„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Tilgangurinn er að smána og rógbera fólk“

„Tilgangurinn er að smána og rógbera fólk“
Ugla Stefania. Mynd / Sharon Kil­gannon

„Við erum bara eins og annað fólk og líf okkar snýst ekki að öllu leyti um það að vera trans. Ef sam­fé­lagið væri opn­ara og það væri sjálf­sagð­ara að vera trans myndi í raun rosa lít­ill hluti lífs okkar snú­ast um það,“ segir Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, for­maður sam­tak­anna Trans Ísland.

Ugla hefur und­an­farið gagn­rýnt harð­lega stofnun nýs félags á Íslandi, LGB teym­is­ins, sem hán segir beita sér gegn rétt­indum trans fólks. Hán játar að vissu­lega geti verið þreyt­andi að upp­fræða í sífellu og reyna að leið­rétta rang­færslur og for­dóma. Hins vegar sé gef­andi að sjá þá fram­för sem á sér stað í sam­fé­lag­inu hvað varði rétt­indi og stöðu trans fólks.

„Jú, vissu­lega. Ég þarf stundum að taka mér góðar pásur og er það lánsöm að eiga góða vini og fjöl­skyldu sem ég get leitað til eða varið tíma með til að kom­ast aðeins út úr þessu öllu saman,“ við­ur­kennir Ugla í fullri hrein­skini, þegar ég spyr hvort það geti ekki verið þreyt­andi að standa enda­laust í því að upp­fræða og reyna að leið­rétta rang­færslur og for­dóma.

„Við erum bara eins og annað fólk og líf okkar snýst ekki að öllu leyti um það að vera trans.“

„Fólk gleymir því, held ég, oft að trans fólk er líka bara fólk sem hefur mis­mun­andi áhuga­mál, er í námi, er að vinna eða er að sinna ástríðu sinni. Við erum bara eins og annað fólk og líf okkar snýst ekki að öllu leyti um það að vera trans. Ef sam­fé­lagið væri opn­ara og það væri sjálf­sagð­ara að vera trans myndi í raun rosa lít­ill hluti lífs okkar snú­ast um það. Það er aðal­lega út af sam­fé­lag­inu sjálfu sem stór hluti okkar lífs þarf að snú­ast um það, því við þurfum að standa í því að vera sífellt að berj­ast gegn for­dómum og skiln­ings­leysi.“

Vafasöm samtök

Tilefni sam­tals okkar er stofnun nýs félags, hins svo­kall­aða LGB teymis sem hefur vakið umtal. For­svars­fólk þess hefur snúið baki við hinsegin sam­fé­lag­inu á Íslandi og talar fyrir því að þessi nýi vett­vangur verði fyrst og fremst fyrir sam- og tví­ky­neigða en ekki trans fólk og hefur sá mál­flutn­ingur valdið titr­ingi meðal hinsegin fólks. Ugla er í hópi þeirra sem hefur gagn­rýnt stofnun félags­ins harð­lega. Hán segir nákvæm­lega ekk­ert að því að skapa sér­stakan vett­vang fyrir homma, les­b­íur og tví­kyn­hneigða til að ræða sín mál en ef sá vett­vangur snú­ist um að úti­loka trans fólk, sem getur líka vel verið sam­kyn­hneigt og tví­kyn­hneigt eins og aðrir, þá sé það allt annar hand­leggur.

„Í mínum huga er það að segj­ast vilja stofna sér­stakan vett­vang fyrir sam­kyn- og tví­kyn­hneigða lítið annað en yfir­hylm­ing yfir raun­veru­lega stefnu hóps­ins sem er að mála trans fólk í nei­kvæðu ljósi, rétt eins og fyr­ir­mynd félags­ins, bresku sam­tökin LGB Alliance gera. Það sést nú bara á færsl­unum sem Íslands­deildin hefur verið að deila á sam­fé­lags­miðlum und­an­farið,“ bendir Ugla á. „Fyrir þau sem þekkja ekki til LGB Alliance, þá eru það skil­greind hat­urs­sam­tök í Bret­landi sem beita sér gegn rétt­indum trans fólks.“

Ugla segir að rökin sem sé slengt fram í mál­flutn­ingi LGB Alliance komi oftar en ekki beint úr búðum íhalds­samra afla sem hafa í gegnum tíð­ina beitt sér gegn rétt­indum hinsegin fólks, kvenna og ýmissa minni­hluta­hópa. „Enda hefur for­svars­fólk sam­tak­anna í Bret­landi keppst við að verja sam­herja sína, sem oft og tíðum eru hópar eða ein­stak­lingar sem hafa gagn­gert beitt sér gegn rétt­indum hinsegin fólks, eins og til dæmis einum hjú­skap­ar­lögum og ætt­leið­ingum hinsegin fólks,“ nefnir hán. „Einn af stofn­endum sam­tak­ann hélt því til dæmis fram nú á dög­unum að það væri bara ekk­ert for­dóma­fullt að vera á móti sam­kynja hjóna­böndum.”

