„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Undrast lítil viðbrögð á Íslandi í plastbarkamálinu

Bo Lindquist, marg­verð­laun­aður blaða­maður sem varð frægur fyrir þætti sína Experimenten, segir að plast­barka­ígræðslur skurð­lækn­is­ins Paolo Macchiarinis, sem teygði sig til Íslands, hafi nán­ast sett sænska þjóð­fé­lagið á hlið­ina.

Undrast lítil viðbrögð á Íslandi í plastbarkamálinu
|

Bo, eða Bosse Lindquist eins og hann er ávallt kall­aður, segir að upp­ljóstr­arar í mál­inu hafi verið með­höndl­aðir með skelfi­legum hætti og þakkar þeim að málið var að lokum upp­lýst. Hann á von á að Macchiarini og Karol­inska-sjúkra­hús­inu verði gert að greiða bætur en Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lists­nefnd Alþingis hefur einnig málið til skoð­unar.

Bosse hlaut verð­laun fyrir þætti sína Experimenten sem afhjúp­uðu plast­barka­ígræðslur ítalska skurð­lækn­is­ins Paolo Macchiarinis á Karol­inska-sjúkra­hús­inu. Í við­tali við Mannlíf reifar hann ýmis atriði sem ekki hafa áður komið fram er snerta eitt helsta hneyksl­is­mál í lækna­vís­indum seinni tíma, plast­barka­ígræðslur Macchiarinis. Von er á úrskurði frá sér­stökum sak­sókn­ara í Svíþjóð um það hvort lögð verði fram ákæra vegna aðgerða sem voru gerðar á Karol­inska-sjúkra­hús­inu og varða þrjá ein­stak­linga, þar á meðal fyrsta plast­barka­þeg­ann sem var sendur frá Íslandi.

Öllum uppljóstrurum refsað

Er ekki vand­kvæðum bundið fyrir blaða­menn að fá upp­lýs­ingar um það sem miður fer á stofn­unum eins og sjúkra­húsum og í heil­brigð­is­kerf­inu, er fyr­ir­staðan of mikil?

Bosse segir að mál innan heil­brigð­is­geirans geti verið flókin og erfið og geti þ.a.l. reynst blaða­mönnum, sem leita upp­lýs­inga, hindrun. Í til­felli plast­barka­ígræðsl­anna hafi það verið skylda sín og blaða­manna að kafa ofan í málið.

„Það var skylda okkar við almenn­ing og þar fylgdum við grunn­gildum blaða­mennsk­unnar,“ segir hann. Bosse minnir á að á sjúkra­stofn­unum hafi læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar skyldum að gegna gagn­vart sjúk­lingum sínum og þeim beri að vernda frið­helgi þeirra. Hins vegar hafi það verið stjórn Karol­inska-stofn­un­ar­innar og Karol­inska-sjúkra­húss­ins ásamt yfir­mönnum hlut­að­eig­andi deilda sem veittu and­stöðu en þeir gerðu sína eigin rann­sókn á plast­barka­ígræðslu­mál­inu og voru ásak­aðir um að reyna lengi vel að þagga málið.

„Við skulum ekki gleyma því að ef upp­ljóstr­ar­arnir hefðu ekki sagt frá grun­semdum sínum þá hefðum við ekk­ert vitað. Við átt­uðum okkur ekki á hvað var að ger­ast í fyrstu en þegar við gerðum það og sáum hvað var að ger­ast og hve slæmt það þá var það skylda mín, og okkar sem blaða­manna, að vinna að mál­inu og upp­ýsa almenn­ing um það. Alvar­leiki máls­ins var slíkur að ekki var hægt að snúa við.“

Bosse telur að það sé mjög erfitt að fá lækna og starfs­fólk sjúkra­húsa til að til­kynna alvar­leg frá­vik, þeim sé jafn­vel refsað fyrir slíkt. Þvert ofan í vilja­yf­ir­lýs­ingar, það sanni dæmin.

Bosse hlaut verð­laun fyrir þætti sína Experimenten sem afhjúp­uðu plast­barka­ígræðslur ítalska skurð­lækn­is­ins Paolo Macchiarinis á Karol­inska-sjúkra­hús­inu.

„Læknum sem benda á það sem miður fer í heil­brigð­is­þjón­ustu eða inni á spít­ölum er hrein­lega refsað þvert á yfir­lýs­ingar stofn­ana oft um annað. Ég hef hitt fleiri upp­ljóstr­ara eftir Macchiarini-hneykslið og þeim hefur öllum verið refsað,“ segir hann alvar­legur.

„En við höfðum heppn­ina með okkur. Við vorum lánsöm að finna heim­ild­ar­menn utan Karol­inska-sjúkra­húss­ins sem gátu aðstoðað okkur. Við urðum að fara aðrar leiðir til að fá upp­lýs­ingar sem skiptu máli, til dæmis hjá ætt­ingjum og öðrum sem gátu hjálpað okkur og fengið þannig vit­neskju um hvernig plast­bark­arnir virk­uðu í raun og veru. Þessar upp­lýs­ingar voru lyk­ill­inn í að upp­lýsa þetta mál, þar komu allt önnur sjón­ar­mið fram en höfðu komið fram áður. Svo voru líka læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem hjálp­uðu okkur því þetta fólk vildi líka leiða sann­leik­ann í ljós,“ upp­lýsir Bosse.

Sterk viðbrögð við plastbarkaígræðslunum í Svíþjóð

Bosse segir að Svíar hafi tekið það mjög alvar­lega þegar Karol­inska-sjúkra­húsið og Karol­inska-stofn­unin, hvoru­tveggja burð­ar­stofn­anir í sænsku þjóð­fé­lagi, hafi brugð­ist trausti fólks með fram­kvæmd til­rauna­að­gerða á fólki. Málið hafi sett sænskt þjóð­fé­lag nán­ast á hlið­ina.

„Plast­barka­ígræðsl­urnar höfðu gríð­ar­leg áhrif á almenn­ing í Svíþjóð og traust fólks til Karol­inska-sjúkra­húss­ins og Karol­inska-stofn­un­ar­innar. Fólk var í sjokki. Þessar plast­barka­ígræðslur áttu sér stað innan sænska heil­brigð­is­kerf­is­ins og á okkar aðalspít­ala þar sem fólk er veikt og getur illa varið sig. Í þessu máli brugð­ust lyk­il­stofn­anir trausti sjúk­linga og almenn­ings og það hafði mjög mikil áhrif á fólk,“ segir Bosse.

„Fólk var í sjokki. Þessar plast­barka­ígræðslur áttu sér stað innan sænska heil­brigð­is­kerf­is­ins og á okkar aðalspít­ala þar sem fólk er veikt og getur illa varið sig.“

Hann líkir við­brögðum fólks í Svíþjóð við það sem gerð­ist hér á landi í hrun­inu. Fólk hafi alls staðar rætt þetta mál, í versl­unum og á kaffi­húsum, og að hann hafi ítrekað verið stöðv­aður á almanna­færi til að ræða það. „Það varð samt engin Bús­á­halda­bylt­ing,“ segir hann og brosir.

Slíku var hins vegar ekki fyrir að fara hér á landi og Bosse undr­ast hve lítil umræða átti sér stað hér um plast­barka­málið í ljósi þess að fyrsti sjúk­ling­ur­inn kom héðan. „Það er und­ar­legt því að til að mynda er íslenska rann­sókn­ar­skýrslan sú vand­að­asta sem ég hef séð um málið, þar er að finna nákvæma lýs­ingu á því sem átti sér stað.“

Mörgum spurn­ingum er samt ósvarað að hans mati. „Hvers vegna var upp­lýs­ingum frá Íslandi um að Andemariam Beyene versn­aði stöðugt ekki komið til þeirra lækna sem tóku þátt í aðgerð­inni og voru með­höf­undar á vís­inda­grein­inni um þessa fyrstu plast­barka­ígræðslu? Sjúk­ling­ur­inn þurfti stoð­net til að halda loft­veg­inum opnum, fáum mán­uðum eftir aðgerð­ina. Þeir vissu því ekk­ert um versn­andi ástand Beyne. Kannski var ástæða fyrir því að ekki var vakin á þessu athygli en það er lág­mark að menn skýri frá hvers vegna lækn­arnir voru ekki látnir vita.“

Bosse segir að æxlið í barka Beyene hafi verið mjög lítið þegar hann kom á Karol­inska-sjúkra­húsið. „Hamsten, fyrr­ver­andi rektor Karol­insku-stofn­un­ar­innar, sagði þegar ég spurði hann, að upp­lýs­ingar um krabba­meinið væru ekki til en annað kom á dag­inn. Með hjálp meina­fræð­inga á spít­al­anum fund­ust upp­lýs­ingar um það. Af sýn­inu mátti ráða að vel hefði verið hægt að með­höndla krabba­meinið. „Það var mjög lítið eftir af mein­inu,“ segir Bosse.

Reyndu að hvítþvo sig af málinu

Bosse telur að á Karol­inska-stofn­un­inni hafi að öllum lík­indum verið von um að hreppa Nóbels­verð­laun fyrir nýj­ungar í lækn­is­fræði sem voru plast­barka­ígræðsl­urnar. „Ég held að innan Karol­inska-stofn­un­ar­innar hafi leynst von um að fá Nóbels­verð­laun í lækn­is­fræði, sem höfðu ekki komið til stofn­un­ar­innar í mjög mörg ár og Macchiarini var kandídat­inn til að hreppa þau með þessum aðgerðum,“ segir Bosse, „en sú von fór á annan veg.“

Síðar reyndu yfir­stjórnir Karol­inska-sjúkra­húss­ins og Karol­inska-stofn­un­ar­innar að hvít­þvo sig af plast­barka­ígræðslu­mál­inu.

Dr. Anders Hamsten, rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar, kall­aði svo á utan­að­kom­andi sér­fræð­ing, dr. Bengt Gerdin, pró­fessor emer­ítus við Uppsala-háskóla, til að rann­saka málið og það var látið niður falla, hvers vegna var það?

„Í sann­leika sagt von­uðu for­ráða­menn Karol­inska-stofn­un­ar­innar að Gerdin myndi hvít­þvo stofn­un­ina af því sem átt hafði sér stað en hann er vand­aður maður og gerði það ekki. Og nið­ur­staða Gerdins kom þeim í opna skjöldu, þeir vissu ekki hvað þeir áttu að gera við skýrsl­una. Gerdin sagði að um væri að ræða vís­inda­legt mis­ferli og að sjúk­lingar sem geng­ust undir plast­barka­ígræðslu hefðu lík­lega þjáðst hræði­lega. Hann fann marg­vís­leg sönn­un­ar­gögn sem studdu það,“ segir Bosse með áherslu. Þegar for­ráða­menn Karol­inska-stofn­un­ar­innar sáu skýrsl­una tóku þeir ákvörðun um að hafna henni, sögðu það byggt á nýjum upp­lýs­ingum sem Gerdin hefði ekki haft aðgang að. Gerdin var ekki gefið annað tæki­færi til að skoða þessi gögn eða koma með athuga­semdir við and­mælum Macchiarinis og sam­starfs­manna hans,“ segir Bosse aug­ljós­lega undr­andi.

Bosse seg­ist hafa hitt Macchiarini skömmu síðar og að hann hefði tjáð sér að nú gæti hann haf­ist handa aftur, það væru sjúk­lingar sem biðu í Brasilíu og á fleiri stöðum. „Það hefði verið hræði­legt ef hann hefði farið þangað og til fleiri staða til að fram­kvæma plast­barka­að­gerðir,“ segir Bosse alvar­legur í bragði.

Hvernig hefur verið brugðist við í þessu máli?

Telurðu að á end­anum hafi við­brögð við mál­inu í Svíþjóð verið full­nægj­andi til að lag­færa vanda innan kerf­is­ins?

„Ég held að það hafi ekki verið nóg gert en það sem var gert var með þeim hætti að almenn­ingur sér að þeir voru ein­ungis að reyna að bjarga eigin skinni. Fólk er ekki heimskt, það sá í gegnum það að stjórnir spít­al­ans og stofn­un­ar­innar reyndu að bjarga sjálfum sér, þeir sögðu ósatt þannig að fólki fannst þeir vera hálf­gerðir glæpa­menn.“

Hann segir að traust almenn­ings á Karol­inska-sjúkra­hús­inu hafi minnkað veru­lega. „Fólk treystir ekki Karol­inska-sjúkra­hús­inu.“

Bosse segir að þó hafi ýmis­legt verið gert til að koma hlut­unum á lygnan sjó aftur.

„Ýmislegt hefur reyndar verið gert en ekki nóg. En fólk hefur ekki verið rekið, það hefur ein­ungis verið fært til. Í tvö og hálft ár héldu þeir hlífi­skildi yfir Macchiarini. Í stað þess að við­ur­kenna mis­tökin var reynt að breiða yfir þau. Til að mynda hefur aldrei verið skoðað hvers vegna for­ráða­menn Karol­inska-sjúkra­húss­ins og Karol­inska-stofn­un­ar­innar hrein­lega lugu svona lengi um það sem átti sér stað. Upp­ljóstr­arnir sem misstu störf sín hjá Karol­inska-sjúkra­hús­inu eru hund­eltir, leitað eftir öllum mis­tökum sem gætu mögu­lega hafa átt sér stað hjá þeim og þeir hafa aldrei verið beðnir afsök­unar. Um leið og ein­hver þeirra fjög­urra gerir minnstu mis­tök, er ein­hver sem til­kynnir það og í kjöl­farið vaknar spurn­ing um hvort sá sem í hlut á eigi að halda sinni stöðu eða hvort eigi að reka hann.“

„Til að mynda hefur aldrei verið skoðað hvers vegna for­ráða­menn Karol­inska-sjúkra­húss­ins og Karol­inska-stofn­un­ar­innar hrein­lega lugu svona lengi um það sem átti sér stað.“

Nú hefur komið fram í skýrslum að siða­reglur hafi ekki verið virtar af starfs­fólki í þessu máli, hefur það breyst?

„Ég tel að læknar og annað starfs­fólk virði almennt siða­reglur í störfum sínum en það hafa verið brestir og yfir­stjórn sjúkra­húss­ins sinnti þessum mik­il­væga þætti örugg­lega ekki nógu vel. Margir ungir læknar eru reiðir vegna þess hve illa siða­reglur voru snið­gengnar. Þeir hafa sett sig í sam­bandi við mig, eru hneyksl­aðir og vilja leggja sitt af mörkum til að bæta þennan mik­il­væga þátt í störfum sínum. Kannski eru breyt­ingar að eiga sér stað.

Ég held að fólk sé svo með­vitað í dag að það reynir að hafa í heiðri siða­reglur sem leiða til vand­aðra vinnu­bragða.“

Engar bætur verið greiddar

Hvað með ætt­ingja þeirra sem fóru í plast­barka­að­gerð­irnar og eru látnir, hafa þeir fengið bætur? „Nei, það hefur ekk­ert verið gert fyrir aðstand­endur þeirra sem fóru undir hníf­inn hjá Macchiarini.“

Aðspurður seg­ist Bosse von­ast til og telja að bæði Macchiarini og Karol­inska-sjúkra­húsið verði gert að greiða bætur. „Ef það verður raunin, þá munu verða breyt­ingar til batn­aðar en ef ekki þá mun spít­al­inn hjakka í sama far­inu. Fólk ber ekki traust til spít­al­ans. Og fleira hefur komið til. Kostn­aður við fram­kvæmdir við nýja sjúkra­hús­bygg­ingu hafa farið langt fram úr áætl­unum og nýi spít­al­inn er ekki byggður í sam­ræmi við þarfir, end­ur­skipu­lag á starf­sem­inni skil­aði ekki árangri og spít­al­inn hefur blætt starfs­fólki. Til þess ráðs var svo gripið að ráða nýjan for­stjóra til að koma málum sjúkra­húss­ins aftur í við­un­andi far­veg og var Björn Zoëga, sem var for­stjóri Land­spít­al­ans á erf­iðum tímum eftir hrun, ráð­inn til að stýra því verk­efni sem nú stendur yfir.

Bosse skrif­aði bók um málið sem kom út á síð­ast­liðnu ári. Hann segir að henni hafi verið vel tekið en hann hafi von­ast til, eins og góðum rann­sókn­ar­blaða­manni sæmir, að hún myndi leiða til ein­hvers, ekki síst að stjórn­endur stofn­an­anna sæju að sér. Það hafi ekki orðið, segir hann og brosir. Hann er þó á þeirri skoðun að sá tími komi að mál­inu ljúki á við­un­andi hátt, það sé von á nið­ur­stöðu frá sér­stökum sak­sókn­ara í Svíþjóð og fleira sé fram undan, þetta taki sinn tíma.

Sjá einnig: Ekkja plast­barka­þeg­ans rýfur þögn­ina
Sjá einnig: Plast­barka­málið: Paolo Macchiarini, snill­ingur sem sveifst einskis

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“