„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sjálfs er höndin hollust

„Sjáið´i! Við erum með geislasverð!“ æpti dóttir mín þar sem hún kom hlaup­andi fram úr svefn­her­berg­inu mínu með fjólu­bláa kan­ínu­titr­ar­ann minn í annarri hendi og systir hennar á eftir með annan kol­bika­svartan og rifflaðan. Þær átt­uðu sig auð­vitað ekki á því að þær héldu alls ekki á geislasverðum en veislu­gest­irnir átt­uðu sig strax.

Sjálfs er höndin hollust

Já, ég átti eftir að minn­ast á að þetta gerð­ist í miðju afmæl­is­boði og þarna voru meðal ann­ars for­eldrar mínir og afi og amma og fleiri ágætir gestir. Og jú, mikið rétt. Það var auð­vitað búið að kveikja á kan­ínu­titr­ar­anum sem lýst­ist upp innan frá og gaf frá sér hljóð þar sem hann sner­ist og titr­aði. Geislasverðin svoköll­uðu vöktu reyndar kátínu meðal flestra en móðir mín hafði engan húmor fyrir þessu og skildi ekki í mér að geyma ekki svona lagað á stað þar sem börn ná ekki til.

Þetta er auð­vitað fyndið núna þegar ég hugsa til baka en mér fannst þetta ekk­ert voða­lega fyndið á þessu augna­bliki. Þið getið líka ímyndað ykkur hvort bróðir minn hafi ekki verið glaður að geta strítt mér á þessu lengi á eftir, og gerir reyndar enn, og vin­konur mínar taka auð­vitað kast í hvert sinn sem þetta er rifjað upp. Enda eru afmæl­is­veislur hjá mér ekki kall­aðar neitt annað en kyn­lífstækja­kynn­ingar eftir þetta. Það þótti auð­vitað ekki síður fyndið en geislasverðin svoköll­uðu að ég hafði bakað afmælisköku sem var eins og kan­ínu­haus, alveg óvart í stíl við kan­ínu­titr­ar­ann.

Sóðastelpa

Ef þú átt móður sem lætur eins og mín getur stundum látið, gæt­irðu fundið fyrir sam­visku­biti við það að eiga gæða­stund með sjálfri/sjálfum þér. Mamma sagði til dæmis bróður mínum að typpið á honum myndi minnka og jafn­vel detta af ef hann væri að stunda þennan ósóma sem sjálfs­fróun að hennar mati var (og er ábyggi­lega enn). Það tók mig alveg dágóðan tíma að hætta að hugsa um sjálfs­fróun sem eitt­hvað ljótt og ógeðs­legt og ég veit um fólk sem hefur hrein­lega þurft að ræða svip­aða hluti hjá sál­fræð­ingi. Svona hug­ar­far getur haft alls kyns áhrif, þar á meðal á kyn­líf sem maður stundar með öðrum.

Ég man að ég henti fyrsta titr­ar­anum sem ég keypti mér. Ég var búin að nota hann nokkrum sinnum þegar hann fékk að fljúga í ruslið. Ég henti honum samt ekki af því að hann væri úr sér geng­inn heldur af því að ég skamm­að­ist mín fyrir að nota hann. Fannst þetta allt í einu eitt­hvað ljótt og sóða­legt. Ég er ekki frá því að ég hafi heyrt í henni móður minni segja eitt­hvað á borð við: Þótt fyrr hefði verið, sóða­stelpa! En svo því sé haldið til haga, þá er hún móðir mín alveg ynd­is­leg þótt ég stór­efi að hún hafi nokkurn tíma „snert sig þarna niðri“ fyrir framan hann föður minn og hún lítur pott­þétt á sjálfs­fróun sem eina af höf­uð­synd­unum.

Sjálfsfróun er hið besta mál

Rann­sóknir hafa sýnt fram á að meiri­hluti fólks stundar sjálfs­fróun. Ég man eftir að hafa séð nið­ur­stöður rann­sóknar í tíma­rit­inu Journal of Sexual Medicine og þar sögð­ust rúm­lega 90% karl­anna sem tóku þátt í rann­sókn­inni og rúm­lega 80% kvenn­anna stunda sjálfs­fróun. Enda gerir hún okkur bara gott. Jafnvel þótt við séum í sam­bandi er hún hið besta mál. Og nei, sjálfs­fróun veldur því ekki að á okkur vaxi aukafingur eða að typpið detti af, eins og sumir vilja kannski meina í hræðslu­á­róðri sínum í upp­eldi barna. Sjálfs­fróun er fyrir það fyrsta örugg­asta kyn­lífið; kona á hvorki á hættu að verða ólétt né karl­maður að barna ein­hverja og það er ekki hætta á að smita sjálfan sig af kyn­sjúk­dómi þegar hún er stunduð. Aftur á móti getur hún til dæmis minnkað streitu, hjálpað manni að sofa betur, styrkt grind­ar­botn­inn og losað um kyn­ferð­is­lega spennu.

Sjálfs­fróun getur líka hjálpað manni að átta sig á því hvað manni finnst gott í kyn­lífi og hvað örvar mann kyn­ferð­is­lega. Sem er til bóta þegar maður stundar kyn­líf með öðrum því þegar maður veit hvað maður fílar og hvað þarf til að maður nái full­næg­ingu er auð­veld­ara að leið­beina og segja ból­fé­lag­anum til um það hvað manni finnst gott.

Titrandi nærbuxur

Höndin getur orðið þreytt og þess vegna er fínt að nýta sér tækn­ina og nýj­ustu græjurnar.

Sjálfs er höndin holl­ust, segir mál­tækið. En höndin getur orðið þreytt og þess vegna er fínt að nýta sér tækn­ina og nýj­ustu græjurnar. Í dag er ekk­ert mál að finna sér kyn­lífstæki við hæfi og hægt að kaupa þau á Netinu án þess að sendil­inn einu sinni gruni hvað sé í pakk­anum þegar hann keyrir hann upp að dyrum.

Versta er að þau geta verið dálítið dýr svo það er alltaf smáá­hætta sem maður tekur við að kaupa sér eitt­hvert tæki án þess að vita hvort það henti manni. En ég er dug­leg að lesa mér til á Netinu og leita á Google. Það er fullt af konum (og sjálf­sagt körlum líka) sem eru að prófa þessar græjur og skrifa um sína upp­lifun, góða og slæma.

„Einn af mínum fyrr­ver­andi ból­fé­lögum gaf mér nær­buxur með inn­byggðum titr­ara sem hann stjórn­aði með fjar­stýr­ingu.“

Mér finnst til dæmis skipta máli að það sé gott að þrífa kyn­lífstækin mín og að þau séu ekki mjög hávær. Það getur alveg eyði­lagt stemn­ing­una að hlusta á hávært suðið í þeim, jafn­vel svo hátt að það heyr­ist á milli her­bergja. Einn af mínum fyrr­ver­andi ból­fé­lögum gaf mér nær­buxur með inn­byggðum titr­ara sem hann stjórn­aði með fjar­stýr­ingu. Það var skemmti­leg upp­lifun að klæð­ast þeim nar­íum. Hann man­aði mig eitt sinn til að vera í þeim á tón­leikum sem við vorum boðin á í Hörpu á vegum vinn­unnar hans. Mér leið dálítið eins og Abby í kvik­mynd­inni The Ugly Truth, þegar hún klædd­ist slíkum nær­buxum og krakk­inn náði í fjar­stýr­ing­una.

Löngu hætt að nenna þessu fikti

Ekki eru þó allar konur sem stunda sjálfs­fróun og það geta verið marg­vís­legar ástæður fyrir því. Kyn­lífs­ráð­gjaf­inn Lucy Ber­es­ford segir að ein aðal­á­stæðan sé lítil kyn­lífs­hvöt en það geti einnig verið vegna þess að konur finni fyrir skömm eða hrein­lega langi það bara ekki eða kunni það jafn­vel ekki.

Ein vin­kona mín seg­ist löngu hætt að nenna öllu svona fikti við sjálfa sig. Hún kjósi frekar að slaka á yfir Grey’s Anatomy eða yfir elda­mennsk­unni í eld­hús­inu (hvernig sem hún fer nú að því að finna slökun í því). Hún hefur þó sagt mér að hún hafi fundið fyrir for­dómum nokk­urra vin­kvenna þegar hún sagð­ist ekki nenna á kyn­lífstækja­kynn­ingu sem vin­kvenna­hóp­ur­inn ætl­aði að bóka fyrir gæsap­artí. Hún hafi fengið að heyra það að hún væri tepra og þar fram eftir göt­unum. 

Fólk má auð­vitað hafa hlut­ina nákvæm­lega eins og það vill, eða vill ekki. Í stuttu máli sagt mælir ekk­ert á móti sjálfs­fróun. Ekki neitt. Þú getur fróað þér einu sinni í viku, einu sinni á dag, einu sinni í mán­uði eða aldrei. Já, það er líka í lagi að stunda aldrei sjálfs­fróun; það er engin kvöð að gera það og sjálfs­fró­unar er ekki getið í neinum lögum sem Alþingi hefur sett.

Sjálfs­fróun getur þó orðið of mikið af hinu góða og ef hún er farin að þvæl­ast fyrir þér í dag­legu lífi; er til dæmis farin að hafa áhrif á vinn­una, félags­lífið eða eitt­hvað slíkt og er farin að valda þér áhyggjum, ætt­irðu kannski að leita til fag­að­ila.

Vissir þú?

  • -Að á tímum Forn-Grikkja var talið að móð­ur­sýki (e. hysteria, dregið af gríska orð­inu uterus sem merkir móð­ur­líf) ylli þreytu, tauga­veiklun og þung­lyndi hjá konum. Gervi­getn­að­ar­limir voru not­aðir til lækn­inga þar sem dregin var sú ályktun að kvill­arnir tengd­ust móð­ur­líf­inu.
  • -Að þótt annað mætti halda tald­ist það hvorki sjálfs­fróun né nokkuð kyn­ferð­is­legt að örva sníp­inn á Vikt­or­íu­tím­anum heldur var það talið lækn­inga­meðal við móð­ur­sýki, rétt eins og hjá Forn-Grikkjum. Því fengu konur svo­kallað mjaðma­nudd. Lækn­ingin sem fékkst við mjaðma­nuddið virk­aði auð­vitað bara í tak­mark­aðan tíma svo þær móð­ur­sjúku urðu því fastakúnnar hjá þeim sem buðu upp á slíkt nudd.
  • -Um miðja nítj­ándu öld flykkt­ust konur í heilsu­lindir til að fara í svokölluð mjaðma­böð þar sem vatns­bunu var beint milli fóta þeirra og sögð­ust koma þaðan út jafn­kátar og -glaðar og hefðu þær drukkið kampa­vín.
  • -Fyrsti titr­ar­inn kom fram á sjón­var­sviðið árið 1869 og var gufuknú­inn. Titr­ar­arnir héldu áfram að þró­ast, í lækn­inga­legum til­gangi, og fóru úr því að vera risa­stórir og níð­þungir yfir í það að vera fisléttir og jafn­vel pínu­litlir. Svo litlir að við konur getum haft einn slíkan í sam­kvæm­is­vesk­inu, ef ske kynni að við fengjum ein­hvers konar móð­ur­sýkiskast.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu