„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heillandi lífrænn heimur í Vallanesi

Vallanes á Fljóts­dals­hér­aði í Valla­hreppi er sann­kölluð para­dís. Vallanes á sér langa sögu og ná heim­ildir um búsetu aftur til tólftu aldar.

Heillandi lífrænn heimur í Vallanesi

Í Valla­nesi í dag fer fram líf­ræn ræktun á korni og græn­meti, full­vinnsla og fram­leiðsla til­bú­inna mat­væla sem grund­vall­ast á hrá­efni sem ræktað er. Þar er einnig umfangs­mikil skóg­rækt en á jörð­inni hefur verið plantað fjölda trjáa og skjól­belta. Mark­miðið er að rækta og nýta hrá­efni úr nán­asta umhverfi.

Móðir Jörð heitir holl­ustu- og sæl­kera­lína þeirra í Valla­nesi og grund­vall­ast hún á íslensku korni, græn­meti og jurtum. Hrein­leiki er lyk­il­at­riði í ræktun og fram­leiðslu í Valla­nesi þar sem ekki er not­aður til­bú­inn áburður eða eit­ur­efni. Mat­vör­urnar eru auk þess lausar við til­búin hjálp­ar­efni, gervi- og lit­ar­efni sem er aldeilis í takt við þá þróun sem er að eiga sér stað svo víðs vegar um heim­inn. Umhverf­is­væn fram­leiðsla og ræktun er fram­tíðin sem við viljum sjá. Þess má geta að allar vörur frá Valla­nesi bera vott­un­ar­merki Vott­un­ar­stof­unnar Tún um alþjóð­lega við­ur­kennda fram­leiðslu­hætti um líf­ræna ræktun og fram­leiðslu.

Hjón með hugsjónir

Hjónin Eymundur Magn­ús­son og Eygló Björk Ólafs­dóttir eru bændur í líf­rænni ræktun, hann er búfræð­ingur að mennt og starf­aði að loknu námi erlendis við búrekstur; í Bret­landi, Svíþjóð og Noregi. Eymundur hlaut Land­bún­að­ar­verð­launin árið 2004 fyrir notkun á skjól­beltum og skóg­rækt í land­bún­aði og heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu fyrir frum­kvæði á sviði búskap­ar­hátta og mat­væla­menn­ingar árið 2011.

Hjónin Eymundur Magn­ús­son og Eygló Björk Ólafs­dóttir

Árið 2012 var hann til­nefndur til Umhverf­is­verð­launa Norð­ur­land­anna m.a. fyrir að leggja áherslu á mann­legan fjöl­breyti­leika en ár hvert starfa hjá honum ungir sjálf­boða­liðar og mynda þannig alþjóð­legan félags­skap sem er trúr jörð­inni og lærir að sýna umhverfi sínu virð­ingu. Eygló er við­skipta­fræð­ingur og er hún er einn af stofn­endum Slow Food- hreyf­ing­ar­innar á Íslandi og einnig for­maður VOR; Verndun og ræktun, sem er félag líf­rænna fram­leið­enda.

Einstakt hús úr öspum

Húsið í Valla­nesi, er kallað Asp­ar­húsið og vekur athygli fyrir þær sakir að þetta mun lík­lega vera fyrsta húsið sem vitað er til að sé reist ein­göngu úr íslensku timbri. Aspir sem uxu í Valla­nesi voru nefni­lega aðal­lega not­aðar í hús­bygg­ing­una en einnig lerki og greni. Sami efni­við­ur­inn var svo not­aður í inn­rétt­ingar og hús­gögn sem skapar áhuga­verða heild.

Aspirnar voru gróð­ur­settar fyrir 30 árum og timbrið í húsið var unnið hjá Skóg­ræk­inni á Hall­orms­stað og hjá Skóg­ar­af­urðum ehf. á Ytri-Víði­völlum í Fljóts­dal. Húsið er sér­lega heill­andi og það er án efa gaman að sjá tré sem Eymundur plant­aði sjálfur fyrir um 30 árum síðan verða að húsi. Húsið hýsir verslun Móður Jarðar þar sem í boði eru ýmsar líf­rænar mat- og heilsu­vörur sem fram­leiddar eru á staðnum úr íslensku hrá­efni, sem og ferskt græn­meti.

Asp­ar­húsið er að miklu leyti úr asp­ar­viði sem hefur langar trefjar og er því sterkur. Þetta er við­ur­kenndur smíða­viður í burð­ar­virki húsa.
Mynd / Áslaug Snorra­dóttir

Í Valla­nesi er boðið upp á stað­bund­inn morg­un­verð úr íslensku byggi og létta græn­met­is­rétti í hádeg­inu úr fersku, íslensku og úti­rækt­uðu græn­meti. Eymundur og Eygló rækta líf­rænt bygg og alls kyns græn­meti og fram­leiða fjöld­ann allan af vörum í Valla­nesi undir vöru­merk­inu Móðir Jörð og við hvetjum alla sem eiga leið hjá að líta við hjá þeim og smakka líf­rænt rækt­aða holl­ustu beint frá bændum. Það er heill­andi og skemmti­legt!

Þess má geta að Asp­ar­húsið í Valla­nesi er opið frá 9-18 virka daga, opið alla daga júní-ágúst. Er ekki til­valið að skella sér í sumar?

Myndir / Áslaug Snorra­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Óvæntur leynigestur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ
Menning

Óvæntur leynig­estur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ

Erpur Eyvind­ar­son rapp­aði fyrir vini sína í Sri Lanka en bauð svo upp á stór­glæsi­legan leynig­est. Sverrir Þór Sverr­is­son, eða Sveppi eins og hann er iðu­lega kall­aður, tróð óvænt upp með Erpi Blazroca Eyvind­ar­syni í veislu erlendis, senni­lega á Sri Lanka en Erpur hefur und­an­farið unnið sem leið­sögu­maður hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Crazy Puffin, sem sér­hæfir sig í ferðum til landa sem...
Björn sá merkilegt skilti á Máritíus: „Fallegt á síðasta degi ársins“
Menning

Björn sá merki­legt skilti á Máritíus: „Fallegt á síð­asta degi árs­ins“

Björn Þor­láks­son sá fal­lega sýn í gær á ferða­lagi sínu á Máritíus-eyrík­inu. Rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Björn Þor­láks­son er á ferða­lagi undan ströndum Afríku þessa dag­ana en í gær birti hann ljós­mynd af skilti sem hann sá á alþjóða­flug­vell­inum í höf­uð­borg Máritíus, en þar er bent á sér­stakt bæna­her­bergi, þar sem ekki er spurt um trú heldur geta allir þeir sem...
Skelkaðir farþegar skemmtiferðaskips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND
Heimur

Skelk­aðir far­þegar skemmti­ferða­skips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND

Skelf­ingu lostnir far­þegar skemmti­ferða­skips sendu „kveðju­skila­boð“ til ást­vina af ótta við að þeir myndu „deyja eins og á Titanic“ þegar risa­stormur velti skip­inu í „45 gráður“. Dan So var að yfir­gefa Bar-Svar (e. Pub-Quiz) um borð í skemmti­ferða­skip­inu Royal Caribbean sem sigldi frá Spáni til Miami í Banda­ríkj­unum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag [7. nóv.] þegar hann heyrði „öskrur og glös brotna“. Hinn...
Tásumyndir Siggu Daggar setja internetið á hliðina – Nýtur lífsins með eiginmanninum á Ítalíu
Menning

Tásu­myndir Siggu Daggar setja inter­netið á hlið­ina – Nýtur lífs­ins með eig­in­mann­inum á Ítalíu

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur og eig­in­maður hennar Sævar Eyj­ólfs­son njóta nú lífs­ins í Ítal­íu­sól­inni en hægt er að fylgj­ast með ferða­lagi þeirra á Instagram. Sigga Dögg er skemmti­lega opinn ein­stak­lingur og deilir ævin­týrum sínum með fylgj­endum sínum á Instagram en nýj­ustu ljós­myndir hennar hafa nán­ast sett inter­netið á hlið­ina. Um er að ræða „skyldu tásu­myndir“ eins og hún orðar það...
Glæsileg Dorrit fékk sér sundsprett í miðju þrumuveðri – MYNDBAND
Menning

Glæsileg Dorrit fékk sér sund­sprett í miðju þrumu­veðri – MYNDBAND

Dorrit Moussaieff nýtur lífs­ins á Indlandi um þessar mundir en hún birti í dag mynd­skeið þar sem hún sést fá sér sund­sprett á þaki hót­els í miðju þrumu­veðri. Fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands, Dorrit Moussaieff hefur efni á að ferð­ast og gerir það óspart. Ef marka má myllu­merki hennar á ýmsum Instagram-færslum hennar und­an­farið hefur hún meðal ann­ars notið lífs­ins á Grikk­landi,...
Gjörbreytt Bríet brillerar í Köben með Hr. Hnetusmjöri
Menning

Gjör­breytt Bríet brill­erar í Köben með Hr. Hnetu­smjöri

Bríet Ísis Elfar skellti sér til kóngs­ins Köben á dög­unum ásamt fríðu föru­neyti, þar á meðal Hr. Hnetu­smjöri en til­efnið var gigg í borg­inni en tón­leik­arnir þóttu takast afar vel. Skæl­bros­andi Brí­et­Mynd: Instagram-sjá­skot Söngdívan Bríet birti ljós­myndir og mynd­skeið á Instagram frá ferð­inni en þar sést hún með glæ­nýjan hára­lit og má segja að hún sé nær óþekkj­an­leg með dökku...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður