„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Er kominn tími á barn númer tvö?

Flestar nýbak­aðar mæður kann­ast við það að vera varla komnar heim af fæð­ing­ar­deild­inni þegar þær eru strax spurðar að því hvenær þær ætli að koma með annað.

Jafnvel þó að þið séuð ekki í þeim hug­leið­ingum eign­ast annað barn rétt á meðan nýja krílið er að læra að hjala og velta sér, þá kemur að því að því að þið farið að velta því fyrir ykkur hvenær á að koma með barn númer tvö.

Ákvörð­unin er ekki ein­föld, enda hafa allir skoð­anir á því hvenær sé rétti tím­inn. Sumum finnst mik­il­vægt að eiga börnin með stuttu milli­bili til þess að þau geti leikið sér saman og leitað hvors til ann­ars þegar þau eld­ast. Aðrir geta ekki hugsað sér að vera með tvö smá­börn á heim­il­inu á sama tíma.

„Það getur verið erfitt að eiga við smá­barn sem öskrar um miðjar nætur á meðan morg­unó­gleðin ætlar þig lif­andi að drepa.“

Sama hverjar skoð­anir þínar eru þá eru vissu­lega mik­il­væg atriði sem þarf að skoða áður en ákveðið er að fjölga í fjöl­skyld­unni.

Heilsu­far móður og barns
Það er ekki auð­velt að ganga með og fæða barn og því þarf lík­am­inn að fá tíma til að jafna sig eftir hverja með­göngu. Talið er að lík­am­inn þurfi allt að sex vikur til að ná því sem mætti kalla lág­marks­form eftir með­göngu. Það getur svo tekið nokkra mán­uði í við­bót að bæta upp blóð­leysið og nær­ing­ar­skort­inn sem með­gangan veldur. Beinin og lið­irnir verða einnig fyrir miklum áhrifum af horm­óna­ó­jafn­væg­inu sem á sér stað á með­göngu og það getur tekið 6-9 mán­uði að lag­ast. Ef gengið er með annað barn of snemma getur það leitt til bak­verkja og ann­arra óþæg­inda. Það er líka vert að hafa í huga að það getur verið erfitt að eiga við smá­barn sem öskrar um miðjar nætur á meðan morg­unó­gleðin ætlar þig lif­andi að drepa.

Það er ekki ein­göngu móð­irin sem getur átt í erf­ið­leikum vegna seinni með­göngu. Rann­sóknir hafa sýnt að það getur haft nei­kvæð áhrif á fæð­ing­ar­þyngd barns­ins ef of stuttur tími líður á milli með­göngu. Möguleg ástæða fyrir því að þessi börn fæð­ast of létt er nær­ing­ar­skortur og streita móður sem hefur ekki enn jafnað sig eftir fyrri með­göngu.

Sam­komu­lag og pen­inga­málin
Þar sem börnin eru ekki ein­getin þarf alltaf að leita sam­þykkis maka áður en farið er af stað með með­göngu númer tvö. Þetta getur leitt til mik­illa erf­ið­leika í sam­band­inu og þá sér­stak­lega ef aðeins annar aðil­inn er til­bú­inn til þess að eign­ast fleiri börn.

Algengt er að eig­in­menn­irnir hafi áhyggjur af auknum fjár­út­látum en eina leiðin til að leysa málið er að ræða saman og reyna að kom­ast að sam­komu­lagi. Hvað sem þú gerir, ekki verða ólétt „fyrir slysni” og gera ráð fyrir að þetta redd­ist þegar barnið er komið í heim­inn. Slíkt getur haft skelfi­leg áhrif á sam­bandið ykkar á milli, enda er erfitt að bæta fyrir þess háttar svik.

„Ákvörð­unin er ekki ein­föld, enda hafa allir skoð­anir á því hvenær sé rétti tím­inn.“

Það er heldur ekki hægt að loka aug­unum fyrir því að það fylgir því tölu­vert meiri kostn­aður að reka fjög­urra manna fjöl­skyldu heldur en þriggja. Þessi aukni kostn­aður er svo sér­stak­lega hvim­leiður vegna þess að eftir því sem börnin eru fleiri verður erf­ið­ara fyrir þig að vinna fulla vinnu, auk þess sem gæslu­kostn­að­ur­inn er þá orð­inn ansi hár.

Ef þið ætlið ykkur að eign­ast annað barn þá er um að gera að búa til fjár­hags­á­ætlun byggða á tekjum ykkar og gera þá ráð fyrir aukn­ingu á útgjöldum. Ef þið gerið slíka áætlun kom­ist þið fljótt og örugg­lega að því hvort þið hafið efni á öðru barni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

barneignir

Harry Potter á von á barni
Menning

Harry Potter á von á barni

Harry Potter-leik­ar­inn Daniel Radclif­fe á von á sínu fyrsta barni með kær­ustu sinni, leik­kon­unni Erin Dar­ke. Að sögn heim­ild­ar­manns The Sun er Daniel spenntur fyrir föð­ur­hlut­verk­inu en hefur parið farið farið leynt með þung­un­ina hingað til. ,,Hún get­ur ekki falið óléttu­kúl­una leng­ur,“ sagði bætti heim­ild­ar­mað­ur­inn við. Daniel og Erin hafa verið saman í rúman ára­tug en kynnt­ust þau við tökur...
Ida og Eysteinn eignuðust dóttur 22.02.2022 klukkan 2.22
Innlentbarneignir

Ida og Eysteinn eign­uð­ust dóttur 22.02.2022 klukkan 2.22

Ida María Brynjars­dóttir og mað­ur­inn hennar, Eysteinn Örn Stef­áns­son eign­uð­ust sitt annað barn á þriðju­dag­inn þann 22 febr­úar eða 22.02.2022 á Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands á Akranesi. Ekki er nóg með það að stúlkan hafi fæðst á þess­ari ein­stöku dag­setn­ingu heldur kom hún í heim­inn klukkan 2.22. Fæðingin gekk hratt fyrir sig. „Við fórum upp á fæð­ing­ar­deild klukkan hálf tvö. Hún fæð­ist...
Dóra Björt er ósátt: „Skiptir hlutverk feðra gjörsamlega engu máli?“
Innlentbarneignir

Dóra Björt er ósátt: „Skiptir hlut­verk feðra gjör­sam­lega engu máli?“

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, er ósátt við aðgerð­ar­leysi stjórn­valda þegar kemur að barn­eignum í Covid far­aldr­inum og hlut­verki feðra í ferl­inu en Dóra á von á barni í vor með manni sínum, Sævari Ólafs­syni. „500 manns fara á við­burði en faðir ófædda barns­ins míns fær ekki að koma með inn til ljós­móður til að heyra stöð­una,...
Friðrik Dór eignast sína þriðju dóttur og gefur út plötu á sama tíma
Menning

Friðrik Dór eign­ast sína þriðju dóttur og gefur út plötu á sama tíma

Söngv­ar­inn Friðrik Dór og eig­in­kona hans, Lísa Haf­liða­dóttir, buðu vel­komna í heim­inn þriðju dóttur sína en fyrir eiga þau dæt­urnar Ásthildi, fædda 2013 og Úlfhildi, fædda 2019. Friðrik Dór greindi frá frétt­unum á Instagram síðu sinni ásamt því að greina frá útgáfu nýj­ustu plötu sinnar, DÆTUR. „Svo kemur annað afkvæmi á mið­nætti í kvöld þegar platan mín, DÆTUR droppar á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu