„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Margar konur upplifa hvimleitt hárlos

Margar konur upplifa hvimleitt hárlos

Yfir 88% kvenna segj­ast hafa glímt við hár­los á lífs­leið­inni og af þeim eru um 40% í kringum þrjá­tíu og fimm ára ald­ur­inn. Fríða Rut Heim­is­dóttir, hár­greiðslu­meist­ari og eig­andi Regalo ehf. heild­sölu, segir að til­finn­ing­arnar sem vakna hjá konum við hár­los séu marg­vís­legar og áhyggjur séu algengastar.

„Um 90% þeirra sem upp­lifa hár­los með­höndla það ekki en það er þó hægt,“ segir hún. „Spurðar af hverju sögðu kon­urnar margs konar til­finn­ingar sem fylgdu hár­los­inu, sumar sögð­ust leiðar, aðrar fundu fyrir kvíða og áhyggjum og skamm­ast sín og margar vissu ekki hvert best væri að leita og fá upp­lýs­ingar.“

En hvað er hár­los? „Lífs­fer­ill hárs er ein­faldur, það vex, dettur af og nýtt hár tekur að vaxa. Langoft­ast detta hárin af jafnt og þétt og vaxa sömu­leiðis. En hár­losi er almennt hægt að skipta í tvennt, það að missa hár og fá það aftur og/eða missa hár og fá það ekki aftur, það kall­ast skalla­myndun. Þættir sem ráða hár­losi geta verið margs konar s.s. erfðir, horm­óna­vanda­mál og öldrun. Eins geta áföll valdið skyndi­legu hár­losi, slys og ýmsir sjúk­dómar og með­ferðir við þeim, t.d. geisla- eða lyfja­með­ferðir. Við mikil veik­indi eða álag getur hár­los orðið meira en ella. Þetta sést hjá þeim sem hafa veikst alvar­lega. Hárlosið verður þó oft ekki beint í kjöl­far veik­ind­anna, heldur 3-6 mán­uðum seinna. Dæmi um kvilla sem geta valdið hár­losi er járn­skortur og truflun á starf­semi skjald­kirtils. Öðru máli gegnir ef hár­los dreif­ist ójafnt um höf­uðið, þannig að há koll­vik mynd­ist eða skalla­tungl. Í þeim til­vikum ætti við­kom­andi að leita læknis og ef um konu er að ræða að láta athuga horm­óna­starf­sem­ina. Þá getur hár­los verið auka­verkun sumra lyfja.

„Við mikil veik­indi eða álag getur hár­los orðið meira en ella. Þetta sést hjá þeim sem hafa veikst alvar­lega. Hárlosið verður þó oft ekki beint í kjöl­far veik­ind­anna, heldur 3-6 mán­uðum seinna.“

Hárlos margra tengd­ist lífs­stíl og öðru tengdu lífs­ferl­inum eins og með­göngu,“ heldur Fríða Rut áfram. ,,Hárið er oft óvenju­þykkt og rækt­ar­legt á með­göngu en u.þ.b. hálfu ári eftir fæð­ingu verður mikið hár­los og hárið rytju­legt. Breyt­ingar á horm­ónum og þá sér­stak­lega estró­geni sem hefur þau áhrif að engin hár falla heldur bæt­ast í sífellu við ný í hár­sverð­inum meðan á með­göngu stendur. Eftir fæð­ingu ganga þessi hormón til baka og við missum mikið af með­göngu­estró­gen­inu. Það góða við þessa teg­und af hár­losi er að hún er tíma­bundin.

Hægt að að örva hárvöxt

Fríða Rut segir að það sé ýmis­legt sem hægt sé að gera til að örva hár­vöxt. ,,Hágæða­hár­vör­urnar Kér­astase Paris sem eru í eigu L´Oréal Group setti nýverið á markað sér­hann­aða línu sem hjálpar til við að sporna gegn hár­losi. Línan sam­anstendur af sjampói, nær­ingu, djúpnær­ingu og sex vikna með­ferð í formi dropa sem not­aðir eru heima fyrir til að vinna á hár­losi og styrkja hár og hár­svörð sem er það mik­il­væg­asta í með­ferð­inni. Drop­arnir eru not­aðir dag­lega og settir í hár­svörð­inn til að koma í veg fyrir að kollagen herð­ist og að hárið falli. Einnig inni­heldur línan hita­vörn til að verja hárið ásamt fag­með­ferð sem hægt er að fá á Kér­astase-hár­greiðslu­stofum þar sem hár og hár­svörður er hreinsað vel með sér­stöku dufti sem blandað er í sjampó til að ná öllum umhverf­is­þáttum, efna­leifum og þess háttar, úr til að hefja með­ferð við hár­losi.
Rann­sókn­ar­deild Kér­astase sýndi fram á að með því að með­höndla hár­los og nota lín­una saman fundu 93,3 % þátt­tak­enda mik­inn mun. Hárið brotn­aði síður og hár­los varð minna.“

,,Hárið er oft óvenju­þykkt og rækt­ar­legt á með­göngu en u.þ.b. hálfu ári eftir fæð­ingu verður mikið hár­los og hárið rytju­legt. Breyt­ingar á horm­ónum og þá sér­stak­lega estró­geni sem hefur þau áhrif að það falla engin hár heldur bæt­ast í sífellu við ný í hár­sverð­inum meðan á með­göngu stendur.“

Fríða Rut segir að gott sé að vinna að því að nota sér­staka sér­hann­aða línu sem er mild og með það í huga að vinna á hár­losi til að draga úr því eins og hægt er. Mik­il­vægt er að taka inn vítamín og stein­efni sem örva hár­vöxt. Eitt af mik­il­væg­asta sem hárið þarf er bíotín til að halda bæði húð og hári heil­brigðu en bíótín örvar hár­vöxt. „Þá er kís­ill mik­il­vægt stein­efni fyrir hárið og einnig hafa kollagen-duft­blöndur reynst vel. Fitu­sýrur fyr­ir­byggja þurrk bæði í hár­sverði og hár­inu sjálfu og B-vítamín eru mik­il­væg til að halda hár­vexti og hári heil­brigðu. Við hár­losi mæli ég með inn­töku Sug­ar­be­ar­hair sem inni­heldur hátt hlut­fall bíótíns ásamt öllum þeim vítamínum sem þarf til að stuðla að heil­brigðu hári,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu