„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tacos með kjötbollum, reyktu chipotle-salsa og rauðlauk

Taco er afar fjöl­breytt enda mögu­leik­arnir óend­an­legir þegar kemur að því að setja hrá­efni ofan á tortill­urnar en taco hefur notið mik­illa vin­sælda víða um heim enda þægi­legur, ein­faldur og góður matur. Hér kemur upp­skrift að tacos með kjöt­bollum og geggj­aðri chipotle-salsa.

Tacos með kjötbollum, reyktu chipotle-salsa og rauðlauk

Tacos með kjötbollum, reyktu chipotle-salsa og rauðlauk

fyrir 4

500 g nauta­hakk
½ laukur, saxaður smátt
3 hvít­lauks­geirar, smátt saxaðir
40 g brauðrasp
3 msk. stein­selja, söxuð
1 tsk. salt
½ tsk. svartur pipar
2 tsk. karrí
2 msk. olía til steik­ingar
1 dós tómatar
1 ferskt, rautt chili-aldin, saxað smátt
2 msk. ferskt kórí­ander, fínt saxað

Blandið nauta­hakki, lauk, hvít­lauk, brauðra­spi, salti, pipar og kar­ríi í skál og blandið vel. Búið til bollur úr deig­inu. Brúnið þær í 3-4 mín. og takið af pönn­unni. Setjið tómata, kórí­ander og chili-aldin í bland­ara.

Hellið helm­ingnum á pönn­una og setjið kjöt­boll­urnar saman við, smakkið til með salti og pipar. Látið malla í nokkrar mín. Berið hinn helm­ing­inn fram með tortilla­kök­unum ásamt lauk og sýrðum rjóma.

Skerið t.d. niður radísur, hvítan lauk og kórí­ander og berið einnig fram með matnum.

Rauðlaukur

½ rauð­laukur, sneiddur
1 tsk. chili-flögur, steyttar
safi úr 2 límónum
¼ tsk. salt

Blandið öllu saman og látið standa í 2-3 klst. fyrir fram­reiðslu.

Reykt chipotle-salsa

100 g tómatar, skornir í bita

½ laukur, saxaður

2 tsk. chili-flögur

2 tsk. chipotle-mauk

2 msk. agave-síróp

2 tsk. sjáv­ar­salt

50 ml hrís­grjóna­edik

1 tsk. salt

½ tsk. nýmal­aður pipar

1 tsk. kumm­in­duft

Reykt chipotle-salsa.

Setjið tómata, lauk og 250 ml vatn í pott. Látið sjóða í 5 mín. hellið vatn­inu frá og setjið til hliðar. Hitið olíu á pönnu og setjið chili-flög­urnar út á og steikið í nokkrar sek­úndur.

Blandið síðan tómöt­unum og lauknum saman við og setjið í mat­vinnslu­vél og látið allt annað saman við og blandið vel. Hellið í pott og bætið 100 ml af vatni saman við ef blandan er of þykk. Smakkið til með salti og pipar. Salsað er best fram­reitt kalt.

Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

taco

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar