„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fékk langþráða andlitslyftingu – „Þetta er eiginlega draumi líkast“

Fékk langþráða andlitslyftingu – „Þetta er eiginlega draumi líkast“
Hrönn, starfs­fólk Bíó Para­dísar og hópur sjálf­boða­liða hafa staðið í ströngu við end­ur­bætur á hús­næð­inu til að koma því í gott stand áður en það var opnað í vik­unni. Mynd / Skjáskot Hring­braut

Hrönn Sveins­dóttir segir ótrú­legt, eig­in­lega draumi lík­ast að vera að fara af stað með flotta dag­skrá í end­ur­bættu Bíó Paradís, eftir allt sem á undan er gengið, en um tíma var fram­tíð bíós­ins í óvissu. Und­an­farið hafa Hrönn, starfs­fólk kvik­mynda­húss­ins og hópur sjálf­boða­liða staðið í ströngu við end­ur­bætur á hús­inu og er óhætt að segja að kvik­mynda­gestir eigi von á góðu þegar þeir mæta í bíóið.

„Þetta er eig­in­lega draumi lík­ast, að geta loks­ins tekið húsið svo­lítið í gegn og svo vera komin með samn­ing við ríki og borg til fimm ára og leigu­samn­ing til tíu ára. Við erum him­in­lif­andi að geta haldið starf­inu áfram. Bíó Paradís er auð­vitað miklu meira en kvik­mynda­hús, það er líka menn­ing­ar­hús og ómissandi hluti af Reykja­vík. Stórt skarð hefði verið höggvið í bíóflór­una og menn­ingu borg­ar­innar ef það hefði þurft að hætta, margir hefðu séð eftir því,“ segir Hrönn Sveindóttir, fram­kvæmda­stjóri Bíó Para­dísar.

Eins og kunn­ugt er var á tíma­bili ekki útséð um hvort Bíó Paradís héldi áfram starf­semi. Samn­ingar við ríki og borg voru í lausu lofti í árs­byrjun og ljóst að hús­næð­is­leigan á Hverf­is­götu 54, þar sem kvik­mynda­húsið hefur haldið úti starf­semi síð­ast­liðin tíu ár, myndi hækka það mikið um mitt þetta ár að rekst­ur­inn stæði ekki undir því. Rekstrað­ilar þess leit­uðu því á náðir borg­ar­innar og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins í von um fjár­stuðn­ing og í fram­hald­inu voru gerðar upp­færslur á sam­starfs­samn­ingum við ríki og borg og sam­komu­lag náð­ist við eig­endur húss­ins. Und­an­farnar vikur og mán­uði hafa Hrönn, starfs­fólk Bíó Para­dísar og hópur sjálf­boða­liða staðið í ströngu við end­ur­bætur á hús­næð­inu til að koma því í gott stand áður en það var opnað í vik­unni, um svipað leyti og 10 ára afmæli Bíó Para­dísar ber upp.

Fegin að losna úr vinnugallanum

„Ég var farin að sjá í hill­ingum að opna bíóið aftur og taka á móti gestum, það var fínt að kom­ast úr vinnugall­anum ef ég á að vera full­kom­lega hrein­skilin,“ við­ur­kennir Hrönn og skellir upp úr.

Hún segir að síð­ustu vikur og mán­uðir hafi farið í miklar fram­kvæmdir á hús­inu, eða alveg frá því að ljóst var að bíóið héldi áfram starf­semi. „Þetta er búið að vera alveg brjáluð vinna, það verður að segj­ast eins og er. Við höfum unnið vel­flestar helgar í sumar og sum okkar hafa ekki einu sinni tekið sum­ar­frí. Við vorum ekki að vinna þetta eins og stór­fyr­ir­tæki með heilan her af verk­tökum, heldur erum við hópur kvik­mynda­gerð­ar­fólks og áhuga­fólk um kvik­myndir sem gengum sjálf nán­ast í öll verk og höfum þurft að vera ansi útsjón­ar­söm og skap­andi. Það var bara ekki annað í boði en að keyra þetta áfram til að geta opnað bíóið aftur núna, og það var vel þess virði því breyt­ing­arnar eru til mik­illa bóta, bíóið hefur aldrei verið betra.“

„Við erum ekki að breyta þessu í ein­hvern fínan veit­inga­stað sem fólk þorir varla að setj­ast inn á. Við viljum að öllum finn­ist þeir vera vel­komnir og líði vel.“

Hrönn tekur fram að ekk­ert af þessu hefði þó verið ger­legt nema með hjálp öfl­ugra sjálf­boða­liða. „Nei, þetta hefði ekki verið hægt nema hingað hefðu komið hópar af vel­vilj­uðum sjálf­boða­liðum sem bera hag Bíó Para­dísar fyrir brjósti. Þeir hafa verið sveittir um helgar að hjálpa okkur og hafa staðið sig rosa­lega vel.“

Betri upplifun að öllu leyti

Spurð nánar út í fram­kvæmd­irnar segir Hrönn að aðal­lega sé um að ræða end­ur­bætur sem hafi fyrir löngu verið tíma­bærar. „Við end­ur­nýj­uðum meðal ann­ars allt raf­magn og loft­ræst­ing­una líka, end­ur­nýj­uðum sjö ára gömul tæki, skiptum 20 ára gömlu sýn­ing­ar­tjöld­unum út fyrir ný þannig að mynd­gæðin eru nú eins og þau ger­ast best og hljóð­ein­angr­uðum sal­ina betur, svo hljóðið ber­ist ekki fram þegar verið er að sýna kvik­myndir og eins til að klið­ur­inn og skvaldrið sem mynd­ast stundum frammi í and­dyri þegar eitt­hvað skemmti­legt er um að vera ber­ist heldur ekki inn í sal­ina. Aðgengi fatl­aðra og bætt sal­ern­is­að­staða verður síðan tekin fyrir næsta sumar,“ nefnir hún.

„Við gerðum líka upp sætin í söl­unum í stað þess að kaupa ný, sem hefði bæði verið dýr­ara og flókn­ara, mál­uðum allt og í sam­starfi við fyr­ir­tækið Irmu bjuggum við til nýjan og flottan bar. Þetta er vel­flest eitt­hvað sem okkur hefur dreymt um að gera frá alveg því að við fluttum hingað inn fyrir tíu árum. Bíóið hefur í raun aldrei verið glæsi­legra en á sama tíma er það alveg jafn­kósí og áður. Við erum ekki að breyta þessu í ein­hvern fínan veit­inga­stað sem fólk þorir varla að setj­ast inn á. Við viljum að öllum finn­ist þeir vera vel­komnir og líði vel. Það verður jafn­gaman að koma hingað, öll upp­lifun verður bara betri.“

Pökkuð dagskrá

Hrönn við­ur­kennir að það hafi verið svo­lít­ill sprettur að ná að klára fram­væmd­irnar áður en bíóið var opnað á nýjan leik í núna í vik­unni. „Þetta hefur verið svo­lítið streð og stress á loka­metr­unum þar sem við erum að fara af stað með stór­glæsi­lega dag­skrá,“ útskýrir hún. „Sumir verða hissa þegar þeir heyra það þar sem fram­leiðsla stöðv­að­ist að stórum hluta í Hollywood vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, en okkar dag­skrá sam­anstendur auð­vitað líka af myndum ann­ars staðar frá og prógram­mið hefur satt best að segja aldrei verið þétt­ara af því að við þurftum að fresta svo mörgum sýn­ingum og við­burðum í vor þegar far­ald­ur­inn skall á. Skjald­borg, hátíð íslenskra heim­ilda­mynda, er opn­un­ar­há­tíðin í ár, hún er haldin núna um helg­ina og eftir það rekur hver sýn­ingin og við­burð­ur­inn annan. Fyrir utan það snúa partí­sýn­ing­arnar á föstu­dögum aftur og svartir sunnu­dagar, þannig að þetta verður geggjað gaman!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu