„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Með veiðibakteríuna í blóðinu

Með veiðibakteríuna í blóðinu
22. tbl. 2020, ferða­lög, fiskur, María Anna Clausen, Veiði, Veiði­hornið, veiði­kona, VI2005126413

María Anna Clausen hefur haft ástríðu fyrir veiði nán­ast síðan hún man eftir sér og þegar hún kynnt­ist ást­inni í lífi sínu, Ólafi Vig­fús­syni, smit­aði hún hann svo ræki­lega af veiði­bakt­er­í­unni að síðan má segja að allt þeirra líf hafi snú­ist um veiði. Auk þess að reka Veiði­hornið í Síðumúla, þar sem þau selja allt sem til veið­innar þarf, nota þau hverja frí­stund til að veiða og hafa und­an­farin ár farið í veiði­ferðir til sex heims­álfa, þar sem þau hafa meðal ann­ars lært að verj­ast árásum hákarla og sjó­ræn­ingja. 

María ólst upp í Kópa­vog­inum og vand­ist því frá barns­aldri að fara út á land í veiði­ferðir um helgar. „For­eldrar mínir voru mikið úti­vi­star­fólk og ég er alin upp við að veiða,“ útskýrir hún. „Mamma og pabbi fóru um hverja ein­ustu helgi allt sum­arið út á land og yfir­leitt var tjaldað hjá ein­hverju vatni og veitt. Þannig að ég fékk strax brenn­andi ástríðu fyrir veiði, hún hefur bara ágerst með aldr­inum og þetta er orðið mjög slæmt í dag,“ bætir hún við og skelli­hlær.

María fór í Verzlunarskólann og segir það alltaf hafa legið fyrir að hún ætl­aði sér að starfa við ein­hvers konar við­skipti, en eftir stúd­ents­próf tók hún þó eilítið aðra stefnu og fór í nám í fisk­eldi á Hólum í Hjalta­dal, hvernig stóð á því? „Það var bara áhugi á veiði og fiskum,“ segir hún eins og það hljóti að liggja í augum uppi og spurn­ingin sé því óþörf.

Eig­in­maður Maríu, Ólafur Vig­fús­son, var líka í Verzlunarskólanum en þau kynnt­ust þó ekki þar heldur á hinn klass­íska íslenska máta; á balli á Broadway. Margir halda að áhug­inn á veið­inni hafi leitt þau saman, en sú var þó ekki raunin. „Eftir að við hitt­umst á Broadway og byrj­uðum að vera saman fór hann með okkur pabba og mömmu í veiði­túr og fékk bakt­er­í­una eig­in­lega strax,“ útskýrir María. „Síðan höfum við farið í veiði eins oft og við getum, tókum strák­ana okkar þrjá með þegar þeir voru litlir en tókst ekki að gera þá að eins áköfum veiði­mönnum og við erum, ég held við höfum alveg yfir­keyrt þá sem börn, þeim fannst gaman að veiða en það tóku ýmis önnur áhuga­mál við hjá þeim á ung­lings­ár­unum, en þeir eru farnir að koma stundum með okkur í veiði aftur og ég á nú von á því að þeir fái veiði­á­hug­ann aftur með tím­anum.“

Kúnnarnir héldu að einhver hefði gleymt barni

Árið 1998 keyptu María og Ólafur Veiði­mann­inn í Hafn­ar­stræti og síðan má eig­in­lega segja að allt þeirra líf, bæði í vinn­unni og einka­líf­inu, hafi snú­ist um eitt­hvað sem teng­ist veiði­skapnum. Þau hafa alltaf unnið saman í búð­inni og farið saman í veiði­t­úra, er ekk­ert erfitt að vera svona saman allan sól­ar­hring­inn, alla daga? „Nei, þetta er bara ógeðs­lega gaman og gott og nota­legt,“ segir María með sann­fær­ing­ar­krafti. „Yngsti sonur okkar var eins árs þegar við keyptum Veiði­mann­inn og við höfðum hann með okkur í vinn­una líka til að byrja með. Við létum hann sofa fyrir utan búð­ina í vagn­inum sínum og það kom oft fyrir að fólk opn­aði búð­ar­dyrnar og kíkti inn, sá að þar var eng­inn við­skipta­vinur og sagði okkur að það hlyti ein­hver að hafa gleymt barni fyrir utan. Ég held ég myndi nú ekki þora að láta smá­barn sofa í vagni úti á götu í mið­bænum í dag, en á þeim tíma var þetta bara sjálf­sagt mál.“

„Við létum hann sofa fyrir utan búð­ina í vagn­inum sínum og það kom oft fyrir að fólk opn­aði búð­ar­dyrnar og kíkti inn, sá að þar var eng­inn við­skipta­vinur og sagði okkur að það hlyti ein­hver að hafa gleymt barni fyrir utan.“

Rekst­ur­inn á Veiði­mann­inum blómstr­aði og árið 2001 færðu María og Ólafur út kví­arnar og opn­uðu Veiði­hornið í Síðumúla. Þau ráku báðar búð­irnar í sjö ár en tóku þá ákvörðun að loka í mið­bænum árið 2008, rétt fyrir hrun. „Við vorum eig­in­lega bara að skella í lás í Hafn­ar­stræt­inu þegar kreppan skall á,“ segir María. „Hún var þó ekki ástæðan fyrir í því að við ákváðum að loka, fólk var farið að flýja úr mið­bænum á þessum tíma og fyr­ir­tækin líka. Skortur á bíla­stæðum var sér­stak­lega baga­legur fyrir svona búð eins og Veiði­mann­inn, þú ferð ekk­ert að bera fullt af veiði­græjum langar leiðir, svo við fundum mjög mikið fyrir því hvað fólk var þakk­látt fyrir að geta lagt fyrir utan búð­ina í Síðu­múl­anum.“

Christmas Island í algjöru uppáhaldi

Fyrir nokkrum árum byrj­uðu María og Ólafur að fara í veiði­ferðir út um allan heim, hafa þegar hér er komið sögu stundað veiði í sex heims­álfum og eru, að hennar sögn, bara rétt að byrja, hvernig stóð á því að þau fóru að leita út fyrir land­stein­ana eftir veiði? „Það hófst nú eig­in­lega fyrir hálf­gerða til­viljun fyrir um það bil tíu árum síðan,“ útskýrir María og hlær. „Þá fórum við að halda nokk­urs konar vor­há­tíð og þangað komu meðal ann­ars full­trúar fyr­ir­tækja sem við kaupum vörur af. Einn af þeim var stanga­hönn­uður frá Sage og þegar ég var að skutla honum upp á hótel einn dag­inn sagði hann mér að hann og konan hans væru að fara með hóp af veiði­mönnum til Bahamas, það væru tvær stangir lausar og hvort við vildum ekki bara skella okkur með. Ég sagði bara strax já og bað hann að bóka okkur, var ekk­ert að spyrja eig­in­mann­inn álits, en hann var alveg til í að prófa þetta þegar ég sagði honum frá því. Þannig að við fórum þangað og eftir það varð ekk­ert aftur snúið, þetta var svo hrika­lega skemmti­legt.“

„Svo vorum við úti á ánni að veiða og það voru fílar út um allt, krókó­dílar í vatn­inu og flóð­hestar og alls kyns dýr. Alveg magnað.“

Síðan hafa þau hjónin farið í veiði­ferðir tvisvar til þrisvar á ári, út um allar jarðir, en hvað stang­veið­ina varðar segir María að upp­á­halds­stað­ur­inn sé senni­lega Christmas Island. „Við höfum flogið þangað í gegnum Havaí og yfir­leitt stoppað á Havaí í nokkra daga og verið á Waikiki-strönd­inni,“ segir hún. „Þaðan er þriggja tíma flug til Christmas Island sem er eins og að koma í annan heim. Þetta er lítil eyja með um það bil þús­und íbúum og allt frekar frum­stætt. Veiðin er þannig að maður fer út með bát klukkan sex á morgn­ana, tekur með sér sam­loku í nesti og er úti í sjó allan dag­inn. Sjórinn er ylvolgur og þarna eru hvít sand­rif og maður horfir ofan í tæran sjó­inn og kastar á þá fiska sem maður sér. Það er alveg himnesk upp­lifun.“

Hvernig funduð þið þetta drauma­land? „Við fórum tvisvar með þessum vina­hjónum okkar sem ég nefndi til Bahamas og elskuðum það, en svo lang­aði okkur að gera eitt­hvað meira og fórum að leita að ferða­skrif­stofum sem bjóða upp á veiði­ferðir,“ útskýrir María. „Svo gúglar maður og leitar að stöðum sem manni finnst spenn­andi áður en maður bókar. Auk þess að fara til Christmas Island höfum við meðal ann­ars farið nokkrum sinnum til Seychelles og veitt þar á nokkrum litlum eyjum sem flogið er til frá Mahe, aðal­eyj­unni, í vélum sem taka um tíu far­þega.“

Veitt innan um fíla, krókódíla og flóðhesta

Þannig að þetta er hálf­gerð ævin­týra­mennska í leið­inni, ekki bara veiði? „Já, það má segja það,“ segir María. „En fyrst og fremst snýst þetta auð­vitað um að vera úti í nátt­úr­unni í öðrum löndum sem er alveg ynd­is­legt að upp­lifa. Engin mann­mergð þú ert bara að vaða eða ert á litlum bát í frum­skógum Brasilíu og mér finnst alveg óskap­lega gaman að kynn­ast því hvað heim­ur­inn er marg­þættur. Síðasta ferðin okkar, núna í vetur var til Zambíu þar sem við sváfum í tjöldum á nátt­úru­vernd­ar­svæði og fengum tal­stöð til að kalla á starfs­fólkið að sækja okkur þegar við værum til­búin því við máttum alls ekki ganga neitt ein ef það væru ein­hver hættu­leg dýr á leið­inni. Svo vorum við úti á ánni að veiða og það voru fílar út um allt, krókó­dílar í vatn­inu og flóð­hestar og alls kyns dýr. Alveg magnað.“

Umhverfið sem þau hjónin veiða í virð­ist geta verið dálítið ógn­vekj­andi, hafa þau ein­hvern tím­ann lent í hættu­legum aðstæðum í þessum ferðum? „Ég við­ur­kenni að mér hefur stundum ekki alveg staðið á sama,“ segir María og brosir. „Sér­stak­lega ef það eru hákarlar að synda nálægt manni. Maður veður mikið í sjónum og á Seychelles lenti ég í því að þurfa að elta fiski­torfu með leið­sögu­manni, torfan synti alltaf lengra og lengra út og ég elti. Svo sá leið­sögu­mað­ur­inn hákarl og sagði við mig að ég verði að snúa stöng­inni öfugt og lemja hann í haus­inn með hinum end­anum. Ég hlýddi og var alveg til­búin en það kom ekki til þess því hákarl­inn synti rólega burtu. Ég varð samt svo­lítið smeyk. Verð að við­ur­kenna það.

„Til dæmis hvernig ætti að bregð­ast við ef stór hákarl nálg­að­ist okkur þar sem við værum að vaða í sjónum. En þá átti ég sem sagt að vera poll­ró­leg, standa kyrr og berja stang­ar­hand­fang­inu í trjónu hákarls­ins.“

Við vorum auð­vitað búin að fá fyr­ir­lestra um það hvernig ætti að bregð­ast við ef hætta steðj­aði að. Þegar við veiddum við Providance-kór­al­rifið við Seychelles, dvöldum við um borð í Maya DuGong sem er gam­alt rann­sókn­ar­skip sem hefur verið breytt í vist­ar­verur fyrir veiði­menn á svæð­inu. Þegar allir veiði­menn vik­unnar voru komnir um borð var fyr­ir­lestur í mat­salnum þar sem farið var yfir ýmsar hættur sem gætu orðið á vegi okkar. Til dæmis hvernig ætti að bregð­ast við ef stór hákarl nálg­að­ist okkur þar sem við værum að vaða í sjónum. En þá átti ég sem sagt að vera poll­ró­leg, standa kyrr og berja stang­ar­hand­fang­inu í trjónu hákarls­ins. Svo var bent á bjöllu sem var þarna og okkur sagt að ef hún hringdi þá væru sjó­ræn­ingjar að nálg­ast og þá ættum við að fara niður í stefnið og bíða þar þangað til hættan væri liðin hjá. Það kemur sem betur fer sjaldan fyrir núorðið að sjó­ræn­ingjar ráð­ist til atlögu en fyrir nokkrum árum þurfti að loka veiði­svæð­inu um tíma út af sjó­ræn­ingjum frá Sómalíu sem herj­uðu á veiði­skipin. En maður er samt ekk­ert hræddur, starfs­fólkið veit hvað það er að gera og fer mjög var­lega og maður treystir því að það muni ekk­ert ger­ast. Og ef svo færi þá er öryggi í því að vita að það er þarna her­bergi í stefn­inu þar sem er matur og fjar­skipta­bún­aður og hægt að leita skjóls.“

Skotveiði í Namibíu og á Austurlandi

Spurð hvort ein­hver af þeim fram­andi stöðum sem þau hjónin hafa heim­sótt til að veiða standi upp úr nefnir María Christmas Island aftur, en hún á líka fleiri upp­á­halds­staði. „Það er alltaf frá­bært að koma til Christmas Island,“ segir hún. „Það er líka svo sér­stök til­finn­ing að vera þar því eyjan gæti sokkið nán­ast hvenær sem er, hlýnun jarðar er að drekkja henni og þar eru allir við­búnir því að eyjan muni ein­hvern tím­ann sökkva. Annars finnst mér mjög erfitt að nefna ein­hverja upp­á­halds­staði, þeir eru svo margir góðir. Við höfum verið mikið í Taílandi, þar sem við erum með fyr­ir­tæki sem hnýtir fyrir okkur flugur, þannig að við höfum ferð­ast tölu­vert um þar og veitt. Namibía er líka alltaf ynd­is­leg en þar höfum við verið meira í skot­veiði en stang­veiði.“

„Það er líka svo sér­stök til­finn­ing að vera þar því eyjan gæti sokkið nán­ast hvenær sem er, hlýnun jarðar er að drekkja henni og þar eru allir við­búnir því að eyjan muni ein­hvern tím­ann sökkva.“

Þannig að þið skjótið líka, veiðið ekki bara á stöng? „Já, já, við skjótum líka,“ segir María. „Fórum til dæmis saman á hrein­dýr fyrir austan síð­asta sumar og það var alveg ynd­is­legt. Við reikn­uðum ekk­ert með því að veiða fyrsta dag­inn því það hafði verið svo mikil þoka en svo létti henni og við sáum hrein­dýr og komumst að þeim og gátum veitt. Það var alveg draumur.“

Það er ekki hægt að láta hjá líða að spyrja Maríu hvað það sé eig­in­lega sem er svona æðis­legt við að veiða og það stendur ekki á svörum hjá henni. „Það er nátt­úran og upp­lifunin,“ segir hún ákveðin. „Og svo er þetta líka svo spenn­andi. Svo upp­lifir maður að fara á nýjar slóðir og kynn­ast nýju fólki og nýjum aðstæðum sem er algjör­lega punt­ur­inn yfir i-ið.“

Fengu aldrei frið í fríum innanlands

Hafið þið þá dregið úr því að veiða inn­an­lands eftir að þið upp­götv­uðuð þessar nýju veiði­slóðir um allan heim? „Já, við ákváðum það fyrir nokkrum árum, þegar var orðið svo mikið að gera í vinn­unni að við vorum alltaf kölluð úr veið­inni til að fara í vinn­una ef ein­hver veikt­ist eða eitt­hvað kom upp á, að þetta væri ekki alveg að gera sig. Við eigum fastan einn túr í Vatnsdal í ágúst á hverju ári og förum þangað en förum út fyrir land­stein­ana á vet­urna, þegar rólegra er í búð­inni, og tökum okkur okkar veiði­tíma erlendis. Þá förum við á ein­hverja staði þar sem er hlýtt og nota­legt að vera. Við fórum til Kosta Ríka í vetur og höfum farið til Venes­ú­ela og notum bara tæki­færið til að ferð­ast á vet­urna og veiða. Sinnum svo kúnn­unum okkar þeim mun betur yfir sum­arið.“

Það er aug­ljóst að veiðin, ferða­lögin og versl­unin eiga hug Maríu allan, á hún ein­hver önnur áhuga­mál sem hún sinnir? „Lífið snýst nátt­úr­lega dálítið um veiði,“ segir hún sposk. „Þegar við vorum að byrja gátum við auð­vitað ekk­ert tekið okkur frí, það var bara vinna út í eitt og er það reyndar enn. En við ferð­umst tölu­vert út af vinn­unni. Höfum til dæmis farið nokkrum sinnum til Kína og tekið þá auka­daga í frí, farið á Kína­m­úr­inn og skoðað marga mark­verða staði í bland við vinn­una.“

Í aug­lýs­ingum frá Veiði­horn­inu kemur fram að þar er opið alla daga vik­unnar, eru þau hjónin að vinna á hverjum ein­asta degi? „Já, nema það er frí 17. júní,“ segir María og skellir upp úr. „Við höfum reyndar lokað á sunnu­dögum frá októ­ber fram í mars, að und­an­skildum des­em­ber, þannig að við fáum frí ein­staka sinnum.“

Vildu bíða eftir afgreiðslu frá karlinum

Komið hefur fram í fréttum að með það fyrir augum að ferð­ast inn­an­lands í sumar kaupi land­inn veiði­vörur sem aldrei fyrr og María segir það engar ýkjur. „Já, það hefur verið alveg mjög mikið að gera,“ stað­festir hún. „Mér finnst sér­stak­lega gaman hvað það kemur margt nýtt fólk sem er að fara að veiða í fyrsta sinn, sér­stak­lega ung pör sem eru að kaupa sér vöðlur og stangir og Veiði­kortið og ætla bara að vera að veiða í sumar. Það hefur líka auk­ist mjög mikið að konur fari saman í hóp að veiða, ég finn aukn­ingu á hverju ein­asta ári á áhuga kvenna. Þegar við byrj­uðum með búð­ina fengu kon­urnar venju­lega gömlu vöðl­urnar þegar karl­inn keypti sér nýjar en það hefur algjör­lega breyst. Ég man þegar ég var að byrja að afgreiða í búð­inni með mann­inum mínum þá sögðu karl­arnir mjög oft að þeir ætl­uðu að bíða eftir því að hann yrði laus til að fá afgreiðslu, það þótti ekki lík­legt að kona hefði neitt vit á þessu á þeim tíma. Enda voru konur svo sem ekk­ert mikið í veið­inni þá, ég held við höfum verið um það bil fimm sem vorum aktífar þá. En það hefur gjör­breyst, sem betur fer.“

„Ég man þegar ég var að byrja að afgreiða í búð­inni með mann­inum mínum þá sögðu karl­arnir mjög oft að þeir ætl­uðu að bíða eftir því að hann yrði laus til að fá afgreiðslu, það þótti ekki lík­legt að kona hefði neitt vit á þessu á þeim tíma.“

Það er ekki hægt að skilj­ast við Maríu án þess að leita hjá henni ráða um stang­veiði, enda er hún senni­lega sú kona á land­inu sem veit mest um hana, hvað myndi hún ráð­leggja konum sem langar að hefja veiði að gera? „Ég held það sé sniðug­ast að byrja bara í vatna­veiði,“ segir hún eftir smá­um­hugsun. „Kaupa sér vöðlur og stöng og Veiði­kortið og fara í vötnin hérna í kringum Reykja­vík. Það er til­tölu­lega ein­falt og þú getur farið út eina kvöld­stund í klukku­tíma, það er bara æðis­legt. Það þarf nefni­lega ekki að gera neitt mikið til þess að byrja og um leið og maður á sínar eigin græjur er maður orð­inn miklu frjáls­ari. Mistökin sem margir sem eru að byrja gera er að fá útbún­að­inn lán­aðan hjá vinum og kunn­ingjum og þá er fólk orðið svo miklu heft­ara við að fara. Þannig að mér finnst aðal­at­riðið að eiga sínar eigin veiði­græjur og byrja bara að veiða. Svo er hægt að fara á kast­nám­skeið ef fólk langar að veiða á flugu, eða kaupa spúna­stöng og byrja á því, það finnur hver sína leið, aðal­málið er bara að byrja.“

Hnýtir þú þínar eigin flugur? „Ég kann alveg að hnýta og gæti hnýtt fyrir mig sjálf, það er bara eng­inn tími í það,“ segir María. „eins og ég sagði áðan þá látum við hnýta fyrir okkur úti í Taílandi og fórum þangað í nóv­em­ber að heim­sækja verk­smiðj­una. Það var mjög góð til­finn­ing, við sköffum átta­tíu manns vinnu þar og þau eru rosa­lega þakk­lát fyrir það.“

Nóg af spennandi stöðum eftir

Það horfir ekki væn­lega með ferða­lög á fram­andi slóðir þetta árið en eru þau María og Ólafur búin að plana næstu ævin­týra­ferð þegar ástandið skánar? „Þetta hefur vissu­lega breytt öllu,“ sam­þykkir María. „Við hefðum átt að vera að koma heim frá Grikk­landi núna, ætl­uðum að fara þangað í skemmti- og skoð­un­ar­ferð sem var auð­vitað aflýst. Eins misstum við af einni ferð sem átti að vera í lok mars til Seychelles og datt út. En við fórum til Kosta Ríka og Sambíu í vetur þannig að við erum ekki orðin örvænt­ing­ar­full, enda eigum við bók­aðar tvær ferðir næsta vetur og eina í febr­úar 2022. Við gátum breytt ferð­inni sem við áttum að fara til Seychelles núna í mars yfir í mars á næsta ári og svo eigum við bók­aða ferð til Christmas Island í lok októ­ber. Maður lifir í von­inni að veiran verði þá gengin yfir svo við komumst þangað.“

Nú þurfum við að fara að pakka við­tal­inu saman en á María sér ein­hvern drauma­á­fanga­stað sem hún hefur ekki enn farið á til að veiða? „Það er nátt­úr­lega hell­ingur eftir,“ segir hún og glottir. „Við höfum ekki enn komið til allra landa í heim­inum. Og við erum alltaf að prófa ein­hverja nýja staði, förum yfir­leitt á einn nýjan stað á ári. Á síð­asta ári var það Kosta Ríka og mig langar til að fara ein­hvern tím­ann til Argent­ínu líka, það er bara svo líkt því sem er hérna heima en það er alveg á list­anum ein­hvern tím­ann seinna, eins og margir fleiri staðir. Við höfum til dæmis ekki farið til Indlands enn þá, eigum eftir að fara upp í fjöllin þar að veiða, svo og í frum­skóg­ana í Bólivíu og Kólumbíu, þannig að það er meira en nóg eftir til að hlakka til.“

Spurð hvort þau séu ekk­ert farin að velta því fyrir sér að minnka við sig vinn­una og setj­ast í helgan stein liggur við að það hnussi í Maríu.  „Við gerum það örugg­lega ein­hvern tím­ann,“ segir hún. „En ef við komumst í veiði­ferðir yfir vet­ur­inn erum við alveg sátt. Við höfum það til að hlakka til yfir sum­arið og höldum okkur gang­andi á því. Mig langar hins vegar ekk­ert til að hætta alfarið að vinna, mér finnst svo gaman í vinn­unni. Þetta er óskap­lega gef­andi vinna, margir fastakúnnar sem hafa verið hjá okkur árum saman og koma stundum bara til að spjalla um veið­ina og svo koma margir við til að segja okkur hvernig vör­urnar sem þeir keyptu hafi reynst. Þannig að okkur finnst mjög gaman að vinna í búð­inni og erum ekk­ert á leið­inni að hætta því. Þetta er skemmti­leg­asta starf í heimi.“

Myndir: Hallur Karlsson og úr einka­safni

Förðun: Emil­í­anna Valdi­mars­dóttir, förð­un­ar­fræð­ingur fyrir Urban Decay á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Óvæntur leynigestur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ
Menning

Óvæntur leynig­estur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ

Erpur Eyvind­ar­son rapp­aði fyrir vini sína í Sri Lanka en bauð svo upp á stór­glæsi­legan leynig­est. Sverrir Þór Sverr­is­son, eða Sveppi eins og hann er iðu­lega kall­aður, tróð óvænt upp með Erpi Blazroca Eyvind­ar­syni í veislu erlendis, senni­lega á Sri Lanka en Erpur hefur und­an­farið unnið sem leið­sögu­maður hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Crazy Puffin, sem sér­hæfir sig í ferðum til landa sem...
Björn sá merkilegt skilti á Máritíus: „Fallegt á síðasta degi ársins“
Menning

Björn sá merki­legt skilti á Máritíus: „Fallegt á síð­asta degi árs­ins“

Björn Þor­láks­son sá fal­lega sýn í gær á ferða­lagi sínu á Máritíus-eyrík­inu. Rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Björn Þor­láks­son er á ferða­lagi undan ströndum Afríku þessa dag­ana en í gær birti hann ljós­mynd af skilti sem hann sá á alþjóða­flug­vell­inum í höf­uð­borg Máritíus, en þar er bent á sér­stakt bæna­her­bergi, þar sem ekki er spurt um trú heldur geta allir þeir sem...
Skelkaðir farþegar skemmtiferðaskips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND
Heimur

Skelk­aðir far­þegar skemmti­ferða­skips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND

Skelf­ingu lostnir far­þegar skemmti­ferða­skips sendu „kveðju­skila­boð“ til ást­vina af ótta við að þeir myndu „deyja eins og á Titanic“ þegar risa­stormur velti skip­inu í „45 gráður“. Dan So var að yfir­gefa Bar-Svar (e. Pub-Quiz) um borð í skemmti­ferða­skip­inu Royal Caribbean sem sigldi frá Spáni til Miami í Banda­ríkj­unum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag [7. nóv.] þegar hann heyrði „öskrur og glös brotna“. Hinn...
Tásumyndir Siggu Daggar setja internetið á hliðina – Nýtur lífsins með eiginmanninum á Ítalíu
Menning

Tásu­myndir Siggu Daggar setja inter­netið á hlið­ina – Nýtur lífs­ins með eig­in­mann­inum á Ítalíu

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur og eig­in­maður hennar Sævar Eyj­ólfs­son njóta nú lífs­ins í Ítal­íu­sól­inni en hægt er að fylgj­ast með ferða­lagi þeirra á Instagram. Sigga Dögg er skemmti­lega opinn ein­stak­lingur og deilir ævin­týrum sínum með fylgj­endum sínum á Instagram en nýj­ustu ljós­myndir hennar hafa nán­ast sett inter­netið á hlið­ina. Um er að ræða „skyldu tásu­myndir“ eins og hún orðar það...
Glæsileg Dorrit fékk sér sundsprett í miðju þrumuveðri – MYNDBAND
Menning

Glæsileg Dorrit fékk sér sund­sprett í miðju þrumu­veðri – MYNDBAND

Dorrit Moussaieff nýtur lífs­ins á Indlandi um þessar mundir en hún birti í dag mynd­skeið þar sem hún sést fá sér sund­sprett á þaki hót­els í miðju þrumu­veðri. Fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands, Dorrit Moussaieff hefur efni á að ferð­ast og gerir það óspart. Ef marka má myllu­merki hennar á ýmsum Instagram-færslum hennar und­an­farið hefur hún meðal ann­ars notið lífs­ins á Grikk­landi,...
Gjörbreytt Bríet brillerar í Köben með Hr. Hnetusmjöri
Menning

Gjör­breytt Bríet brill­erar í Köben með Hr. Hnetu­smjöri

Bríet Ísis Elfar skellti sér til kóngs­ins Köben á dög­unum ásamt fríðu föru­neyti, þar á meðal Hr. Hnetu­smjöri en til­efnið var gigg í borg­inni en tón­leik­arnir þóttu takast afar vel. Skæl­bros­andi Brí­et­Mynd: Instagram-sjá­skot Söngdívan Bríet birti ljós­myndir og mynd­skeið á Instagram frá ferð­inni en þar sést hún með glæ­nýjan hára­lit og má segja að hún sé nær óþekkj­an­leg með dökku...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu