Í myndbandi sem hann póstaði á Twitter fyrir stundu greindi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, frá því að hann hefði greinst með COVID-19.
„Síðasta sólarhringinn hef ég fundið fyrir vægum einkennum og próf sýndi að ég er með kórónavírus,“ segir forsætisráðherrann. „Ég er nú í sjálfskipaðri einangrun en mun halda áfram að leiða viðbrögð ríkisstjórnarinnar í gegnum myndbandsfundi á meðan við berjumst við þennan vírus. Við munum sigrast á þessu saman #stayhomesavelives “
Hann sendir þakkir til heilbrigðisstarfsfólks í myndbandinu. Sömuleiðis þakkar hann fólkinu í landinu sem heldur sig nú heima til að draga úr útbreiðslu vírusins.























Athugasemdir