Segir höfund Harry Potter-bókanna ala á hatri

Ugla segir að hug­mynda­fræði LGB Alliance sem Íslands­deildin virð­ist vera að til­einka sér sé, þegar betur er að gáð, fjand­sam­leg stórum hluta hinsegin sam­fé­lags­ins. Boð­skap­ur­inn sé meðal ann­ars sá að ein­ungis séu til tvö líf­fræði­leg kyn, þ.e. karlar og konur. Tilveru kynsegin fólks, þ.e. fólks sem skil­greini sig hvorki sem karl né konu, sé þar með afneitað og til­vist inter­sex fólks, fólks með ódæmi­gerð kynein­kenni, ekki tekin með í spilið. Einn hættu­leg­asti angi boð­skap­ar­ins sé síðan að kynda undir að þessir hópar og trans fólk fái ekki aðgengi að nauð­syn­legri þjón­ustu.

„Þetta er í raun sami mál­flutn­ingur og J.K. Rowling, höf­undur Harry Potter-bókanna, hefur haldið uppi á sam­fé­lags­miðlum,“ bendir Ugla á og vísar þar til þeirra ummæla Rowling að í raun séu kynin bara tvö, sem hefur leitt til þess að rit­höf­und­ur­inn hefur verið sökuð um hatur í garð trans fólks.

Mynd / Sharon Kil­gannon

„Rowling hefur meðal ann­ars fært rök fyrir því að trans konur eigi ekki að fá aðgengi að kvenna­skýlum eða þjón­ustu sem er beint að konum. Hún segir að sem þol­andi kyn­ferð­is­of­beldis vilji hún ekki að fólk í „karl­manns­lík­ama“ nýti sér sömu þjón­ustu og hún. Það þýði að hver sem er geti þóst vera kona til að fá aðgengi að þess­ari þjón­ustu,“ nefnir Ugla sem dæmi. „Sem þol­andi kyn­ferð­is­of­beldis fengi ég þar af leið­andi ekki aðgengi að slíkri þjón­ustu ef Rowling hefði eitt­hvað um það að segja.

„Rowling hefur meðal ann­ars fært rök fyrir því að trans konur eigi ekki að fá aðgengi að kvenna­skýlum. Hún segir að sem þol­andi kyn­ferð­is­of­beldis vilji hún ekki að fólk í „karl­manns­lík­ama“ nýti sér sömu þjón­ustu og hún.“

Slíkt sýnir bara að hún hefur mjög for­dóma­fullar hug­myndir um trans konur, útlit þeirra og sömu­leiðis hvernig þjón­usta í kvenna­skýlum virkar. Það gengur nefni­lega bara eng­inn inn í kvenna­skýli og fær þar aðgengi án þess að fara fyrst í við­tal hjá fag­fólki. Fyrir utan það hefur trans fólk nýtt sér slíka þjón­ustu í marga ára­tugi án vand­kvæða og það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að það hafi áfram aðgengi að henni þar sem trans fólk á í auk­inni hættu að verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Þess vegna þakka ég fyrir að fag­að­ilar skuli vita betur og haldi áfram að veita trans fólki þessa nauð­syn­legu þjón­ustu.“

Skaðlegur málflutningur

Ugla segir að það sé þyngra en tárum taki að sjá rit­höf­und sem njóti vin­sælda um allan heim vegna bóka sem hafi verið skrif­aðar með unga les­endur í huga, nota rödd sína og áhrif til þess að berj­ast gegn heil­brigð­is­þjón­ustu og rétt­inda­bar­áttu sem snýst meðal ann­ars um að auka lífs­gæði og vellíðan ung­menna í sam­fé­lag­inu. Ekki sé síður sorg­legt að sjá hinsegin fólk beita sér gegn öðru hinsegin fólki, eins og í til­felli LGB teym­is­ins, þar sem hinsegin fólk eigi þegar undir högg að sækja. Sé ein­hver í vafa um það, hafi til dæmis nýverið birst tveir umdeildir pistlar eftir íslenskan sál­fræð­ing á Vísi þar sem stað­hæft var að trans fólk væri með rask­anir og brengl­anir af ýmsu tagi.

„Það hættu­lega við mál­flutn­ing af þessu tagi er að fólk sem veit kannski lítið um þessi mál getur hugs­an­lega tekið þessu sem góðu og gildu þótt þetta stand­ist ekki skoðun og það séu engar vís­inda­legar sann­anir fyrir því sem er haldið fram. Þar af leið­andi getur svona mál­flutn­ingur smitað út frá sér í sam­fé­lagið, meðal ann­ars út í heil­brigð­is­kerfið þangað sem trans fólk sækir ýmsa þjón­ustu,“ segir Ugla, þótt hán telji að flest heil­brigð­is­starfs­fólk sé sem betur fer nógu upp­lýst til að sjá í gegnum „vit­leys­una“.

„Engu að síður er alltaf hætta á að ein­hver láti svona mál­flutn­ing hafa áhrif á sig og eins og staðan er mætir trans fólk nógu miklu mót­læti. Svona skrif eru ekki á bæt­andi.“

Efast um siðferðisvitund umræddra aðila

Ugla segir ekki skipta máli hvort við­kom­andi er heims­þekktur rit­höf­undur, eins og J.K. Rowling, sál­fræð­ingur eða eitt­hvað annað, fólk sem setji fram svona skoð­anir og noti starfs­titil sinn til að gefa þeim aukið vægi ýti undir frek­ari for­dóma í sam­fé­lag­inu, skiln­ings­leysi og mis­munun gagn­vart trans fólki. En hver er eig­in­lega mun­ur­inn á því að ein­hver tjái skoð­anir sínar undir eigin nafni eða geri það og láti starfs­titil fylgja? Ugla er fljót til svars.

„Það að koma til dæmis fram sem sál­fræð­ingur og setja fram meið­andi, mis­vísandi og for­dóma­fullan áróður er grafal­var­legt og að mínu mati gróft brot í starfi. Sál­fræð­ingar hafa mikil áhrif í sam­fé­lag­inu og mér finnst full­komið ábyrgð­ar­leysi að nota starfs­titil sinn til að koma for­dóma­fullum og meið­andi skoð­unum á fram­færi.

Þetta fólk lætur starfs­tit­il­innn fylgja því það veit að aðrir eru þá lík­legri til að trúa og taka undir með því, enda er auð­veld­ara að afskrifa eitt­hvað sem for­dóma­fullt raus þegar það kemur frá ein­hverjum karli út í bæ frekar en ein­hverjum sem titlar sig sem sál­fræð­ing. Þar liggur hund­ur­inn graf­inn og ég set stórt spurn­ing­ar­merki við sið­ferð­is­vit­und fólks sem gerir slíkt.“

Segir íslenska fjölmiðla seka um að birta falsfréttir

Ugla segir að ábyrgð þess­ara aðila sé mikil og sömu­leiðis fjöl­miðla sem birta gagn­rýn­is­laust svona mál­flutn­ing. Það sé ekk­ert annað en gróft ábyrgð­ar­leysi. „Það er hættu­leg þróun að fjöl­miðlar gefi út efni sem er algjör vit­leysa og áróður enda eru skrif af þessu tagi lítið annað en fals­fréttir klæddar í bún­ing skoð­ana. Við höfum séð hvernig fals­fréttir og áróður hafa haft áhrif á kosn­ing­ar­bar­áttur erlendis. Það er því rétt hægt að ímynda sér hvaða áhrif þær hafa á við­kvæma sam­fé­lags­hópa sem eru oft ekki í stöðu til þess að berj­ast gegn þeim og þurfa í sífellu að vera að leið­rétta og fræða. Það er nefni­lega miklu auð­veld­ara að henda fram mis­vísandi áróðri en það er að leið­rétta hann. Það getur tekið mörg ár og jafn­vel ára­tugi.

Mynd / Sharon Kil­gannon

Nú veit ég að sál­fræð­ing­ur­inn umræddi sendi fyrri pistil­inn sinn á alla helstu fjöl­miðla lands­ins og fékk hvergi birt­ingu nema á Vísi. Í pistli hans og fleiri greinum af þessu tagi er ítrekað talað um „kyn­skipti“, orð sem hefur lengi verið for­dæmt sem vill­andi og meið­andi, meðal ann­ars í ályktum frá Trans Íslandi sem Blaða­manna­fé­lag Íslands birti 2007. Enda er þetta sam­bæri­legt við orðið „kyn­vill­ingur“ og ég efast stór­lega um að grein sem inni­héldi þá orð­notkun fengi birt­ingu í nokkrum fjöl­miðli á Íslandi. Þess vegna finnst mér að það þurfi að staldra við og skoða hvers vegna fjöl­miðlum þykir rétt­læt­an­legt að birta svona greinar og á hvaða for­sendum.

„Að mínu mati verða fjöl­miðlar sem deila svona fals­fréttum og áróðri í raun að fara að taka alvar­lega til í sinni rit­stjórn­ar­stefnu og hætta að láta aug­lýs­inga­tekjur frá smellum vega ofar sið­ferð­is­kennd.“

Að mínu mati verða fjöl­miðlar sem deila svona fals­fréttum og áróðri í raun að fara að taka alvar­lega til í sinni rit­stjórn­ar­stefnu og hætta að láta aug­lýs­inga­tekjur frá smellum vega ofar sið­ferð­is­kennd og þeim nei­kvæðu afleið­ingum sem þetta mun koma til með að hafa, í þessu til­felli fyrir trans fólk. Fjöl­miðlar eiga að vera miklu gagn­rýnni á það sem þeir birta, ann­ars eru þeir í beinni and­stöðu við sitt hlut­verk og ábyrgð gagn­vart almenn­ingi um rétt­mæta og áreið­an­lega upp­lýs­inga­veitu.“

Lítið annað en hatursorðræða

Hérna gríp ég fram í fyrir Uglu og spyr hvort við séum þá á móti ekki komin út hættu­lega braut sem sam­fé­lag ef við ætlum að fara að skerða mál­frelsi þeirra sem eru á önd­verðri skoðun við okkur sjálf? Hvað með tján­inga­frelsið?

„Fólk verður nú að geta sætt gagn­rýni fyrir skrif sín,“ segir hán yfir­vegað, „það er hluti af opin­berri umræðu. Að bera fyrir sig að það sé verið að skerða mál­frelsi fólk með því að gagn­rýna það er auð­vitað fárán­legt og ekk­ert annað en lélegt yfir­klór. Auðvitað eigum við að láta í okkur heyra þegar svona mis­vísandi áróðri og bulli er slengt fram í opin­berri umræðu og látið eins og það eigi við ein­hver rök að styðj­ast. Það getur ekki verið annað en nýt­ing á mál­frelsi að gagn­rýna slík skrif og for­dæma þau.“

Ugla segir að út frá sínum bæj­ar­dyrum séð sé svona mál­futn­ingur lítið annað en hat­urs­orð­ræða, þar sem til­gang­ur­inn sé að kasta rýrð á raun­veru­leika trans fólks og ala á mjög fjand­sam­legum og for­dóma­fullum skoð­unum. „Fólk verður að átta sig á því að orð hafa afleið­ingar og þessi skrif munu aðal­lega hafa nei­kvæð áhrif á til dæmis líf trans ung­menna á Íslandi, mörg hver sem upp­lifa nú þegar mikið skiln­ings­leysi og for­dóma. Til­gangur sál­fræð­ings­ins umrædda er til dæmis að smána og róg­bera trans fólk og upp­lifun þess og er því lítið annað en hat­urs­orð­ræða.“

Þá komum við einmitt að öðrum mik­il­vægum punkti, hvenær verður eitt­hvað að hat­urs­orð­ræðu? Hvar eru mörkin milli tján­ing­ar­frelsis og hat­urs­orð­ræðu?

„Samkvæmt skil­grein­ingum er talað um að orð verði hat­urs­orð­ræða þegar þau eru orðin það fjand­sam­leg og smætt­andi að það komi til með að ýta undir frek­ari for­dóma og mis­munun gagn­vart minni­hluta­hópum. Svona skrif snú­ast í raun ekk­ert um tján­ing­ar­frelsi heldur meira bara um að koma ein­hverjum for­dóma­fullum og meið­andi skoð­unum á fram­færi,“ svarar hán.

„Tján­ing­ar­frelsi er eitt­hvað sem við búum öll við á Íslandi og sam­fé­lags­miðlar gefa okkur svo sann­ar­lega tæki­færi til að koma skoð­unum okkar á fram­færi óhindrað. Það að fá ekki birta ein­hverjar for­dóma­fulla grein hjá fjöl­miðli telst því varla skerð­ing á tján­ing­ar­frelsi, enda er fjöl­miðlum ekki skylt að birta áróður og rugl á sínum vett­vangi. Það væri hins vegar allt annað mál ef rík­is­reknir fjöl­miðlar færu að rit­skoða gagn­rýni á stjórn­völd og stjórn­ar­hætti, en það er þar sem tján­ing­ar­frelsi okkar þarf að vera varð­veitt.

Mynd / Sharon Kil­gannon

Mér finnst þessi umræða því oft afvega­leidd út í eitt­hvað mun alvar­legra, en eins og staðan er í dag þá er tján­ing­ar­frelsi settar skorður þegar farið er að nota orð til að meiða annað fólk, það flokk­ast undir hat­urs­orð­ræðu. Og við verðum að geta tekið afleið­ing­unum ef við brjótum slík lög, enda er það alvar­legt mál.“

„Ef þú gerir mistök þá er það ekkert mál“

Nú taka samt sem áður ein­hverjir undir með J.K. Rowling, LGB Alliance og skoð­ana­systk­inum þeirra, þó ekki nema að því leyti að þeim finnst umræðan um mál­efni hinsegin fólks komin út í tóma vit­leysu. Sumir segj­ast vera orðnir ringl­aðir á öllum þessu nýju hug­tökum, hán, kynsegin og þar fram eftir götum og að „þið“ verðið raun­veru­lega ekki í rónni fyrr en allri umræðu um „líf­ræði­legu kynin“ karl og kona hafi verið eytt. Hvað segir Ugla við því, skilur hán hvað átt er við?

„Í mínum huga snýst þetta aldrei um að fólk þurfi að kunna skil á öllum hug­tökum eða geta lesið upp ein­hverjar orða­bóka­skil­grein­ingar,“ svarar hán af still­ingu. „Auðvitað snýst þetta bara um gagn­kvæma virð­ingu og að við getum tekið fólki eins og það er. Ég skil alveg að það getur verið svo­lítið yfir­þyrm­andi að vera óviss um hvernig á að nota hug­tök eða hvaða fornöfn á að nota, en á móti get­urðu reynt að ímynda þér hvernig er að vera trans og mæta for­dómum, mis­munun og skiln­ings­leysi sem enn er við lýði í sam­fé­lag­inu. Það allra minnsta sem við getum gert er að leggja okkur aðeins fram og reyna okkar besta að nota rétt hug­tök og fornöfn. Það kostar okkur ekk­ert, en getur virki­lega haft mjög jákvæð áhrif á fólkið í kringum okkur. Þetta er ekki það flókið ef við bara tökum okkur aðeins tíma og setj­umst niður og hugsum um þetta.“

„Auðvitað snýst þetta bara um gagn­kvæma virð­ingu og að við getum tekið fólki eins og það er.“

Ugla segir að gagn­stætt því sem einn­hverjir kunni að telja sé flest trans fólk yfir­leitt til í að ræða þessi mál á jafn­inga­grund­velli. „Trans fólk veit strax hvort fólk er að spyrja af ein­lægni eða ekki. Ef þú gerir mis­tök þá er það ekk­ert mál. Þá er ein­fald­ast og best að biðj­ast bara afsök­unar og gera betur næst. Trans fólk er með­vitað um að þetta getur verið svo­lítið snúið, en ég held að við verðum öll að gera okkar besta og leggja okkur fram að koma fram við annað fólk af virð­ingu. Það þýðir að við þurfum kannski aðeins að hugsa áður en við notum fornöfn eða nöfn til að byrja með, en þetta kemur allt saman mjög fljótt. Við þurfum bara að reyna,“ segir hán og brosir.

Alls ekki á móti hugtökunum karl og kona

Ugla segir mar­miðið síðan aldrei hafa verið að afmá líf­fræði­legt kyn fólks eða umræð­una um það enda sé trans fólk eflaust mun með­vit­aðra um sín lík­am­legu ein­kenni en annað fólk, sér­stak­lega þegar kemur að kyni. Trans fólk vilji hins­vegar vekja athygli á því að kyn, hvort sem rætt er um það á félags­legum eða líf­fræði­legum nótum, sé mun flókn­ara en svo að allar konur séu svona og að allir karlar séu hinsegin. Trans fólk vilji ein­fald­lega fá að vera hluti af umræðu sem snerti það, en ekki úti­lokað frá þeirri umræðu. Enda séu sögur þess og reynsla mun mark­tæk­ari en úreltar skoð­anir ein­hverra rit­höf­unda, sál­fræð­inga eða ann­arra sem eru í engum tengslum við veru­leika trans fólks.

Spurð hvort trans fólk verði enn fyrir for­dómum á Íslandi segir Ugla ekki nokkurn vafa leika á því. „Hat­urs­orð­ræða og for­dómar lifa afskap­lega góðu lífi hér, sömu­leiðis aðkast og ofbeldi. Það þarf nú lítið annað en að skoða kommenta­kerfi á vef­miðlum lands­ins til að finna ansi svæsnar og for­dóma­fullar umræður um trans fólk,“ nefnir hán en tekur fram að Ísland standi samt fram­ar­lega þegar kemur að þessum málum og að margt hafi breyst til hins betra á und­an­förnum ára­tugum. Það þýði þó ekki að fólki verði ekki enn fyrir mis­munun á ýmsum sviðum.

„Sem dæmi lendir trans fólk enn á alls konar veggjum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins,“ bendir hán á. „Núna er ekki starf­andi á BUGL sér­stakt tran­steymi sem aðstoðar trans ung­menni og for­sjárað­ila þeirra, en ég veit að það er mik­ill vilji innan BUGL og hjá heil­brigð­is­yf­ir­völdum að standa betur að þeirri þjón­ustu og ég vona að það leys­ist úr vanda­málum þar sem allra fyrst.

Trans fólk sem býr úti á landi lendir síðan oft í miklum vand­ræðum við að leita sér þjón­ustu eins og ég þekki sjálf. Það er mik­il­vægt að heil­brigð­is­starfs­fólk fái nægi­lega fræðslu til að geta beint fólki á rétta staði og standi ekki í vegi fyrir því.

Mynd / Sharon Kil­gannon

Svo þarf líka að huga að trans fólki sem er hæl­is­leit­endur og flótta­fólk, en sá hópur hefur verið mjög ósýni­legur hér­lendis og eins má leggja miklu meira púður í að kanna stöðu trans fólks yfir­leitt á Íslandi, svo við getum lagst í aðgerðir til að bæta stöðu þess.“

Hán bætir við að það sé líka bara ótrú­lega mik­il­vægt að við gerum öll það sem við getum til að sporna gegn for­dómum. „Hvort sem það er að deila góðum greinum á sam­fé­lags­miðlum, styðja við sam­tök eins og Samtökin ’78 og Trans Ísland sem beita sér fyrir bættum hag trans fólks eða mót­mæla for­dóma­fulla frænd­anum á jóla­hlað­borð­inu. Margt smátt gerir eitt stórt.“

Gefandi barátta

Við erum farin að nálg­ast lokin á þessu spjalli okkar og aftur komum við að spurn­ing­unni hvort það geti ekki á köflum verið þreyt­andi að standa enda­laust í því að leið­rétta alls konar rang­færslur og for­dóma. Ugla brosir og játar að vissu­lega séu verk­efnin mörg og stundum taki á að vera í eld­lín­unni.

„En ég hef gagn­gert sett mig í þetta hlut­verk og er mjög með­vituð um það. Ég hef því tekið það á mig að standa í þessu og vera mann­eskjan sem svarar, fræðir og berst fyrir bættum hag trans fólks.

Það eru alls konar leiðir til þess og þó að ég sé kannski sýni­legri en margt annað fólk þá er ótrú­lega stór hópur fólks sem beitir sér fyrir þessu og ég er því svo sann­ar­lega ekki ein,“ minnir hán á.

„Ég hef gagn­gert sett mig í þetta hlut­verk og er mjög með­vituð um það. Ég hef því tekið það á mig að standa í þessu.“

Hán segir að það sé auð­vitað líka mjög gef­andi að standa í svona bar­áttu og sjá fram­för eiga sér stað. Það haldi sér gang­andi. „Það gefur mér líka mikið að fylgj­ast með yngri kyn­slóð­inni sem ég hef óbilandi trú á og sæki inn­blástur í á hverjum degi,“ segir hán. „Fram­tíðin er björt og ég hlakka svo til að sjá þá fram­för sem mun eiga sér stað á næstu ára­tugum.“

Mynd / Sharon Kil­gannon / Instagram

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu