„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Uppskriftir að fallegu heimili

Farrow & Ball er máln­ing­ar­fyr­ir­tæki sem stofnað var árið 1946 í Dorset á Englandi en for­sprakkar fyr­ir­tæk­is­ins voru John Farrow og Richard Ball. Fyr­ir­tækið á sér langa sögu og hefur meðal ann­ars gefið út skemmti­legar bækur sem inni­halda ýmsan fróð­leik um liti og val á þeim.

Uppskriftir að fallegu heimili
Bókin er sett upp í formi upp­skrifta. Mynd/frá útgef­anda

Fyrir stofnun fyr­ir­tæk­is­ins, á meðan seinna stríð stóð sem hæst, starf­aði John hjá þekktu írsku máln­ing­ar­fyr­ir­tæki en hann var mennt­aður efna­fræð­ingur. Richard var verk­fræð­ingur að mennt sem var hand­tek­inn og sat í fanga­búðum nas­ista allt þar til stríði lauk.

Félag­arnir deildu mik­illi ástríðu fyrir litum og nýttu þekk­ingu sína og menntun til þess að búa til máln­ingu sem fljótt varð eft­ir­sótt. Strax við stofnun áttu þeir sér trausta við­skipta­vini. Bif­reiða­fram­leið­and­inn Henry Ford, reið­hjóla­fram­leið­and­inn Raleigh og breski her­inn voru þeirra helstu við­skipta­vinir strax frá upp­hafi og fyr­ir­tækið stækk­aði hratt.

Mynd/frá útgef­anda

Á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar kom akrýl- og plast­máln­ing fyrst fram á sjón­ar­sviðið. Alveg frá upp­hafi höfðu Farrow & Ball ein­ungis not­ast við olíu­máln­ingu og var tekin sú ákvörðun að halda í allar upp­runa­legar upp­skriftir en töldu félag­arnir að breytt efna­sam­setn­ing myndi bitna á gæðum lit­anna þar sem minni lit­ar­efni eru notuð í akrýl- og plast­máln­ingu.

Bókin er upp­spretta margra góðra hug­mynda. Mynd/frá útgef­anda
Lita­pal­lettur eru vel skil­greindar í bók­inni. Mynd/frá útgef­anda

Lita­kortin unnu þeir félagar út frá lit­unum í nærum­hverfi sínu í Dorset og eru þau kort enn til þó að fleiri litir hafi bæst við í tím­ans rás. Með því að halda í upp­runa­legu lit­ina hefur fyr­ir­tækið myndað sér mikla sér­stöðu. Á tíunda ára­tugnum var tekin afdrifa­rík ákvörðun innan fyr­ir­tæk­is­ins og mótuð var umhverf­is­stefna sem fól í sér að olíu­máln­ing­unni var skipt út fyrir vatns­leys­an­lega máln­ingu. Allar götur síðan hefur fyr­ir­tækið verið einn helsti máln­ing­ar­fram­leið­andi í Bret­landi ásamt því að fram­leiða vegg­fóður í stórum stíl.

Litirnir í umhverf­inu skipta miklu máli. Mynd/frá útgef­anda

Þekk­ing­unni sem skap­ast hefur innan fyr­ir­tæk­is­ins frá stofnun þess hefur nú verið safnað saman í bók­ina Recipes for decorating sem gefin var út í fyrra. Í bók­inni eru sýndar lita­sam­setn­ingar og sýnd eru fimmtán ólík híbýli þar sem lit­irnir eru teknir fyrir, rými fyrir rými, og sam­spil þeirra við birtu og lýs­ingu gerð góð skil.

Ásamt þessu er les­and­anum kennt hvernig hægt er að skapa gott and­rúms­loft með litum og efni en fyrir hvert rými eru sýnd lita­kort sem sett eru fram á skemmti­legan hátt í formi mat­ar­upp­skrifta og er hver upp­skrift upp­spretta margra góðra hug­mynda. Bókin er fáan­leg á Amazon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilið

Garðhúsgögnin komin í Rúmfatalagerinn: Vönduð, sterk og viðhaldsfrí
Kynning

Garð­hús­gögnin komin í Rúm­fatalager­inn: Vönduð, sterk og við­halds­frí

Rúm­fatalager­inn hefur í gegnum árin boðið upp á mikið úrval garð­hús­gagna og nú þegar stytt­ist í vorið er farið að stilla því nýjasta hvað þau varðar upp í versl­unum Rúm­fatala­gers­ins. „Þau er vönduð, sterk og við­halds­frí,“ segir Rósa Dögg Jóns­dóttir, mark­aðs­stjóri Rúm­fatala­gers­ins, um garð­hús­gögnin sem fást í versl­unum keðj­unnar hér á landi. „Hús­gögnin þola íslenska veðr­áttu vel – þau þola...
„Mikill misskilningur að lítil rými þurfi eingöngu að vera í ljósum litum“
Mannlífið

„Mikill mis­skiln­ingur að lítil rými þurfi ein­göngu að vera í ljósum litum“

Í litlum rýmum er mik­il­vægt að hönn­un­ar­lausnir séu góðar. Gott skipu­lag er einnig lyk­il­at­riði en auk þess þarf rým­is­upp­lifunin að vera ánægju­leg. Við tókum Katrínu Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt tali og báðum hana um að gefa les­endum góð ráð varð­andi hönnun á litlum rýmum. Katrín Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt útskrif­að­ist með BSc í inn­an­húss­arki­tektúr frá Art Institute of Fort Lauder­dale á Flórída en að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður