Einfaldasta og jafnframt ein ljúffengasta leiðin er að steikja þá í smjöri með hvítlauk og lauk. Slík blanda er hnossgæti með góðri steik.
Tilbrigði við sama þema eru steiktir sveppir með hvítlauk og parmesan. Þannig sveppi má bera fram með lasagna, gnocci eða sem forrétt á ítölsku brauði.
Sveppir eru gjarnan fylltir og þá með osti, hökkuðum stilkunum og einhvers konar öðru grænmeti. Hvaða fylling sem er getur gengið og er í raun aðeins takmarkað við ímyndunarafl kokksins hvað er sett í sveppahattinn.
Sjá einnig: Dásamlegur risotto-réttur með sveppum















Athugasemdir