„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fékk bleyju senda í pósti – „Er þetta ekki full langt gengið?“

Fékk bleyju senda í pósti – „Er þetta ekki full langt gengið?“

Í vik­unni hafa ein­hverjum nýbök­uðum for­eldrum borist bleyjur frá Libero í pósti. Dagur Bollason er einn þeirra en hann vekur athygli á þess­ari mark­aðs­her­ferð á Twitter. Hann setur spurn­ing­ar­merki við aðferð Libero á Íslandi sem honum þykir heldur ósvífin.

„Þetta fékk ég sent í pósti í morgun. Eru sem sagt mark­aðs­fyr­ir­tæki að skrapa saman kenni­tölum nýfæddra barna úr þjóð­skrá og hafa svo upp á for­eldrum til að senda þeim óum­beðið mark­aðs­efni þó maður sé með rauð­merktan póst­kassa? Er þetta ekki full langt gengið?“ skrifar Dagur í færslu á Twitter.

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Dagur hafa sent skila­boð til Libero á Íslandi til að koma athuga­semd sinni á fram­færi. „Þau sögð­ust hafa skiln­ing á þessu en þetta er tækni­lega lög­legt,“ segir Dagur.

Í lagi að senda á foreldra

Samkvæmt reglum Þjóð­skrár Íslands er óheim­ilt að senda mark­póst til barna, en heim­ilt er að senda mark­aðs­efni til for­eldra barna að því gefnu að þeir séu ekki skráðir á bann­skrá.

Í Twitter færsl­unni tekur Dagur fram að hann sé með „rauð­merktan póst­kassa“ en í athuga­semd við færsl­una er honum bent á að slík merk­ing frá Póstinum dugi ekki til heldur þurfi hann að skrá sig á bann­skrá sem Þjóðskrá heldur yfir þá sem vilja ekki að nöfn þeirra komi fram á úrtaks­listum sem kann að vera beitt í mark­aðs­setn­ing­ar­skyni.

Færslu Dags má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

markaðsfræði

Bragi Valdimar lætur auglýsendur heyra það: „Þið megið gjarnan hysja upp um ykkur ígerð nærhöldin“
Innlent

Bragi Valdimar lætur aug­lýsendur heyra það: „Þið megið gjarnan hysja upp um ykkur ígerð nær­höldin“

Bragi Valdimar Skúlason lætur aug­lýsendur heyra það í nýrri Facebook-færslu. Baggalút­ur­inn, sjón­varps­mað­ur­inn og íslensku­sjéníið Bragi Valdimar Skúlason lætur aldeilis gamm­inn geisa í nýrri Facebook færslu þar sem hann agn­ú­ast út í ensku­slettur í aug­lýs­ingum fyrir kom­andi bik­svartan föstu­dag og þakka­gjörð­ar­há­tíð­ina. Fyrr í mán­uð­inum hafði hann einnig gagn­rýnt „sing­les day“ mark­aðs­setn­ing­una harð­lega. Sjá einnig: Bragi Valdimar ósáttur: „Megið troða „sing­les day“...
Thelma nýr framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar
Innlentmarkaðsfræði

Thelma nýr fram­kvæmda­stjóri Mark­aðs­stofu Hafn­ar­fjarðar

Thelma Jóns­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Mark­aðs­stofu Hafn­ar­fjarðar og hóf hún störf 1. apríl, eins og kemur fram á vef mark­aðs­stof­unnar. Thelma er með MBA próf frá Háskóla Íslands og meistara­gráðu í mark­aðs­sam­skiptum frá Freie Uni­versität í Berlín. Hún starf­aði áður sem rekstr­ar­stjóri fata­verk­efnis Rauða kross Íslands og mark­aðs- og kynn­ing­ar­stjóri hjá End­ur­menntun Háskóla Íslands. Thelma hefur verið öflug í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“