„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Endurvekur klassíska hönnun

Alessandro Sarfatti fram­leiðir fal­leg ljós sem byggja á tíma­lausri hönnun afa hans, hins virta Gino Safatti

Endurvekur klassíska hönnun

Hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Astep var stofnað af Alessandro Sarfatti, barna­barni ítalska ljósa­hönn­uð­ar­ins Gino Safatti, en hann hann­aði fjölda stór­feng­legra ljósa á sinni lífs­leið. Þrátt fyrir að hafa verið afar virkur í ítalska hönn­unar – sam­fé­lag­inu á sínum tíma og þá sér­stak­lega innan ljósa­geirans, var hann lítt þekktur þess utan þar til fyrir ekki alls löngu. Markmið Alessandro er að halda hönnun Gino Sarfatti afa síns á lífi og hans leið til þess var að hefja fram­leiðslu á vel völdum ljósum úr hans smiðju. Þær vöru­línur sem fyr­ir­tækið hefur þegar kynnt til leiks eru meðal ann­ars The Astep Collection sem inni­heldur nýja og fram­sækna hönnun og Flos with Sarfatti Collection sem er endur – fram­leiðsla á tíma­lausri hönnun Gino Sarfatti, en ljósin frá Astep eru með ein­dæmum glæsi­leg.

Alessandro Sarfatti, barna­barn ítalska ljósa­hönn­uð­ar­ins Gino Safatti.
Hönnun Astep

Ekki langt að sækja hæfileikana

Það má með sanni segja að Alessandro Sarfatti hafi verið fædd – ur inn í ljósa­brans­ann en Gino afi hans stofn­aði fyr­ir­tækið Arte – luce sem var keypt af Flos árið 1973 er Gino lét af störfum. Flos lagði vöru­merkið Arteluce niður árið 1996, en á þessum tíma voru áherslu­breyt­ingar innan veggja Flos með til­komu nýs fram­kvæmda­stjóra. Því miður virð­ist sem svo að hvoru­tveggja, Arteluce og hönn­un­ar­verk Gino Sarfatti, hafi gleymst. Þrátt fyrir að Sarfatti-fjöl­skyldan hafi selt Arteluce héldu þau ótrauð áfram að fram­leiða fal­lega og nýstár­lega ljós­gjafa. Faðir Alessandro, Riccardo Sarfatti, starf­aði lengi vel fyrir Flos og stofn­aði í kjöl­farið sitt eigið fyr­ir­tæki árið 1978, hið góð­kunna Luceplan. Alessandro hélt í fjöl­skyldu­hefð­ina og hóf að starfa fyrir fyr­ir­tæki föður síns og tók þar stöðu fram­kvæmda­stjóra árið 2005. Fyr­ir­tækið hefur nú verið selt áfram til raf­tækj­aris­ans Philips og í fram­haldi flutt­ist Alessandro til Dan­merkur ásamt eig­in­konu sinni og setti á lagg­irnar sitt eigið ljósa­fyr­ir­tæki, Astep.

„Ég hef alltaf litið upp til og dáðst mjög að afa, hann hafði afar fjörugt ímynd­un­ar­afl og hann­aði sín verk á þeim tíma sem Ítalía var að ná sér á strik eftir stríðið.“

 

Hönnun Astep Hönnun Astep

Farsælt samstarf

Alessandro seg­ist hafa rýnt vel í alla þá vinnu sem afi hans lagði til borðs á sínum starfs­ferli. „Ég hef alltaf litið upp til og dáðst mjög að afa, hann hafði afar fjörugt ímynd­un­ar­afl og hann­aði sín verk á þeim tíma sem Ítalía var að ná sér á strik eftir stríðið. Í seinni tíð hef ég varið miklum tíma í að reyna að skilja og rann­saka hann út frá mann- og sál­fræði­legu sjón­ar­horni, en ég tel hann hafa verið nokkuð mis­skil­inn mann.“ All­flestir áhuga­menn um klass­íska hönnun ættu að vera nokkuð kunn­ugir vöru­merk­inu Flos sem er einn virt­asti ljósa­fram­leið­andi heims. Í sam­vinnu við fyr­ir­tækið hóf Alessandro end­ur­fram­leiðslu á vel völdum og klassíkum ljós­gjöfum eftir Gino afa sinn. Aukinn áhugi var á hönnun Gino eftir sýn­ingu á verkum hans á Triennale Design Museum í Mílanó árið 2012 og í kjöl­farið ákvað Flos að dusta rykið af þess­ari tíma – lausu klassík. Útlit ljósanna er nákvæm eft­ir­mynd af teikn­ingum hönn­uð­ar­ins en þó var ákveðið að inn­leiða LED-tækn­ina í alla end­ur­fram­leidda ljós­gjaf­ana til að stand­ast nútíma­kröfur. Sam­starfi Piero Gandini hjá Flos og Alessandro Sarfatti er hvergi nær lok – ið, en þessar tvær fjöl­skyldur eru bundnar sterkum sögu­legum tengslum. Það væri mik­ill missir fyrir hönn – unar­sög­una að láta meist­ara­verk Gino Sarfatti falla í gleymsku. Sjálfur segir Alessandro ævin­týrið vera rétt að byrja, enda situr hann á yfir 600 teikn­ingum sem aldrei hafa litið dags­ins ljós því greini­legt er að spenn­andi hlutir eru fram undan hjá Astep.

Hönnun Astep
Hönnun Astep
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður