„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Mér var sagt að ég hefði einstaka náðargáfu sem mér bæri að nota“

Hrönn Trausta­dóttir, ætl­aði aldrei að feta í fót­spor móður sinnar en lífið hag­aði því þannig til að Hrönn vinnur við listir í dag, ásamt því að kenna öðrum teikn­ingu, lita­fræði og hönnun við Tækni­skól­ann.

„Mér var sagt að ég hefði einstaka náðargáfu sem mér bæri að nota“

Hrönn er einka­dóttir Fríðar Ólafs­dóttur, fata­hönn­uðar og sér­fræð­ings í íslenska þjóð­bún­ingnum, en Fríður kenndi einnig textíl­mennt við Kenn­ara­há­skóla Íslands. Hrönn hefur því fetað í fót­spor móður sinnar en auð­vitað einnig farið sínar eigin leiðir í líf­inu sem hefur verið mjög við­burða­ríkt.

Ólst upp í listrænum jarðvegi

Fyrstu tvö árin ólst Hrönn upp í Kópavogi, þá flutti hún ásamt móður sinni og föður til Berlínar en þangað fóru for­eldrar hennar í nám.

„Mamma var að fara í fata­hönnun og pabbi, Trausti Valsson, í arki­tektúr. Seinna sér­hæfði mamma sig í íslenska þjóð­bún­ingnum og kenndi við Kennó og pabbi varð pró­fessor í skipu­lags­fræðum. Ég er einka­barn for­eldra minna sem skildu en síðar eign­að­ist pabbi aðra dóttur þannig að við syst­urnar erum sam­feðra,“ segir Hrönn sem býður blaða­manni upp á blátt blómate. Róandi fag­ur­blátt tevatnið passar vel við stemn­ing­una sem Hrönn er búin að skapa í fal­legri aðstöðu sem hún nefnir Lífs­stöð­ina og er stað­sett í mið­borg Reykja­víkur. Litir skipa stóran sess í lífi Hrannar sem klæð­ist lit­ríkum fal­legum fötum og skreytir umhverfi sitt í mið­borg­inni með litum. Þarna er lítil aðstaða fyrir jóga og heilun þar sem gong-hljóð­færið skipar stóran sess.

„Blár litur er róandi fyrir okkur. Heima á Selfossi er efri hæðin öll máluð í bláum tónum. Það er engin til­viljun að María mey var í bláum kufli eða að Rafael erki­eng­ill lækni með bláum lit. Him­in­blár litur hefur góð áhrif á okkur. Ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á litum og get lesið í lita­tóna. Það er gott að hafa marga liti heima hjá okkur. Börn þurfa lita örvun þegar þau fæð­ast, það er partur af þroska barns­ins. Þess vegna svo mik­il­vægt að umkringja börn alls­konar skærum litum. Það er ekki gott fyrir neinn að klæð­ast svörtum lit alla daga. Við þurfum fleiri liti, bæði börn og full­orðnir því þeir næra sál­ina okkar,“ segir Hrönn sem deilir með les­endum Vikunnar alls­konar fróð­leik í eft­ir­far­andi við­tali sem fram fór á dög­unum í blíð­skap­ar­veðri.

Konur verða að stíga fram núna

Já, lífið hefur leitt Hrönn áfram til sjálfs­þekk­ingar í gegnum áföll og ákvarð­anir um að snúa áföllum í sigur.

„Und­an­farin ár hef ég verið að læra heil­un­ar­að­ferðir með jóga. Ég hef stundað nám í HAF Yoga í vatni, Reiki heilun og Yoga Nidra ásamt því að þjálfast í notkun gongs- áslátt­ar­hljóð­færis sem hefur ótrú­lega djúp heil­un­ar­á­hrif fyrir tauga­kerfið og lík­amann í heild sinni. Ég var einmitt að klára fimm daga þjálfun í hljóð­heilun með mjög færum erlendum gong-meist­urum sem komu hingað til lands. Gong er hljóð­færi friðar og ljóss, það hjálpar til við að heila heim­inn okkar og auka frið. Gong-meist­ar­arnir sögðu að tími kvenna væri komin, þær yrðu að stíga fram og hjálpa til við heilun jarð­ar­innar. Konur verða að hætta að halda aftur af sér. Þeir sögðu tím­ana núna fram til árs­ins 2025 vera umbrota­tíma.

„Konur skipta miklu máli í þess­ari upp­bygg­ingu sem fram undan er á jörð­unni.“

Andlega þenkj­andi fólk er að tengj­ast betur því þörfin er núna fyrir þessar hóg­væru sálir að stíga inn í mátt sinn og vald­efla sig. Konur skipta miklu máli í þess­ari upp­bygg­ingu sem fram undan er á jörð­unni. Umburð­ar­lyndi verður að aukast fyrir fólki sem er ólíkt okkur sjálfum, allir verða að vera sveigj­an­legir í við­horfum sínum því fjöl­breyti­leiki er af hinu góða.

Gamli tím­inn er að hverfa og ný jörð er að fæð­ast. Mér fannst mjög merki­legt að hlusta á þessa menn og læra af þeim. Ég finn að ég er ein af þessum konum sem eiga að vera sýni­legar en við erum miklu fleiri. Konur þurfa að opna fyrir þá hæfi­leika sem þær búa yfir og nota þá mann­kynið til fram­dráttar. Tími eig­in­girni og græðgi er lið­inn. Nú verðum við að vinna saman að betri jörð, lækna umhverfi okkar og bæta sam­skipti okkar á milli,“ segir Hrönn með áherslu og maður finnur kraft­inn þegar hún talar, að henni er alvara. Tíminn er núna, ekki á morgun.

Áföll leiddu hana í heilun

Hrönn er að fara í sum­ar­frí frá lifi­brauði sínu sem er kennsla við Tækni­skól­ann og langar að stíga skrefið núna með það sem hjarta hennar þráir en það er að hjálpa öðrum. Hrönn hefur þjálfað sig í margs­konar heil­un­ar­að­ferðum í gegnum árin, sem voru fyrst og fremst til þess að hjálpa henni sjálfri í upp­hafi. Hún hafði lent í tveimur bílslysum sem ollu henni miklum áverkum og hún var mörg ár að vinna úr.

Í Lífs­stöð­inni býður Hrönn upp á Reiki heilun, Gong-hljóð­heilun og slökun, Yoga Nidra, Lita­með­ferð og Slow Yoga en HAF Yoga fer fram ann­ars staðar í vatni.

Á þrí­tugs­aldri þurfti hún að leita sér hjálpar á Reykja­lundi. Óhefð­bundnar leiðir hafa einnig gert heil­mikið fyrir hana ásamt þeirri lækn­is­hjálp sem hún hefur fengið frá læknum á árunum eftir bílslysin. Þessi áföll opn­uðu fyrir áhuga hennar á fleiri leiðum til lækn­inga. Lífs­stöðin er einmitt svo­leiðis staður, þar sem Hrönn ætlar að opna dyrnar fyrir þeim sem eru að leita að vellíðan. Í Lífs­stöð­inni býður Hrönn upp á Reiki heilun, Gong-hljóð­heilun og slökun, Yoga Nidra, Lita­með­ferð og Slow Yoga en HAF Yoga fer fram ann­ars staðar í vatni.

Alltaf verið næm á fólk og dýr

Við gefum Hrönn orðið um leið og við biðjum hana um að rifja upp ævi­skeið sitt:
„Ég hef alltaf verið næm og amma Hrefna, móð­ur­amma mín, var það einnig. Við vorum alltaf mjög góðar vin­konur á meðan hún lifði. Ég bjó ásamt for­eldrum mínum í Berlín frá tveggja til sjö ára ald­urs en þá sagð­ist ég vilja fara heim til ömmu Hrefnu og afa í Kópavogi og fékk það. Þegar ég var fimm ára fékk ég heila­himnu­bólgu, þá stödd í Danmörku og lík­urnar á bata voru  ekki góðar. Mamma mátti bara heim­sækja mig og hringdi í ömmu á Íslandi til að biðja um hjálp. Amma tal­aði meðal ann­ars við Einar á Ein­ars­stöðum og sagði mömmu dag­inn eftir að hinir og þessir læknar að handan, hefðu farið inn til mín, að þeir hafi farið þarna inn gang­inn og lýsti umhverf­inu þar sem ég lá. Hún fékk þau skila­boð að ég myndi lækn­ast og verða heil. Þetta fékk ég að heyra seinna frá ömmu en það tíðk­að­ist ekki að tala um svona hluti. Við amma skildum vel hvor aðra.

Ég var send í sveit í sjö sumur eftir að ég flutti heim til Íslands. Það fannst mér gaman og lang­aði að verða bóndi því mér leið svo vel í sveit­inni. Ég hef alltaf verið nátengd dýrum, gat talað hesta og hunda til og fékk hund­inn á bænum til að gera hluti sem engin annar gat. Þetta fannst fólk­inu á bænum merki­legt. En lífið var ekki bara dans á rósum því ég var með mót­þróa á ung­lings­árum og ætl­aði ekki að vera skap­andi eins og mamma mín. Ég ætl­aði að verða sál­fræð­ingur því ég var sú sem aðrir leit­uðu til og var oft að hjálpa vinum mínum og fannst þess vegna skyn­sam­legt að ég yrði sál­fræð­ingur.

Ég var mjög oft beðin um að kíkja í tarot­spil fyrir vini mína og síðar tók ég alla sál­fræði­kúrsa í menntó sem ég gat. Eftir mennta­skól­ann ákvað ég samt að starf sál­fræð­ings væri lík­lega allt of erfitt fyrir mig. Mér fannst ég líka farin að taka svo mikið inn á mig. Þarna er ég farin að smakka áfengi og varnir mínar veikt­ust við það en það þarf að passa sig á þessu þegar maður er næmur. Mig lang­aði ekki lengur í þetta and­lega og fór til Heidel­berg í Þýska­landi í lista­sögu við háskól­ann þar. Mamma og fóst­urpabbi minn voru nokkur ár þarna úti og ég var mikið í kringum þau.

Mér fannst það ákveðið öryggi fyrir mig. Svo veikt­ist ég upp úr þurru og varð rosa­lega veik. Ég hor­að­ist niður og læknar vissu ekki hvað var að ger­ast og ég hélt að ég væri komin með maga­krabba. Ég hringdi í ömmu sem sagði mér að koma heim í ömmu­mat sem ég gerði og var lengi heima hjá ömmu á Íslandi. Ég fór aftur út til Þýska­lands þegar ég var orðin hraust og dvaldi þá til 25 ára ald­urs í Þýska­landi.“

Fór að vinna hjá RÚV

„Eftir að ég kom heim aftur þá fékk ég vinnu á RÚV í bún­inga­deild og við að útbúa aug­lýs­ingar. Það var skemmti­legt starf og síðan var ég aðstoð­ar­kona Helgu Stefáns með bún­ing­ana í kvik­mynd­inni Svo á jörðu sem á himni. Allt voða gaman nema að þegar við vorum við tökur á Höfn í Horna­firði þá lenti ég í slæmu bílslysi og fór illa í bak­inu því ég fékk ekki þá aðhlynn­ingu sem ég þurfti strax eftir slysið. Læknir gaf mér deyfi­lyf og ég sá stjörnur en hélt áfram að vinna. Við vorum á leið upp á Vatna­jökul í tökur og ég var aftan á snjó­sleða sem hoss­aði á ísnum.

Hrönn Trausta­dóttir.

Þetta var svaka­lega vont og ég henti mér af sleð­anum en mað­ur­inn tók ekki eftir því. Ég gerði þetta vilj­andi því mér var svo illt í bak­inu og gat ekki hoss­ast meir. Þeir fóru svo að leita að mér og fundu mig liggj­andi á ísnum en ég var svo kvalin að ég gat ekki talað. Þegar sjúkra­bíll­inn kom fékk ég fimm mor­fín­sprautur en ekki dugði minna til að slá á sárs­auka minn. Ég er send til Reykja­víkur og í kjöl­farið lögð inn á Reykja­lund þar sem ég fór í end­ur­hæf­ingu í þrjá mán­uði.“

Ítalía heill­aði Hrönn í hönn­un­ar­nám

„Þarna er ég orðin 26 ára gömul og nýbúin í end­ur­hæf­ingu á Reykja­lundi. Á þessum tíma fór ég að spá hvað ég ætti að læra sem ég myndi finna mig í og fékk sendan ofboðs­lega fal­legan bæk­ling frá einum besta hönn­un­ar­skóla í Mílanó á Ítalíu, Mar­angoni, sem eng­inn Íslend­ingur hafði þá stundað nám við. Það var mjög strangt inn­töku­próf í þennan skóla og erfitt að fá lán frá LÍN til að stunda nám við skól­ann. Ég þurfti að fá alla papp­íra frá skól­anum og senda til LÍN til að námið yrði láns­hæft en fyrst fór ég til Flórens og lærði ítölsku í þrjá mán­uði. Ég dvaldi síðan í sjö ár í Mílanó.

Á miðri leið í nám­inu skipti ég um hest í ánni og lærði Trend-hönnun sem mér fannst ótrú­lega spenn­andi nám og finnst enn. Þarna var ég komin í nám sem tók á straumum og stefnum í hönnun á heims­vísu í fram­tíð­inni. Þarna vorum við að áætla tísku­strauma á fatn­aði, bílum, kremi, ilm­vatni, póli­tík, tón­list og miklu fleira. Mér fannst þetta stór­kost­legt nám en það eru ráð­gjafar innan stórra fyr­ir­tækja sem eru með svona Trend-hönn­uði á snærum sínum,“ segir Hrönn upp­veðruð þegar hún lýsir þessum stór­kost­lega hönn­un­ar­há­skóla á Ítalíu.

Ástin bankar upp á

Náms­ferðin til Ítalíu varð örlaga­rík því Hrönn eign­ast ítalskan kærasta og á með honum son. „Við slitum sam­vistum og ég var um stund ein­stæð móðir á Ítalíu sem var erfitt og því ákvað ég að fara heim til Íslands. Mig lang­aði samt ekk­ert að stoppa lengi heima og vildi frekar halda áfram til Los Angeles og fara þar í nám í teikni­mynda­gerð, brellum og tækni. Fóst­urpabbi minn jarð­tengdi mig og benti mér á að skapa öryggi fyrir mig og son minn með föstum mán­að­ar­tekjum. Ég hélt áfram í bún­inga­brans­anum um tíma en svo um haustið 1998 sótti ég um kenn­ara­starf á mínu sviði við Iðn­skól­ann í Reykja­vík og fékk,“ segir Hrönn sposk og maður fær á til­finn­ing­una að ein­hver sæt saga sé í upp­sigl­ingu.

„Við vorum fjórtán nýir kenn­arar ráðnir við Iðn­skól­ann þetta haust og ég fann að ég var ánægð þarna. Þegar líða tók að jólum var haldið jóla­ball fyrir kenn­ar­ana og ég ætl­aði ekki að nenna en ég var eig­in­lega rekin á þessa skemmtun af systur minni. Þannig að það var í eina skiptið sem ég fór ein á ball. Þar kom til mín maður sem spurði hvort ég vildi dansa – ég spurði hvort hann væri maki ein­hvers því ég hafði ekki séð þennan mann áður. Við byrj­uðum þá víst bæði um haustið að kenna við Iðn­skól­ann án þess að ég hefði hug­mynd um að hann væri þarna. Þetta kvöld á jóla­ball­inu var ankerið sett niður af mér og Tomma sem er eig­in­maður minn í dag. Það var samt ekk­ert létt hjá okkur Tómasi Jónssyni í byrjun sam­bands­ins því hann Tommi minn var ein­stæður faðir þá með dóttur með downs-heil­kenni. Að auki var hann tví­frá­skil­inn sem þótti ekki gott afspurnar.

„Það var samt ekk­ert létt hjá okkur Tómasi Jónssyni í byrjun sam­bands­ins því hann Tommi minn var ein­stæður faðir þá með dóttur með downs-heil­kenni. Að auki var hann tví­frá­skil­inn sem þótti ekki gott afspurnar.“

Allir í kringum mig spurðu hvort ég væri ekki frekar á leið­inni til LA í frekara nám, hvað ég væri að gera með honum. Fólk hafði veru­legar áhyggjur af mér með ein­stæðum föður sem átti þrjár dætur og að ein þeirra væri þroska­heft. Ástin batt okkur saman og við fluttum inn hvort með sitt barnið á Njarð­ar­götu, í hús sem hafði verið byggt af systrum ömmu minnar úr föð­ur­ætt og fjöl­skyldum þeirra. Ég hélt áfram að kenna við Iðn­skól­ann, sótti um sem sviðs­stjóri hönn­un­ar­sviðs skól­ans og stýrði því starfi í átta ár. Í dag kennum við hjónin enn í skól­anum,“ segir Hrönn.

Svo liðu árin. Hrönn og Tomma lang­aði að eign­ast barn saman en það gekk ekki. Þau ákváðu eftir þriggja ára mislukk­aðar horm­óna­með­ferðir og glasa­frjóvgun að ætt­leiða barn frá Kína. Það tók önnur þrjú ár og gekk ekki snurðu­laust heldur því yfir­völdum fannst þau eiga nóg af börnum. Þau sóttu aftur um ætt­leið­ingu og eiga í dag tólf ára stúlku sem heitir Harpa.
„Við ætt­leiddum lítið tíu mán­aða gam­alt stúlku­barn frá Kína sem heitir Harpa Hua Zi Tóm­as­dóttir. Þegar við sóttum hana loks til Kína þá var hún svo lítil að við þurftum að klæða hana í stærð 62/68 af ung­barna­fötum. Hún var í bleikum bómull­argalla þegar við sáum hana fyrst með lím­miða framan á sér þar sem nafnið hennar stóð Hua Zi sem þýðir fal­legt blóm á kín­versku. Hún er ein­stak­lega ljúf og glöð stúlka með marga hæfi­leika, meðal ann­ars í bad­minton og tón­list. Við erum með hana eina hjá okkur heima í dag því sonur minn er full­orð­inn maður, kom­inn með eigin fjöl­skyldu og dóttir Tomma fór til móður sinnar rétt áður en hún varð átján ára og býr þar,“ segir Hrönn.

Ævintýri í Hrísey

Þau hjónin búa í dag á Selfossi rétt við Ölfusá og keyra til höf­uð­borg­ar­innar í vinnu en þau eiga griða­stað í Hrísey. Þar er hús sem kom upp í hend­urnar á þeim má segja fyrir átján árum en hjónin eru greini­lega óhrædd við að stökkva á tæki­færin þegar þau gef­ast.

„Við leigðum okkur hús í eina viku í Hrísey sum­arið 2001, vorum bæði að koma þangað í fyrsta sinn og leið strax vel á eyj­unni. Það er ein­stök orka þarna fyrir norðan. Eftir viku­dvöl vildum við ekki fara alveg strax heim aftur og spurð­umst fyrir hvort hægt væri að leigja aðra íbúð í nokkra daga. Þannig kynn­umst við honum Geira sem býr þarna allt árið um kring ásamt öðrum tæp­lega tvö hund­ruð íbúum eyj­unnar. Þegar komið var að heim­ferð þá kom Geiri til okkar, bank­aði á dyrnar og bauðst til að sýna okkur hús suður í ey sem síðar kom í ljós að var erfðabú en bróðir hans hafði búið þar en hann lést fyrr um vorið. Við löbbum með Geira að gömlu húsi og förum inn.

„Vá hvað þetta er æðis­legt,“ sagði ég og hreifst strax af öllu þarna inni og gat ekki leynt hrifn­ingu minni. Þegar Geiri sá hversu hrifin ég var þá spurði hann hvort við værum ekki svona ungt fólk sem breytir öllu inn­an­stokks en við svöruðum því neit­andi og sögðum að svona ætti húsið að vera. Við keyptum húsið í júlí það ár og er í dag upp­á­halds­staður fjöl­skyld­unnar. Okkur Tomma fannst húsið mjög sjar­mer­andi í upp­hafi en í fyrra ræddum við við Geira, sem er níræður núna og góður fjöl­skyldu­vinur, að við yrðum að upp­færa húsið og end­ur­nýja eftir öll þessi ár. Þær fram­kvæmdir standa yfir núna. Við eigum margar góðar minn­ingar í tengslum við Hrísey og eigum góða vini á staðnum. Þessi eyja og sam­fé­lagið hefur haft svo mikil áhrif á okkur að þarna viljum við Tommi verða gömul.

Í Hrísey á hjarta mitt heima og því vil ég láta dreifa ösk­unni minni í hafið í kringum eyj­una þegar að því kemur. Hrísey er ynd­is­legur staður og þarna langar mig í sumar að bjóða upp á HAF Yoga í vatni og Gong-slökun. Það er ein­stök orka fyrir norðan og mér er sagt að þarna sé græn orku­súla. Í Hrísey fer ég til að næra sál­ina mína og hlaða mig og veit að það gildir um fleiri. Það er skrýtið að ég hef búið hér og þar um jörð­ina, í Heidel­berg, Berlín, Flórens, Mílanó, París, Odense, Dortmund og San Fransisco en vinn­ing­inn hefur litla eyjan Hrísey og þar líður mér best. Þetta er besti staður í heimi. Svo elska ég að sjá hvað ást­vinum mínum líður vel þarna,“ segir Hrönn og brosir.

Konur ekki lengur brenndar á báli

Hrönn hefur mik­inn áhuga á and­legum mál­efnum og hittir stundum næmt fólk sem horfir í gegnum hana og segir henni hvað sé fram undan. Eina slíka konu hitti hún fyrr á þessu ári sem sagði við Hrönn að hún hefði ein­stakan næm­leika sem henni bæri að nota. Tíð­ar­and­inn væri svo­leiðis að hún þyrfti ekki að ótt­ast að koma fram því konur væru ekki lengur brenndar á báli þótt þær sinntu and­legum málum. Konan sagði að Hrönn þyrfti að virkja hæfi­leika sína en þora fyrst að við­ur­kenna fyrir sjálfri sér að hún væri næm og ætti ekki að hunsa þessi skila­boð.

„Já, það er skrýtið að segja það upp­hátt en mér var sagt að ég hefði ein­staka náð­ar­gáfu sem mér bæri að nota. Konan sagði að ég væri, ásamt fleirum, komin til að biðja fyrir heim­inum. Ég yrði að virkja hæfi­leika mína og mætti ekki berj­ast á móti þessu í sjálfri mér. Við fæð­umst öll með hæfi­leika en við þurfum að þróa þá og þjálfa. Við megum ekki hunsa með­fædda hæfi­leika okkar því þá verðum við van­sæl.

„Já, það er skrýtið að segja það upp­hátt en mér var sagt að ég hefði ein­staka náð­ar­gáfu sem mér bæri að nota.“

Við verðum að hlusta á hjartað okkar og leyfa því að ráða för en þar er röddin sem leiðir okkur á réttan veg í líf­inu. Ég fann hvað ég hafði gott af því að fara í gegnum kenn­ara­nám í HAF Yoga en þar opn­uð­ust allar rásir í mér. Þarna er núvit­und í kjarna sínum en í vatn­inu förum við djúpt inn í innri vöðva okkar og nærum sál­ina í leið­inni. Vatn er heilandi og er eitt af því sem hefur hjálpað mér að ná góðum lík­am­legum bata eftir bílslysin. Ég hef verið í rosa­lega mik­illi sjálfs­vinnu eftir þessi áföll en þau hafa kennt mér margt og leitt mig á góðan stað í lífi mínu, stað sem mig langar að leyfa öðrum einnig að upp­lifa,“ segir Hrönn hlý­lega að lokum.

Texti / Marta Eiríks­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu