„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hamingjan er til eftir skilnað hvort sem fyrrverandi trúir því eður ei

Hamingjan er til eftir skilnað hvort sem fyrrverandi trúir því eður ei
Mynd / Unsplash

„Betra er autt rúm en illa skipað,“ sagði ein­hver og ég er ekki frá því að það sé búið að vera eitt af mínum mottóum í líf­inu frá því ég skildi fyrir fimm árum síðan. Ein­hverra hluta vegna virð­ast þó ekki allir átta sig á því að maður geti verið sáttur við autt rúm (og vel skipað). Það er eins og frá­skilda, ein­hleypa fólkið eigi að vera nið­ur­brotið og það geti hrein­lega ekki verið að maður sé ánægður með lífið svona einn. Þann mis­skiln­ing þarf að leið­rétta.

Það getur verið mik­ill léttir að taka ákvörðun um að fara hvort í sína átt­ina en skiln­aður er samt alltaf leið­in­legur, jafn­vel bara alveg ömur­legur. Enginn ákveður að gifta sig með það fyrir augum að skilja svo einn góðan veð­ur­dag. Fólk gift­ist og ætlar sér að eiga rest­ina af ævinni saman. En því er ekki alltaf þannig farið. Stundum er skiln­aður það eina í stöð­unni og jafn­vel löngu tíma­bær.

Það er samt vesen að skilja. Það þarf að ákveða hver fær spari­stellið, hver tekur kött­inn, hver fær sjón­varps­sófann og svo fram­vegis. Það þarf að ganga frá ýmsum málum, mæta á fundi með fyrr­ver­andi sem mann langar kannski ekk­ert endi­lega að hitta svo mikið, og kom­ast að sam­komu­lagi um eitt og annað sem getur verið flókið. Og leið­in­legt. Svo hefur maður auð­vitað heil­miklar áhyggjur af áhrif­unum sem skiln­að­ur­inn hefur á börnin, ef börn eru í spil­inu.

Kannski er maður svo feg­inn því að vera loks­ins laus úr þessu sam­bandi að maður vildi óska þess að maður þyrfti ekk­ert að díla við fyrr­ver­andi. En það er nauð­syn­legt vegna barn­anna og von­andi reyna flestir að haga sér vel þeirra vegna. Þau barn­lausu eru heppin að því leyt­inu til að geta bara kvatt og skellt á eftir sér og þurfa svo ekki að spá meira í fyrr­ver­andi frekar en þau vilja.

„Þegar einar dyr lok­ast opn­ast aðrar, en oft horfum við svo lengi á þær sem eru lok­aðar að við tökum ekki eftir þeim sem voru opn­aðar fyrir okkur.“ -Helen Keller

Af hverju þarf maður endilega að vera óhamingjusamur eftir skilnað?

Jafnvel fyrir þau okkar sem finna fyrir miklum létti þegar sam­band­inu lýkur, er skiln­aður erf­iður. Vesenið við allar breyt­ing­arnar getur verið yfir­þyrm­andi og svo eru sam­skiptin við hinn aðil­ann ekk­ert endi­lega upp á sitt besta. En það tekur enda og einn dag­inn skiptir það engu máli hver sagði hvað, gerði hvað og allt það.

Þetta er auð­vitað erfitt, ég ætla ekki að reyna að telja ykkur trú um annað, en þetta tekur enda. Erfiðast er kannski að finna rétta far­veg­inn fyrir sam­skiptin og koma þeim í fastar skorður því það er ekki svo auð­velt að ætla að klippa á öll sam­skipti ef börn eru í spil­inu. Þá þarf að gera alls konar ráð­staf­anir sem eru aðeins flókn­ari en bara að ákveða hvernig eigi að skipta upp eld­hús­á­höld­unum. Það þarf að ákveða hvar eigi að sækja börnin og hvernig eigi að bera sig að ef eitt­hvað mik­il­vægt gleym­ist á hinu heim­il­inu eða úlpan týn­ist í skól­anum.

Mynd / Unsplash

Gert ráð fyrir að maður sé í sárum

Ein vin­kona mín skildi við sinn mann nokkrum mán­uðum á undan mér, eftir svipað langt hjóna­band. Hún er enn að jafna sig eftir skiln­að­inn, mörgum árum seinna. Hún seg­ist ekki skilja hvernig ég geti verið svona sterk og laus við allar til­finn­ingar í garð míns fyrr­ver­andi. Munurinn á okkur vin­kon­unum er sá að hún átti ekki von á því að skilja. Hún taldi sig vera í góðu hjóna­bandi og ham­ingju­sam­lega gifta. Það kom algjör­lega aftan að henni þegar mað­ur­inn hennar sagð­ist elska aðra konu og vilja skilnað.

Í mínu til­felli var þetta kær­komið og löngu tíma­bært. Það hvarflar aldrei að mér að mig langi að snúa til baka, ég hugsa aldrei um að vilja breyta neinu sem var eða að gott hefði verið að breyta ein­hverju til að bjarga hjóna­band­inu og ég sakna einskis úr gamla líf­inu mínu. Ég lifi frá­bæru lífi í dag og gæti ekki verið ánægð­ari með allar breyt­ing­arnar sem hafa orðið til góðs.

Samt finnst mér sumir gera ráð fyrir því að ég sé í sárum. Hann strax kom­inn með nýja konu og far­inn að búa með henni, en ég „bara ein með strák­ana mína“. Hvers vegna heldur fólk að ein­hleypi aðil­inn geti ekki verið ham­ingju­samur þrátt fyrir að vera ekki kom­inn í annað sam­band?

Auðvelt að skella skuldinni á biturleika og afbrýðisemi

En svo eru það sam­skiptin við fyrr­ver­andi sem telur að minnsti pirr­ingur í hans/hennar garð þýði að maður sé afbrýði­samur, svekktur og gráti í kodd­ann yfir þess­ari „full­komnu guðs­gjöf“ sem rann manni úr greipum við skiln­að­inn.

Ekkert má segja, hvað þá ef það telst vera gagn­rýni, án þess að fá þau við­brögð að maður sé nú bara bitur og afbrýði­samur klikk­haus. Það er auð­velt að skella skuld­inni á það, sem er svo­lítið ódýr afgreiðsla. Kannski á við­kom­andi bara aðeins erf­ið­ara með að horfa á upp hinn aðil­ann í góðum málum og líða vel, halda áfram að lifa sínu lífi þrátt fyrir að vera frá­skilin/n og enn á lausu?

Ég reyndi að gúgla eitt­hvað um þetta, að hægt sé að vera ham­ingju­samur eftir skilnað, en vitið hvað? Það var hæg­ara sagt en gert. Mjög mikið af því ég fann á net­inu fjall­aði um hversu erfitt það sé að horfa upp á nýjan aðila með nýjum maka, erfitt að sjá fyrr­ver­andi glaða/n og ráð gefin um það hvernig hægt er að næla í fyrr­ver­andi aftur (ugh, nei, takk!). Það er því kannski bara sjálf­gefið að fólk haldi að sé maður einn eftir skilnað, sé maður óham­ingju­samur. En ég held að því fari fjarri mun oftar en fólk gerir sér grein fyrir, og kæri sig um að átta sig á.

„Það er samt vesen að skilja. Það þarf að ákveða hver fær spari­stellið, hver tekur kött­inn, hver fær sjón­varps­sófann og svo fram­vegis.“

Konur fara ekki strax á stúfana að leita að nýjum maka

Konur eru ham­ingju­sam­ari og sátt­ari við lífið eftir skilnað en karlar, sam­kvæmt rann­sókn sem gerð var í Bret­landi á tíu þús­und frá­skildum konum og körlum fyrir nokkrum árum. Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sýndu fram á að ástæð­urnar fyrir því væru helst þær að konur:

*Leituðu sér frekar aðstoðar við að vinna úr sínum málum en karlar.

*Fengju frekar styrk frá góðum vinum og fjöl­skyldum.

*Leituðu frekar inn á við til að takast á við vand­ann á meðan karl­arnir leit­uðu að ein­hverju út á við.

*Notuðu síður áfengi, eit­ur­lyf, ný sam­bönd og skyndikynni til að dreifa hug­anum frá skiln­að­inum.

*Færu frekar að upp­lifa nýja hluti en karlar til að auðga líf sitt og gefa þeim von fyrir fram­tíð­ina.

*Væru lík­legri til að for­gangs­raða þörfum sínum.

*Hefðu meiri þraut­seigju til að halda áfram að sinna því sem þarf að sinna, t.d. skyldum varð­andi börnin, og njóta þess þrátt fyrir að vera maka­lausar.

*Væru ekki til­finn­inga­lega sterk­ari en karlar en tækjust öðru­vísi á við til­finn­inga­leg áföll og ættu þannig auð­veld­ara með að halda áfram lífi sínu og vera ham­ingju­sam­ari en karlar eftir skilnað.

*Væru lík­legri til að vera sáttar í eigin skinni en karlar. Þær hefðu ekki áhyggjur af því að vera einar og skildu mik­il­vægi þess að ná að jafna sig almenni­lega eftir skiln­að­inn og vinna úr sínum málum áður en þær stykkju í annað sam­band. Þær færu ekki strax á stúf­ana að leita að ein­hverjum sem kæmi í stað þeirra fyrr­ver­andi, eins og karlar gera svo gjarnan.

„Það er kannski bara sjálf­gefið að fólk haldi að sé maður einn eftir skilnað, sé maður óham­ingju­samur.“

Bakpokinn léttist ekki nema tekið sé til í honum

Auðvitað þekkir maður dæmi þess að konur eigi erfitt með að vera einar og stökkvi úr einu sam­bandi yfir í annað, en án þess að hafa neinar vís­inda­legar stað­reyndir fyrir mér í því finnst mér eins og það sé algeng­ara að karl­arnir stökkvi frekar strax eða fljót­lega í nýtt sam­band. Að minnsta kosti er það nær und­an­tekn­inga­laust þannig í þeim til­fellum sem eru í kringum mig.

Við konur erum líka svo miklar til­finn­inga­verur, við hugsum með hjart­anu en karlar með … tjah, þriðja aug­anu sem er stað­sett neð­ar­lega fyrir miðju?

Kannski eiga karlar svona erfitt með að vera einir eða hafa þörf fyrir að sýna að þótt þeir hafi verið að skilja sé allt í himna­lagi hjá þeim því þeir séu sko komnir með nýja skvísu upp á arm­inn. En málið er það, að hafi bak­pok­inn sem við ferð­umst öll með í gegnum lífið verið fullur af drasli í gamla sam­band­inu létt­ist hann ekk­ert þegar farið er yfir í það næsta ef draslið er ekki tæmt úr honum. Þetta er líka svo­lítið eins og með geymsl­una, maður er rosa­lega ánægður með það hvað er mikið pláss í henni en hún er fljót að fyll­ast ef maður er alltaf að henda ein­hverju inn í hana án þess að fara reglu­lega með dót úr henni í Sorpu.

Þannig að ves­enið fylgir bara yfir í næsta sam­band ef ekk­ert er gert, því til­tektin byrjar jú hjá manni sjálfum. Oft er það nefni­lega svo að maður vill gjarnan kenna öðrum um óham­ingj­una og það sem miður fer í stað þess að líta í eigin barm. Og þá er nú líka gott að fara strax yfir í annað sam­band; ást­ar­bloss­inn yljar og fær mann til að gleyma hinum leið­ind­unum. En þetta er eins og að míga í skó­inn sinn til að hlýja sér, það yljar bara í skamma stund.

Að öðl­ast frelsi var eitt, að eigna þér það frelsi var annað.“ -Toni Morrison

Vonandi gerir maður ekki aftur sömu mistök

Pirr­ingur í sam­skiptum við fyrr­ver­andi stafar ekki endi­lega af því að maður sé afbrýði­samur og til­finn­ingar í hans/hennar garð séu að bera mann ofur­liði. Hafið þið hugsað um það að kannski stafar pirr­ing­ur­inn af ára­langri óham­ingju með við­kom­andi, af því að maður er loks­ins laus við hann en nei, þarf samt að eiga í sam­skiptum við hann barn­anna vegna. Og þótt maður reyni að vanda sig í sam­skipt­unum einmitt þeirra vegna, er það bara drullu­erfitt af því að fyrr­ver­andi er enn þá sami leið­inda­púk­inn og hann var í sam­búð­inni hérna um árið.

Að vissu leyti er erfitt að við­ur­kenna að maður sé ham­ingju­sam­ari en nokkru sinni fyrr eftir skilnað. Er maður þá að segja að maður hafi verið óham­ingju­samur í mörg ár og sætt sig við það þegj­andi og hljóða­laust? Hvers vegna gerði maður ekk­ert í mál­unum? Hugsa sér öll árin, sem maður var óham­ingju­samur og sóaði dýr­mætum tíma. „Sorrí, krakkar, en ég elskaði ekki pabba ykkar/mömmu ykkar í raun­inni, þetta rúll­aði bara ein­hvern veg­inn. Ekki gera eins og ég, veljið ykkur frá­bæran maka sem þið eruð ótrú­lega ánægð með og viljið verða gömul með.“

Ég við­ur­kenni að lengi vel fannst mér ég eiga að segja fólki að ég væri voða­lega leið eftir skiln­að­inn, af því „að það þannig er það bara hjá öllum“ og af því að mér fannst vand­ræða­legt að við­ur­kenna að ég hefði ein­fald­lega látið það yfir mig ganga að vera óham­ingju­söm í mörg ár.

„Ég vil frekar iðr­ast þess sem ég gerði en þess sem ég gerði ekki.“ -Lucille Ball

Það er hægt að verða hamingjusamur á ný

En svo lengi lærir sem lifir og það góða við að átta sig á því og við­ur­kenna að maður sé ham­ingju­sam­ari núna en áður, er að þá eru von­andi litlar sem engar líkur á því að maður geri sömu mis­tök í maka­vali þegar þar að kemur. Svo er líka gaman að rasa aðeins út, njóta þess að kynn­ast nýju fólki og leyfa sér að hafa gleði í líf­inu. Þetta er til­valið tæki­færi til að finna sjálfa/n sig upp á nýtt, finna sér ný áhuga­mál, ferð­ast – já, jafn­vel ferð­ast ein/n, það er ekk­ert að því. Að fara ein til sól­ar­landa síð­ustu árin er til dæmis ein besta ákvörðun lífs míns.

Fyrir þau ykkar sem eruð að skilja, langar að skilja eða eruð nýskilin, munið að þið voruð ham­ingju­söm áður en þið fóruð í þetta sam­band eða giftuð ykkur og getið alveg orðið ham­ingju­söm á ný. Þið þurfið ekki maka til að gera ykkur ham­ingju­söm.

Við höfum alltaf val um það hvernig við lítum á aðstæð­urnar. Það ert þú sem hellir sjálf/ur í glasið, svo þú ræður hvort þú hellir það hálf­tómt eða hálf­fullt.

„Hafi bak­pok­inn sem við ferð­umst öll með í gegnum lífið verið fullur af drasli í gamla sam­band­inu létt­ist hann ekk­ert þegar farið er yfir í það næsta ef draslið er ekki tæmt úr honum.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu