„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Létu drauminn rætast

Létu drauminn rætast

Skammt utan við ys og þys höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins stendur fal­legt timb­ur­hús á gró­inni lóð. Þar búa heið­urs­hjón í sannri sveita­róm­an­tík.

Land­svæðið sem húsið stendur á hefur verið sum­ar­húsa­byggð um margra ára­tuga skeið. Húsið sem um ræðir var for­smíðað og flutt í heilu lagi á lóð­ina árið 1991 en áður hafði staðið þar tölu­vert eldra hús sem var komið til ára sinna og því rifið. Gamla húsið hafði þjónað sínum til­gangi vel en áður tíðk­að­ist að fólk flutti í sum­ar­húsið yfir sum­ar­tím­ann og aftur í bæinn á haustin.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Hjónin sem við heim­sóttum höfðu lengi dreymt um að eign­ast sum­ar­hús á svæð­inu og höfðu athugað þann mögu­leika að fá lóð og byggja á svæð­inu en engar lóðir voru í boði. Það heyrði til und­an­tekn­inga að sum­ar­hús á svæð­inu væru til sölu þar sem mörg þeirra hafa gengið í erfðir en var það fyrir til­viljun eina að hjón­unum bauðst húsið til kaups árið 2014. Þau voru ekki lengi að hugsa sig um enda biðin búin að vera löng eftir sum­ar­húsi. Þeim lík­aði hins vegar veran þar svo vel að þau ákváðu að flytj­ast búferlum og hafa búið alfarið í hús­inu síðan.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Handlagin hjón

Eftir kaupin á hús­inu hófust hjónin fljótt handa við að stækka húsið og breyta innra skipu­lag­inu. Eldhúsið sem áður hafði verið í lok­uðu rými var flutt fram og svefn­her­bergi komið fyrir þar sem áður hafði verið eld­hús. Einnig byggðu þau litla við­bygg­ingu við húsið og fengu þannig betri stofu. Húsið hefur vaxið og breyst með eig­end­unum og breyst í tím­ans rás en það má segja að þess háttar breyt­ingar séu ein­kenn­is­tákn íslenskrar bygg­ing­ar­arf­leifðar allt frá því að fyrsti torf­bær­inn var byggður. Hjónin eru þekkt fyrir að vera afar hand­lagin og fellur þeim sjaldn­ast verk úr hendi en ásamt breyt­ingum á íbúð­ar­hús­inu hafa þau byggt á lóð­inni hænsna­kofa, verk­færa­skúr og gróð­ur­hús ásamt því að hafa gert upp gesta­hús sem fyrir var.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Hús­móð­irin nostrar við heim­ilið inn­an­dyra á meðan hann vinnur úti en hún er þekkt fyrir ein­stak­lega vandað og fal­legt hand­verk og gefur það heim­il­inu róm­an­tískan blæ. Kyrrð og ró ríkir yfir svæð­inu og fugla­lífið er ein­stakt. Við kveðjum hjónin og fal­lega heim­ilið þeirra sem sveipað er sönnum ævin­týra­ljóma.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg
Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilið

Garðhúsgögnin komin í Rúmfatalagerinn: Vönduð, sterk og viðhaldsfrí
Kynning

Garð­hús­gögnin komin í Rúm­fatalager­inn: Vönduð, sterk og við­halds­frí

Rúm­fatalager­inn hefur í gegnum árin boðið upp á mikið úrval garð­hús­gagna og nú þegar stytt­ist í vorið er farið að stilla því nýjasta hvað þau varðar upp í versl­unum Rúm­fatala­gers­ins. „Þau er vönduð, sterk og við­halds­frí,“ segir Rósa Dögg Jóns­dóttir, mark­aðs­stjóri Rúm­fatala­gers­ins, um garð­hús­gögnin sem fást í versl­unum keðj­unnar hér á landi. „Hús­gögnin þola íslenska veðr­áttu vel – þau þola...
„Mikill misskilningur að lítil rými þurfi eingöngu að vera í ljósum litum“
Mannlífið

„Mikill mis­skiln­ingur að lítil rými þurfi ein­göngu að vera í ljósum litum“

Í litlum rýmum er mik­il­vægt að hönn­un­ar­lausnir séu góðar. Gott skipu­lag er einnig lyk­il­at­riði en auk þess þarf rým­is­upp­lifunin að vera ánægju­leg. Við tókum Katrínu Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt tali og báðum hana um að gefa les­endum góð ráð varð­andi hönnun á litlum rýmum. Katrín Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt útskrif­að­ist með BSc í inn­an­húss­arki­tektúr frá Art Institute of Fort Lauder­dale á Flórída en að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður