„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aðskildir sem ungbörn – hittust fyrir tilviljun eftir nítján ár

Saga af þrí­burum sem sífellt varð skrítn­ari.

Aðskildir sem ungbörn – hittust fyrir tilviljun eftir nítján ár

„Eddy, Eddy, hæ, Eddy, hvernig hef­urðu það,“ hljóm­aði um skól­ann þegar hinn 19 ára Bobby Shafran hóf þar nám árið 1980. Þetta var fyrsti dag­ur­inn hans í þessum skóla og hlýjar mót­tök­urnar greini­lega ætl­aðar ein­hverjum öðrum. Þetta var upp­hafið að magn­aðri sögu af end­ur­fundum bræðra sem höfðu verið aðskildir sem ung­börn og óvæntum upp­götv­unum.

Eddy Galland hafði flosnað upp úr námi og ætl­aði ekki að koma aftur í Sullivan Community College. Það vissi vinur hans, Michael Domnit, sem drap á dyr hjá Bobby í heima­vist­inni. Michael byrj­aði á því að spyrja hvort Bobby hefði verið ætt­leiddur. Svarið var ját­andi og þegar í ljós kom að hann átti afmæli sama dag og Eddy, þurfti ekki frekar vitn­anna við. „Þú átt tví­bura­bróður,“ sagði Michael. Hann lét ekki staðar numið, heldur hringdi heim til Eddys sem brá í brún þegar hann heyrði í Bobby og röddin hljóm­aði eins og hans. Spjall í síma dugði ekki, bræð­urna lang­aði til að hitt­ast svo Bobby og Michael óku heim til Eddys strax eftir sím­talið.

„Þegar dyrnar opn­uð­ust sá ég mitt eigið and­lit stara á mig, allt varð eins og í móðu og aðeins við Eddy þarna,“ sagði Bobby síðar.

Sagan þótti svo mögnuð að hún rataði í fjöl­miðla. Nokkru seinna sat David nokkur Kellmann og las grein um end­ur­fund­ina. Ég er ekki frá því að ég sé sá þriðji, hugs­aði hann. Eddy og Bobby líkt­ust honum ekki aðeins mjög í útliti og höfðu verið ætt­leiddir eins og hann, heldur deildu þeir með honum fæð­ing­ar­deg­inum 12. júlí 1961.

Saga bræðr­anna þótti svo mögnuð að hún rataði í fjöl­miðla.

Í ljós kom að David, Eddie og Bobby voru ein­eggja þrí­burar og höfðu verið ætt­leiddir hálfs árs gamlir hver til sinnar fjöl­skyldu sem fékk ekki að vita að son­ur­inn ætti bræður.

Óaðskiljanlegir

Bræð­urnir urðu strax óað­skilj­an­legir. Þeir voru vin­sælt umfjöll­un­ar­efni í fjöl­miðlum og birt­ust m.a. í spjall­þáttum í sjón­varpi og fengu meira að segja lítið auka­hlut­verk í kvik­mynd­inni Despera­tely Seeking Susan (1985) þar sem þeir áttu að brosa til Madonnu áður en hún gekk inn í bygg­ingu. Þeir leigðu saman íbúð í Queens í New York-borg og árið 1988 stofn­uðu þeir veit­inga­stað í Soho, Triplets Roumanian Steakhouse. Bobby hætti sam­starf­inu nokkrum árum síðar og árið 2000 var staðnum lokað.

Bræð­urnir hittu líf­móður sína í eitt skipti, snemma á níunda ára­tugnum, en hún sýndi ekki áhuga á að hitta þá aftur.

Dullarfulla rannsóknin

Drengirnir fædd­ust á Hillside-sjúkra­hús­inu í Glen Oaks í New York-ríki. Móðir þeirra var mjög ung, hafði orðið ófrísk eftir útskrift­ar­ballið (e. prom). Þeir voru aðskildir sex mán­aða gamlir og ætt­leið­ing­ar­stofan Louise Wise Servises fann þeim heim­ili. Áður en vænt­an­legir for­eldrar fengu þá í hendur var þeim sagt að drengirnir yrðu þátt­tak­endur í nokk­urs konar rútínu­kenndri sál­fræði­rann­sókn og sterk­lega gefið í skyn að þátt­takan væri skil­yrði fyrir ætt­leið­ing­unni.

Þeir ólust upp í New York-ríki, í aðeins rúm­lega 100 kíló­metra fjar­lægð hver frá öðrum. Næstu árin fengu drengirnir og for­eldrar þeirra reglu­lega heim­sóknir frá rann­sókn­arteymi undir stjórn dr. Peters Neubauer barna­sál­fræð­ings sem vann m.a. náið með Önnu, dóttur Sigmund Fraud. Þeir voru látnir púsla og teikna, þrautir lagðar fyrir þá og fylgst með þroska þeirra og getu. Allt var vand­lega skráð og kvik­myndað. Enginn vissi að þetta væri yfir­grips­mikil rann­sókn á fjöl­burum sem voru aðskildir og ætt­leiddir hver í sínu lagi. Rann­sóknin hélt áfram eftir að drengirnir elt­ust en þá var meira fylgst með þeim úr fjar­lægð.

For­eldrar þrí­bu­r­anna voru ólíkir og senni­lega valdir til að hægt væri að rann­saka áhrif mis­mun­andi upp­eldis á dreng­ina. David ólst upp hjá Kellman-hjón­unum sem töld­ust vera af verka­manna­stétt. Faðir hans rak mat­vöru­verslun og var sér­lega hlýr og ást­ríkur maður sem tók bræðrum Davids sem sínum eigin. Bobby var ætt­leiddur af Shafran-hjón­unum úr efri milli­stétt en faðir hans var læknir sem sýndi honum fálæti. Galland-hjónin, úr milli­stétt, ólu Eddy upp en í æsku upp­lifði hann litla umhyggju, að minnsta kosti af hendi föð­ur­ins sem var algjör and­stæða hins hlýja föður Davids.

