„Vegna samkomubanns næstu vikurnar og mikillar ásóknar í „take away“ og heimsendingar ætlum við hjá Reykjavk Street Food að taka upp þá nýbreytni að koma með matarvagna inn í hverfin meðan þetta óvissu ástand stendur yfir. Við byrjum um helgina og bætum svo virkum dögum við ef áhugi er fyrir hendi.“
Planið er að finna eina staðsetningu á hverjum stað á t.d. stóru bílastæði, þar sem gestir geta komið á bílunum sínum, ekið beint upp að vögnunum og tekið matinn með sér. Hægt verður að panta fyrir fram á Netinu eða í gegnum síma og sækja á tilteknum tíma. Einnig er verið að skoða möguleika á útkeyrslu.
„Hugmyndin er að ferðast um helstu hverfin á stór Reykjavíkursvæðinu og auglýsa sérstaklega hvar og hvenær við verðum á hverjum stað á Instagram og Facebook-síðu Reykjavik Street Food. Tilvalið fyrir þá, sem hafa tök á, að taka rúnt með fjölskyldunni og næla sér í bita án þess að eiga hættu á að hitta aðra í mikilli nánd.“

















Athugasemdir