
Geymsluboxin koma þrjú saman í setti og eru gerð úr gegnheilli eik og hnotu. Boxin eru til margvíslegra nota, stílhrein og hagnýt og henta einkar vel í smærri rými. Hægt er að koma þeim fyrir hvar sem er á heimilinu; í herbergi barnanna, í svefnherberginu, stofunni eða á skrifstofunni. Efsta boxið er hægt að hafa opið og má leyfa fallegum bókum, tímaritum eða plöntum að njóta sín. Hönnunin er nútímaleg með fallegum smáatriðum og kemur skipulagi á hlutina.
View this post on Instagram
A post shared by Kristina Dam Studio (@kristinadamstudio) on Apr 1, 2020 at 10:25am PDT





















Athugasemdir