Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í borginni Grenoble í Frakklandi á þriðjudag. Bræður, þriggja og tíu ára, tóku þá ákvörðun að stökkva út um glugga á þriðju hæð í húsinu til að forða sér frá eldinum. Fallið var um 10 metrar, en mannfjöldi fyrir neðan greip bræðurna.
Greint var frá björguninni í erlendum miðlum, en Fréttablaðið greindi fyrst frá hérlendis.
Bræðurnir sluppu ómeiddir, en voru fluttir á sjúkrahús vegna mögulegrar reykeitrunar. 17 aðrir íbúar hússins voru einnig fluttir á sjúkrahús. Fjórir af björgunarmönnum bræðranna þurftu einnig á læknisaðstoð að halda vegna áverka sem þeir hlutu við björgunina.




















Athugasemdir