„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Boris Johnson ver brot aðalráðgjafa síns

Boris Johnson ver brot aðalráðgjafa síns
Boris Johnson þykir ekki hafa veitt grein­ar­góðar upp­lýs­ingar á blaða­manna­fund­inum í gær. Mynd / EPA|Mót­mæl­andi fyrir utan heim­ili Johnsons í dag.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, lýsti því yfir á dag­legum blaða­manna­fundi ríks­is­stjórn­ar­innar í dag að hann ætl­aði ekki að krefj­ast afsagnar aðal­ráð­gjafa síns, Dominics Cummings, vegna brota þess síð­ar­nefnda á reglum um útgöngu­bann í Bret­landi. Johnson segir Cummings hafa sýnt ábyrgð og farið að lögum. „Hann gerði það sem allir feður myndu gera,“ sagði Johnson á fund­inum.

Forsaga máls­ins er sú að Cummings fór að minnsta kosti tvisvar akandi þvert yfir England til að heim­sækja for­eldra sína og koma syni sínum í pössun eftir að bæði hann og eig­in­kona hans sýndu ein­kenni Covid-19. Málið hefur vakið gríð­ar­lega reiði í Bret­landi fjöl­miðlar og Twitterreikningar hafa bein­línis logað af bræði og meðal þeirra sem hafa tjáð sig eru nokkrir þing­menn Íhalds­flokks­ins sem hafa opin­berað and­stöðu sína við skoðun Johnsons og kraf­ist þess að Cummings segði af sér.

Ýmist frægð­ar­fólk hefur sömu­leiðis tjáð sig um málið með afger­andi hætti. Piers Morgan, stjórn­andi morg­un­þátt­ar­ins Good Morning Britain á ITV-sjón­varps­stöð­inni, hefur lýst því yfir að héðan af verði allir þeir ráð­herrar sem studdu ákvörðun Johnsons bann­aðir í þætt­inum. Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, hefur jafn­framt lýst þeirri skoðun sinni að afsögn Cummings sé óhjá­kvæmi­leg, en sjálf þurfti hún að láta land­lækni Skotlands fjúka vegna brots á útgöngu­banni.

Stjórn­mála­skýrendur telja að málið muni veikja rík­is­stjórn­ina og minnka traust á henni, það sé ekki hægt að gera und­an­tekn­ingar fyrir hátt­setta ein­stak­linga á reglum sem mjög margir hafi lagt mikið á sig til að fylgja. Almenn­ingur í Bret­landi hefur til dæmis ekki getað kvatt þá ást­vini sína sem lát­ist hafa úr Covid-19, né heldur fylgt þeim til grafar.

Mót­mæl­andi fyrir utan heim­ili Cummings í dag.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“