnson blundi rang­hug­myndir í honum um eigin mik­il­feng­leika. Þá gæti Corbyn mögu­lega unnið hann í næstu kosn­ingum. „For­sæt­is­ráð­herra­tíð Johnson getur spannað þrjú til fjögur ár. Hann mun staul­ast frá einu hneyksl­is­máli til ann­ars þar sem Brexit verður ekki það eft­ir­minni­leg­asta.”

„Sigur Johnson hefur þá þýð­ingu fyrir mörg okkar að Bretland hafi ein­fald­lega vikið frá sjálfs­mynd sinni sem alvöru­gefnu þjóð­ríki” Hann bendir á að fólk hafi ekki gert sér í hug­ar­lund hversu skelfi­legur for­sæt­is­ráð­herra Theresa May yrði fyrr en eftir að hún tók við emb­ætt­inu. „Í til­viki Boris kemur hann til dyr­anna eins og hann er klæddur. Sá Boris sem við sjáum í dag er örugg­lega sá for­sæt­is­ráð­herra sem við fáum,“ skrifar Hastngs.

Heimurinn betri með Boris sem valdalausan skemmtikraft

„Ef fjöl­skylda Johnson hefði haldið sig við skemmt­ana­brans­ann eins og Osmonds, Marx bræð­urnir og Von Trapp fjöl­skyldan, væri heim­ur­inn betri staður.” Hastings vitnar hér í fjöl­skyldur úr kvik­mynda- og tón­list­ar­heim­inum, ýmist skáld­aðar eða raun­veru­legar. „Íhalds­flokknum verður kennt um það ef Johnson kostar okkur Corbyn,” segir hann og bætir við að mögu­legur sigur Johnson verður ósmekk­legur brand­ari á herðum bresks almenn­ings. „Almenn­ingur mun ekki hafa húmor fyrir þessu lengi.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“