Allir áttu bræð­urnir við hegð­un­ar­vanda­mál að stríða frá upp­hafi. Þeir tóku van­líð­un­ar­köst og börðu þá höfð­inu í riml­ana í barna­rúmum sínum. Án efa staf­aði það af aðskiln­að­ar­kvíða, vill einn bróð­ir­inn meina. Þeir voru jú saman fyrstu sex mán­uði lífs­ins. David og Eddy voru lagðir inn á geð­deild nokkrum sinnum á ung­lings­árum og Bobby var dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi árið 1978 í tengslum við rán og morð.

„Fólkið sem rann­sak­aði okkur horfði aðgerða­laust á vanda­mál okkar verða stærri og meiri og gerði ekk­ert til að hjálpa. Ég er reið­astur yfir því,“ sagði David í við­tali. „Þau hefðu getað hjálpað okkur en gerðu það ekki.“

Fátt um svör

Á meðan þrí­burarnir nutu lífs­ins og sam­vist­anna ákváðu for­eldrar þeirra að leita svara við þeim fjöl­mörgu spurn­ingum sem höfðu vaknað. Þau heim­sóttu ætt­leið­ing­ar­stof­una og kröfð­ust skýr­inga. Þeim var sagt að ástæða þess að drengirnir voru aðskildir hafi verið sú að erf­ið­ara hefði verið að koma þeim á eitt heim­ili en þrjú. Faðir Davids svar­aði því til að ef þeim hjónum hefði boð­ist að ætt­leiða alla þrjá hefðu þau tekið því fagn­andi. Að öðru leyti var lítið um svör og for­eldr­arnir voru afar ósáttir þegar þeir yfir­gáfu stof­una.

Bræð­urnir fengu lítið auka­hlut­verk í kvik­mynd­inni Despera­tely Seeking Susan (1985).

Pabbi Bobbys gleymdi regn­hlíf sinni og fór aftur inn til að sækja hana. Þegar hann kom inn í fund­ar­her­bergið sá hann að for­svars­fólk stof­unnar hafði opnað kampa­víns­flösku og var að skála hvert við annað, eins og það hefði ein­hvern veg­inn sloppið með skrekk­inn.

For­eldr­arnir vildu ekki gef­ast upp og reyndu að fá aðstoð frá fleiri en einni lög­manns­stofu til að kom­ast til botns í mál­inu en án árang­urs. Mikil leynd hvíldi og hvílir enn yfir þess­ari fjöl­bura­rann­sókn. Nið­ur­stöð­urnar voru aldrei birtar, heldur inn­sigl­aðar til árs­ins 2065 í Yale-háskóla. Þá verða liðin 104 ár frá fæð­ingu þrí­bu­r­anna.

Líklegt verður að telj­ast að fólk sem ætt­leitt var á svip­uðum tíma og þrí­burarnir og aðskilið sem hluti af rann­sókn­inni, eigi sér systur eða bróður ein­hvers staðar þarna úti.

Ástir, gleði og sorgir

Þrí­burarnir stofn­uðu hver sína fjöl­skyldu með tím­anum. David gift­ist Janet og þau eiga dæt­urnar Ali og Reyna. Bobby og Ilena eiga dótt­ur­ina Elyssu og son­inn Brandon, og Eddy og Brenda eign­uð­ust dótt­ur­ina Jamie.

Eddy fór ekki bara verst út úr upp­eld­inu af bræðr­unum, heldur virt­ist hann hafa haft mestu þörf­ina fyrir bræð­urna. Eftir að hann hitti Bobby og David leit hann á þá sem alvöru­fjöl­skyldu sína og vildi vera með þeim öllum stundum. Hann glímdi við and­leg veik­indi og árið 1995 svipti hann sig lífi á heim­ili sínu. Við þetta áfall fjar­lægð­ust Bobby og David hvor annan. Við gerð heim­ilda­myndar um sögu þeirra, Three Indentical Strangers (2018) hitt­ust þeir eftir langan aðskilnað og sam­band þeirra lag­að­ist í kjöl­farið.

Við gerð heim­ilda­myndar um sögu þeirra, Three Indentical Strangers (2018) hitt­ust þeir eftir langan aðskilnað og sam­band þeirra lag­að­ist í kjöl­farið.

Bobby er lög­maður í Brooklyn. David er nýlega frá­skil­inn og vinnur sjálf­stætt sem trygg­inga­sölu­maður. Hann hefur haldið góðu sam­bandi við ekkju Eddys og dóttur. Báðir eru bræð­urnir afar ósáttir yfir því að hafa verið til­rauna­dýr í rann­sókn sem mið­aði að því að aðskilja þá og rann­saka áhrif þess og mis­mun­andi upp­eldis sem hafði án nokk­urs vafa sterk áhrif á líf þeirra.

Eftir langa og stranga bar­áttu fengu þeir loks send skjöl úr rann­sókn­inni en þar var í raun ekk­ert sem gat varpað ljósi á nokkuð. Þetta voru mest mein­lausar athuga­semdir og mynd­brot og þess gætt að það sem hvor bróð­ir­inn fékk tengd­ist aðeins honum einum. Bobby og David hafa ekki gef­ist upp og vona að heim­ilda­myndin verði til þess að fleiri spurn­ingum verði svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu