„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Veitingastaðir skella, hver af öðrum, tímabundið í lás: „Þetta er erfið ákvörðun“

Veit­inga­staðir til­kynna nú hver að öðrum tíma­bundnar lok­anir en hert sam­komu­bann, sem tekur gildi á mið­nætti í kvöld, var boðað í gær. Sumir staðir bjóða enn upp á „take-away“ eða heim­send­inga­þjón­ustu.

Veitingastaðir skella, hver af öðrum, tímabundið í lás: „Þetta er erfið ákvörðun“

„Í ljósi for­dæma­lausra aðstæðna höfum við ákveðið að loka Tapas Barnum tíma­bundið frá og með deg­inum í dag. Þetta er erfið ákvörðun en á end­anum er heilsa og öryggi okkar gesta og starfs­manna í for­gangi,“ segir á Facebook-síðu Tabas­bars­ins. „Við munum ennþá bjóða upp á okkar sívin­sælu veislu­þjón­ustu með dags­fyr­ir­vara, hægt er að panta í gegnum [email protected] eða hér á Facebook. Við þökkum skiln­ing­inn og getum ekki beðið eftir að opna aftur og taka á móti ykkur öllum með gleði í hjarta þegar þetta er staðið yfir.“

Kæru gestir og vanda­menn, þið vitið hvað klukkan slær. Við neyð­umst til að loka frá klukkan 15.00 í dag 23. mar í óákveð­inn tíma. Verum góð við hvert annað. Sjáumst á hinum end­anum,“ segir í til­kynn­ingu frá Snaps Bistro Bar.

Á Facebook-síðu Skál! er tekið fram að nú séu uppi aðstæður sem reyni á okkur öll að standa saman. Þessar aðstæður komi niður á því sem veit­inga­húsin standi fyrir; þjón­ustu, nánd og gest­risni.
„Það er okkar mat að ekki sé hægt að fram­fylgja sam­komu­banni og á sama tíma að veita þá þjón­ustu og upp­lifun sem Skál! stendur fyrir. Nú er gríð­ar­lega mik­il­vægt að virða skipun um fjar­lægð­ar­mörk sem sett eru á skv. sam­komu­banni til að reyna að halda þeirri vá í skefjum sem við stöndum frammi fyrir sem sam­fé­lag … Það er sam­fé­lags­lega mik­il­vægt að við stöndum saman um almanna­varnir og við viljum ekki á neinn hátt ganga gegn því,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ingu frá starfs­fólki Skál!

Starfs­fólk veit­inga­stað­ar­ins Fjall­kon­unnar tekur í svip­aðan streng. „Í ljósi for­dæma­lausra aðstæðna höfum við ákveðið að loka tíma­bundið frá og með deg­inum í dag. Þetta er erfið ákvörðun en á end­anum er heilsa og öryggi okkar gesta og starfs­manna í for­gangi. Við þökkum skiln­ing­inn og getum ekki beðið eftir að opna aftur og taka á móti ykkur öllum með gleði í hjarta þegar þetta er staðið yfir. Þá verður sko gaman.“

Og á Facebook-síðu veit­inga­stað­ar­ins Geiri Smart segir meðal ann­ars: Vegna þeirra aðstæðna sem nú eru í sam­fé­lag­inu höfum við tekið þá erf­iðu ákvörðun að loka tíma­bundið veit­inga­staðnum okkar. En við erum bjart­sýn og verðum von­andi komin aftur á fullt skrið áður en langt um líður. Verum skyn­söm, þvoum hendur og notum spritt. Við hlökkum til að taka á móti ykkur með hækk­andi sól.“

„Skrítnir tímar, ekki satt?“ segir á Facebook-síðu Slipp­bars­ins. „Okkur þykir það svaka leitt að láta ykkur vita að Slipp­bar­inn er nú tíma­bundið lok­aður út af þessu ástandi sem nú ríkir. Við erum hins vegar bjart­sýn og von­umst til að vera komin aftur á bar­inn og í eld­húsið áður en langt um líður. Verum skyn­söm, þvoum hendur, notum spritt og umfram allt, töpum ekki gleð­inni.“

Á veit­inga­staðnum Coocoo’s Nest er búið að kynna breytt fyr­ir­komu­lag. „Kæru við­skipta­vinir frá og með þriðju­deg­inum 24. mars verður ein­ungis hægt að panta mat til að taka með sér heim. Við munum kynna hér á sam­fé­lags­miðlum mat­seðl­ana hverju sinni. Hádeg­is­verður í boði milli 11:00-15:00 & kvöld­verður milli 18:00-21:00. Heim­send­ing er frí ef verslað er fyrir 6.000 kr eða meira … Með þess­ari aðgerð náum við að vernda okkar starfs­fólk sem og lands­menn alla í átak­inu við að takast á við þessar aðstæður. Þökkum skiln­ing & stuðn­ing. Þeir sem eru í sótt­kví og vilja sækja geta milli­fært á okkur og hringt við komu sog við afhendum utandyra,“ segir meðal ann­ars á Facebook-síðu Coocoo’s Nest.

„Vegna aðstæðna í sam­fé­lag­inu verður Jómfrúin lokuð fyrir venju­lega starf­semi f.o.m. 23. mars þar til línur skýr­ast að nýju,“ segir í til­kynn­ingu veit­inga­stað­ar­ins Jóm­frú­ar­innar. „Við munum hins vegar bjóða upp á „take-away“ og heim­send­ingu alla fimmtu­daga – sunnu­daga fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga í síma 5510100 og á [email protected] … Höfum „hygge“ í hávegum og förum var­lega,“ og undir þetta skrifar Jóm­frú­arteymið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónaveira

Innlentkórónaveira

Biðst afsök­unar en neitar að afhenda kvitt­anir

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, iðn­aðar- nýsköp­unar- og ferða­mála­ráð­herra, neitar Mannlíf um að fá kvitt­anir fyrir þeirri þjón­ustu og þeim veit­ingum sem hún þáði á Covid-djammi vin­kvenna síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Hitt­ing­ur­inn var kost­aður af Icelandair en ráð­herr­ann full­yrðir að hafa borgað fyrir sig sjálf. Til að stað­festa þau orð óskaði Mannlíf eftir kvitt­unum þess efnis en Þórdís Kolbrún vill ekki afhenda þær...
Þórólfur og Víðir sagðir hafi misst allan trúverðugleika fyrir Þórdísi: „Sorglegt“
Innlentkórónaveira

Þórólfur og Víðir sagðir hafi misst allan trú­verð­ug­leika fyrir Þórdísi: „Sorglegt“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son segir að Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hafi misst allt boð­vald meðal þjóð­ar­innar eftir að þeir komu Þórdísi Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ferða­mála­ráð­herra til varnar í gær. Allt í einu er tveggja metra reglan orðin af við­miði þegar ráð­herra á í sök. Þórdís fór út á lífið með vin­konum sínum um helg­ina og af myndum af...
Ráðherra segir umræðu misskilning: „Myndin var óþarfi og við hefðum ekki átt að taka hana“
Innlentkórónaveira

Ráðherra segir umræðu mis­skiln­ing: „Myndin var óþarfi og við hefðum ekki átt að taka hana“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, segir það hafa verið mis­tök af hennar hálfu og vin­kvenna sinna að hafa stillt sér upp fyrir hóp­mynd á umdeildum vin­konu­hitt­ingi um helg­ina. Að öðru leyti hafi hún engar reglur brotið þó svo það hefði verið ein­fald­ara að mati ráð­herr­ans hefði hún sleppt því að mæta. Þórdís Kolbrún fékk illa á bauk­inn...
Viðbrögð Þórdísar sögð verri en brotið – Tali eins og „hún eigi það skilið að brjóta samkomubannið“
Innlentkórónaveira

Viðbrögð Þórdísar sögð verri en brotið – Tali eins og „hún eigi það skilið að brjóta sam­komu­bannið“

Hegðun Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Íslands, um helg­ina hefur vakið hörð við­brögð meðal margra Íslend­inga. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, hefur sjálfur sagt að hegðun hennar hafi verið „óheppi­leg“. Þórdís fór út á lífið með vin­konum sínum og af myndum af dæma þá var tveggja metra reglan þeim ekki ofar­lega í huga. Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og sós­í­alisti,...
Þórdís fær illa á baukinn fyrir COVID-djammið
Innlentkórónaveira

Þórdís fær illa á bauk­inn fyrir COVID-djam­mið

COVID-djamm Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Íslands, hefur vakið hörð við­brögð víða á sam­fé­lags­miðlum. Frétta­blaðið greindi fyrst frá því að hún hafi varið laug­ar­deg­inum með vin­konu­hópi sínum og kíkti út á lífið. Hún birti sjálf myndir af þessu á sam­fé­lags­miðlum en óhætt er að segja að þar hafi tveggja metra reglan verið möl­brotin. Hún bar fyrir sig...
Fólk að veikjast mikið á níunda til þrettánda degi
Innlentkórónaveira

Fólk að veikj­ast mikið á níunda til þrett­ánda degi

Staðan er almennt góð á COVID-19-göngu­deild Land­spít­al­ans að sögn Bryn­dísar Sig­urð­ar­dóttir, smit­sjúk­dóma­læknis á Land­spít­al­anum. Enginn sjúk­lingur er inniliggj­andi núna vegna kór­óna­veirunnar. Bryndís ræddi stöð­una í morg­un­út­varpi Bylgj­unnar í morgun. Hún tók fram að starfs­fólk COVID-19 göngu­deildar væri nú í bið­stöðu vegna hóp­sýk­inga sem hafa komið upp hér á landi und­an­farið þar sem reynslan sýnir að fólk veik­ist gjarnan í seinni...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður