Nýlegar ljósmyndir af hinum þrettán ára Barron Trump, syni Donalds og Melaniu Trump, hafa vakið mikla athygli undanfarið. Barron litli er ekkert sérlega lítill lengur en á stuttum tíma hefur hann stækkað mikið og er orðinn töluvert hærri en foreldrar sínir.
Myndirnar sem um ræðir hafa farið sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum undanfarna daga og margt fólk hefur þá bent á að hann gæti orðið atvinnukörfuboltamaður haldi hann áfram að stækka.
Þess má geta að Donald Trump er 191 sentímetrar á hæð og Melania Trump er 180 sentímetrar á hæð.




















Athugasemdir