„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ásmundur Einar: Ekkert óeðlilegt við það að skipa nefndir pólitískt

Ásmundur Einar: Ekkert óeðlilegt við það að skipa nefndir pólitískt

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur stýrt félags­mála­ráðu­neyt­inu í 17 ár, frá árinu 1997. Fjöl­margir aðilar tengdir flokknum gegna trún­að­ar­störfum fyrir ráðu­neytið.

Í sam­tali við Kjarnann segir Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra að þegar um er að ræða nefndir, ráð og hópa á vegum ráðu­neyt­is­ins sem taka stefnu­mót­andi ákvarð­anir sem tengj­ast póli­tík þá séu for­menn nefnd­anna póli­tískt skip­aðir. „Þegar póli­tískar nefndir eru skip­aðar þá er horft til þess að skipa þær póli­tískt, það er ekk­ert óeðli­legt við það,“ segir Ásmundur Einar.

Hann segir aftur á móti að þegar um er að ræða nefndir sem ekki marka póli­tíska stefnu þá séu þær yfir­leitt skip­aðar emb­ætt­is­mönnum. Aðspurður seg­ist hann þó ekki vita í fljótu bragði hversu margar nefndir af þeim 70 sem eru á vegum ráðu­neyt­is­ins séu svo­kall­aðar póli­tískar nefndir en sagði jafn­framt að hægt væri að fara yfir það ef þess væri óskað.

Stefna að auknu gagn­sæi í allri stjórn­sýsl­unni
Í rík­is­stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar segir að í nýrri rík­is­stjórn munu flokkar sem spanna „hið póli­tíska lit­róf allt frá vinstri til hægri“ freista þess að slá nýjan tón, ein­henda sér í þau lyk­il­verk­efni sem koma Íslandi í fremstu röð og búa þannig um hnút­ana að hér verði gott að lifa og starfa fyrir unga sem aldna.

„Óvenju­legar aðstæður kalla á breytt vinnu­brögð, opn­ari stjórn­sýslu, gagn­sæi og virð­ingu gagn­vart verk­efnum. Það er vilji flokk­anna sem nú taka þátt í sam­starfi um rík­is­stjórn og efl­ingu Alþingis að nálg­ast verk­efnin með nýjum hætti í þágu alls almenn­ings í land­inu, ekki síst með því að styrkja Alþingi með mark­vissum hætti og auka áhrif þess,“ segir í sátt­mál­anum.

Enn fremur er tekið fram að stefna þurfi að stöð­ug­leika til lengri tíma og auka gagn­sæi í athafna­lífi og allri stjórn­sýslu til að efla traust almenn­ings á rekstri fyr­ir­tækja, fjár­mála­lífi, stjórn­málum og stofn­unum sam­fé­lags­ins. „Frá efna­hags­hrun­inu hefur náðst marg­vís­legur árangur en enn skortir á þá félags­legu sátt sem þjóðin hefur lengi kallað eftir. Að henni þarf að vinna.“

Í nýlegri könnun MMR frá 3. maí 2019 um hvað veldur lands­mönnum mestum áhyggjum kom fram að líkt og síð­ustu þrjú ár voru það spill­ing í fjár­málum og/eða stjórn­málum sem reynd­ist vera eitt af helstu áhyggju­völdum þjóð­ar­innar. Alls svör­uðu 44 pró­sent lands­manna að spill­ing í fjár­málum og/eða stjórn­málum valdi þeim mestum áhyggjum í síð­ustu könnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Framsóknarflokkur

Sigurðu Ingi segir ekki hafa tekist að sannfæra meirihluta þjóðarinnar um fyrirvara við þriðja orkupakkann
Innlent

Sigurðu Ingi segir ekki hafa tek­ist að sann­færa meiri­hluta þjóð­ar­innar um fyr­ir­vara við þriðja orku­pakk­ann

„Þrátt fyrir álit fjöl­margra lög­spek­inga þá hefur ekki náðst að sann­færa meiri­hluta þjóð­ar­innar um að nóg sé að gert með þeim fyr­ir­vörum sem kynntir hafa ver­ið,“ skrifar Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu – og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, í aðsendri grein á Kjarn­anum . „Hefur rík­is­stjórnin reynt að koma til móts við þá sem harð­ast hafa gagn­rýnt pakk­ann með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem og fleiru sem á að taka af allan vafa um að orku­auð­lindir Íslands verði undir yfir­ráðum Íslend­inga og engra ann­arra.“
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“