„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Genki Instruments hlaut Hönnunarverðlaun Íslands

Genki Instru­ments hlaut í gær­kvöld Hönn­un­ar­verð­laun Íslands 2019 sem afhent voru við hátíð­lega athöfn í Iðnó. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra afhenti verð­launin. Genki Instru­ments hlaut aðal­verð­launin fyrir Wave hring­inn sem hann­aður er til að auka upp­lifun og túlkun í tón­list.

Genki Instruments hlaut Hönnunarverðlaun Íslands

Í áliti dóm­nefndar segir meðal ann­ars að Genki Instru­ments sé fram­sækið og hönn­un­ar­drifið tón­list­ar­tækni­fyr­ir­tæki þar sem hönnun, tækni, verk­fræði og tón­list renna saman í eitt. Að fyr­ir­tæk­inu standa Ólafur Bogason, Haraldur Þórir Hugosson, Jón Helgi Hólm­geirs­son og Daníel Grét­ars­son.

„Wave er ein­stakt dæmi um fram­sækna hug­mynd frum­kvöðla­fyr­ir­tækis þar sem rann­sókn, þróun og próf­anir í gegnum allt hönn­un­ar­ferlið skilar alger­lega nýrri upp­lifun til not­enda sem hefur hlotið lof víða um heim,“ segir jan­framt í áliti dóm­nefnd­ar­innar.

Omnom súkkulaði­gerð hlaut verð­launin Besta fjár­fest­ing í hönnun 2019. Mynd/Aldís Páls­dóttir

Einnig voru veitt verð­laun fyrir bestu fjár­fest­ingu í hönnun 2019 og var það Onmnom súkkulaði­gerð sem hlutu þau verð­laun að þessu sinni en Omnom fram­leiðir hand­gert súkkulaði. Fyr­ir­tækið var stofnað af Kjartani Gísla­syni og Óskari Þórð­ar­syni árið 2013 og hefur síðan þá lagt kapp sitt á að bjóða neyt­endum upp á gæði og góða upp­lifun. Árangur fyr­ir­tæk­is­ins und­ir­strikar einnig mik­il­vægi hönn­unar sem þátt í verð­mæta­sköpun. Í umsögn dóm­nefndar segir:

„Ferlið á bak við vöru­þróun er spenn­andi en Omnom hefur frá byrjun unnið með hönn­uðum í öllu fram­leiðslu­ferl­inu að heild­rænni vöru­upp­lifun, hvort sem það er súkkulaðið sjálft eða með vand­aðri hönnun á umbúðum og fram­setn­ingu í versl­unum. Slík sam­vinna í öllu ferl­inu er skýrt dæmi um hvernig hönnun getur haft afger­andi áhrif á vaxt­ar­sögu og vel­gengni fyr­ir­tækis.“

Manfreð Vil­hjálms­son arki­tekt hlaut Heið­ursverð­laun Hönn­un­ar­verð­launa Íslands 2019. Mynd/Aldís Páls­dóttir

Í fyrsta sinn voru veitt Heið­ursverð­laun Hönn­un­ar­verð­launa Íslands sem Manfreð Vil­hjálms­son arki­tekt hlaut. Manfreð er einn ást­sæl­asti arki­tekt Íslands og hefur hann markað djúp spor í sögu arki­tekt­úrs á Íslandi eins og fram kemur í áliti dóm­nefnd­ar­innar.

„Hönnun og bygg­ingar Manfreðs Vil­hjálms­sonar eru meðal bestu dæma um góðan arki­tektúr á Íslandi en verkin bera vitni um vand­aða hönnun og arki­tektúr þar sem efni, form og sam­hengi skapa eina órjúf­an­lega heild.“

Í álit­inu er einnig minnst á ein­stakan starfs­feril Manfreðs sem spannar yfir 60 ár og end­ur­speglar hann áræðni í fjöl­breyttum verk­efnum og metn­að­ar­fulla list­ræna og fag­lega sýn. Þar segir jafn­framt:

„Eftir Manfreð liggur fjöldi tíma­móta­verka sem bera vott um ein­staka hæfni til að takast á við marg­vís­legar áskor­anir stað­hátta og upp­bygg­ingar í ungu sam­fé­lagi.“

Hönn­un­ar­verð­laun Íslands hafa verið veitt árlega frá árinu 2014 og varpa þau ljósi á mik­il­vægi og gæði hönn­unar og arki­tekt­úrs á Íslandi en einnig beina þau sjónum að því besta sem gert er á sviði hönn­unar og arki­tekt­úrs um leið og ein­staka hönn­uðum eða hópum hönn­uða er veitt mik­il­væg við­ur­kenn­ing. Að verð­laun­unum standa Hönn­un­ar­mið­stöð Íslands í sam­starfi við Hönn­un­ar­safn Íslands og Lista­há­skóla Íslands með stuðn­ingi frá Lands­virkjun og Samtökum Iðn­að­ar­ins.

Í dóm­nefnd­inni í ár sátu Guðrún Lilja Gunn­laugs­dóttir, for­maður dóm­nefndar og hönn­uður, Hörður Lárusson, graf­ískur hönn­uður, Sigrún Birg­is­dóttir, arki­tekt, Sigrún Halla Unn­ars­dóttir, fata­hönn­uður, Daniel Golling sýn­ing­ar­stjóri sænska arki­tekt­úr­safns­ins og Edda Björk Ragn­ars­dóttir frá Samtökum Iðn­að­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður