„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Flókið forval

Flókið forval

Demókra­ta­flokk­ur­inn og Repúblikana­flokk­ur­inn velja for­seta­efnið sitt í for­kosn­ingum, í öllum ríkjum og á banda­rísku yfir­ráða­svæð­unum. Valið hófst með kosn­ing­unum í Iowa og lýkur í Puerto Rico í júní.

Ljóst þykir að Donald Trump verði for­seta­efni Repúblikana­flokks­ins en mót­fram­bjóð­endur hans mæl­ast vart í könn­unum og þá hafa stjórnir flokks­ins í nokkrum ríkjum ákveðið að halda ekki for­kosn­ingar og beina þess í stað öllum tíma og fjár­munum í for­seta­kosn­ing­arnar í nóv­em­ber.

Það er erf­ið­ara að spá fyrir um hver verður fyrir val­inu hjá demókrötum en til að hljóta útnefn­ing­una þurfa for­seta­efnin að tryggja sér 1.990 kjör­menn af 3.979 í fyrstu umferð á lands­fund­inum sem hald­inn verður í júlí nk. Ef eng­inn nær þessum fjölda í fyrstu umferð fá svo­kall­aðir ofur­kjör­menn atkvæð­is­rétt og þá þarf 2.376 kjör­menn af 4.750 til að hljóta útnefn­ing­una.

For­kosn­ing­arnar eru afar flókið fyr­ir­bæri en þær eru af tvennum toga; for­val (e. caucus) og próf­kjör (e. primary). Flest ríki halda próf­kjör en for­val fer fram í Iowa, Nevada, Norður-Dakóta og Wyoming og á nokkrum yfir­ráða­svæðum. For­kosn­ing­arnar eru eina tæki­færi íbúa yfir­ráða­svæð­anna til að hafa sitt að segja, þar sem þeir hafa ekki kosn­inga­rétt í for­seta­kosn­ing­unum sjálfum.

Flokks­ráðin í hverju og einu ríki fyrir sig ákveða reglur for­kosn­ing­anna en í Iowa var m.a. ákveðið að 17 ára fengju að taka þátt í þetta sinn, að því gefnu að við­kom­andi yrðu orðnir 18 ára þegar for­seta­kosn­ing­arnar fara fram. Iowa skipt­ist í 1.765 umdæmi en ólíkt hefð­bundnu próf­kjöri, þar sem menn mæta og kjósa og fara, virkar for­valið þannig að menn mæta á kjör­fund og lýsa stuðn­ingi sínum við ákveð­inn fram­bjóð­anda með því t.d. að rétta upp hendur eða skipa sér í hópa á staðnum.

Ef fram­bjóð­andi fær færri en 15% atkvæða fá stuðn­ings­menn við­kom­andi að kjósa upp á nýtt og velja einn af þeim fram­bjóð­endum sem fékk fleiri en 15%. Það sama mun eiga við um próf­kjörin að þessu sinni; fram­bjóð­endur munu þurfa að fá fleiri en 15% atkvæða til að tryggja sér kjör­menn á lands­fund­inum en stuðn­ings­menn þeirra munu hins vegar ekki fá tæki­færi til að kjósa aftur, líkt og í Iowa, ef þeir ná ekki 15%.

Til að gera þetta enn flókn­ara er fylgi fram­bjóð­enda ekki mælt í atkvæðum í Iowa, heldur svoköll­uðum „rík­is­kjör­manna­í­gildum“ (e. state del­egate equivalents). Þannig hafði Butti­eg­ieg fengið 550 sde þegar 97% umdæma hafði skilað nið­ur­stöðum, Sanders 547 sde, Warren 381 sde og Biden 331 sde, en stuðn­ingur þeirra í pró­sentum er reikn­aður út frá þessum fjölda. Hvernig rík­is­kjör­manna­í­gildin eru reiknuð út er síðan enn önnur saga.

Fjallað er um for­seta­kosn­ing­arnar í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“