„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gæti þurft að bíða þrjú ár eftir niðurstöðu

Gæti þurft að bíða þrjú ár eftir niðurstöðu

Bresk tán­ings­stúlka sem var dæmd fyrir að hafa logið um nauðgun kann að þurfa að bíða í þrjú ár eftir að fá end­an­lega nið­ur­stöðu í mál­inu. Stúlkan, sem sagði að sér hefði verið nauðgað af þremur ísra­elskum mönnum á Kýpur, var fund­inn sek um að hafa skáldað atvikið.

Lögmenn stúlkunnar segja hana hafa verið beitta harð­ræði af lög­reglu þar til hún dró ásak­anir sínar til baka. Kýp­verska dóms­kerfið og dóm­ar­inn í mál­inu hafa sætt harðri gagn­rýni vegna máls­ins.

Stúlkan, sem er 19 ára en hefur ekki verið nafn­greind, sagði að sér hefði verið nauðgað af þremur ísra­elskum ferða­mönnum í Ayia Napa í júlí sl. Hún dró fram­burð sinn til baka tíu dögum seinna en sam­kvæmt lög­mönnum stúlkunnar var henni haldið í átta tíma undir harðri yfir­heyrslu án lög­manns, áður en hún gaf sig. Þá var henni tjáð að hún fengi ekki að sjá móður sína fyrir en fyrir dómi.

Sérfrótt vitni sagði áverka stúlkunnar passa við frá­sögn hennar.

Kallað hefur verið eftir því að stúlkan verði náðuð en lög­menn hennar segja það ekki munu duga til þess að hreinsa mann­orð hennar. Hún hyggur á háskóla­nám og þeir segja að dóm­ur­inn muni valda henni vand­ræðum í námi og starfi.

Kveðið verður á um refs­ingu í næstu viku en þá munu lög­menn stúlkunnar hafa 10 daga til að áfrýja. Þeir munu freista þess að fá málið tekið aftur fyrir innan sex mán­aða en munu að öðrum kosti leita til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Máls­með­ferðin þar getur tekið þrjú ár.

Utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands hefur lýst yfir áhyggjum vegna máls­ins og er nú ýtt á hann um að hafa sam­band við stjórn­völd í Kýpur og fá þau til að beita sér fyrir því að hraða mál­inu.

Umfjöllun Guardian.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“