„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vill gefa ósýnilega fólkinu rödd

Vill gefa ósýnilega fólkinu rödd

Vilborg Dav­íðs­dóttir var að senda frá sér skáld­sög­una Undir Ygg­drasil þar sem hún heldur áfram að segja sögur kvenna á land­náms­öld. Í þess­ari bók er sögu­hetjan Þor­gerður Þor­steins­dóttir, son­ar­dóttir Auðar djúpúðgu sem Vilborg skrif­aði þrí­leik um. Sterk kona sem fer sínar eigin leiðir, brýtur hefðir, upp­lifir djúpa sorg og menntar sig í völvu­fræðum.

Þótt sagan ger­ist árið 900 talar umfjöll­un­ar­efnið beint inn í sam­tím­ann, enda segir Vilborg að hlut­skipti mann­eskj­unnar sé ekki tíma­bundið, við séum alltaf að fást við okkur sjálf og til­finn­ingar okkar.  „Mér finnst þessi horfni heimur land­náms­fólks­ins svo gríð­ar­lega heill­andi, sér í lagi yfir­nátt­úru­legi hluti hans,“ segir Vilborg þegar hún er spurð hvernig á því standi að hún haldi áfram að segja sögu ætt­fólks Auðar djúpúðgu í Undir Ygg­drasil. „Þegar ég ákvað að skrifa um Auði á sínum tíma tók ég þá stefnu að velja þá gerð sög­unnar um hana sem segir að hún hafi verið kristin. Þannig að þegar ég hef verið að sýna heiðna trú í þrí­leiknum hefur það alltaf verið í gegnum augu auka­per­sóna og áhorf­enda. Ég hef ekki fyrr en núna haft frelsi til að sýna heið­inn sið innan frá, frá sjón­ar­horni aðal­per­són­unnar Þor­gerðar sem þráir það heit­ast af öllu að nema kunn­áttu af völvu og verða ein slík sjálf. Mér hefur alltaf fund­ist gaman að skrifa og alltaf fund­ist ég vera í besta starfi í heimi, en ég hef sjaldan skemmt mér eins vel og á meðan ég var að skrifa þessa bók.“

Samkynhneigðir sjást ekki í sagnaarfinum

Talandi um konur sem gera hluti sem ekki tíðk­að­ist að konur gerðu á þessum tíma þá virð­ast þær heilla Vilborgu mikið. Hefur hún femíníska hugsun að leið­ar­ljósi þegar hún velur sér við­fangs­efni?

„Já, þegar ég er að skrifa skiptir það mig máli að varpa ljósi á sögur og hlut­skipti kvenna,“ segir hún. „Vegna þess að þær hafa auð­vitað staðið í skugga karla­veld­is­ins alla tíð. Þetta er helm­ingur mann­kyns en allar bók­menntir, allar frá­sagnir og öll sagn­fræði þar til mjög nýlega, er skrifuð af körlum um karla og fyrir karla. Það að vera kona sést ekki í sög­unni almennt og það skiptir mig máli að sýna hvernig lífið hefur verið fyrir þennan helm­ing mann­kyns­ins og auð­vitað ekki bara konur heldur sam­fé­lagið allt. Ég vil lyfta upp sjón­ar­horni þeirra og ann­arra sem hafa enga rödd, til dæmis barna og fólks með fötlun, þeirra sem eru mis­rétti beittir. Í þess­ari bók er ég í fyrsta skipti með per­sónu sem er sam­kyn­hneigður karl og það er fólk sem við sjáum ekki heldur í sagna­arf­inum, þetta er ósýni­lega fólkið sem ég vil gefa rödd. Mér finnst það mjög mik­il­vægt.“

Í Undir Ygg­drasil er einmitt fjallað um ýmis fleiri mál sem eru ofar­lega á baugi í sam­tím­anum, til dæmis kyn­ferð­is­brot gegn barni, ein­elti og móður sem ekki teng­ist börnum sínum. Þannig að þótt Vilborg skrifi sögu sem ger­ist árið 900 er hún að fjalla um hluti sem eru brenn­andi í umræð­unni í dag en ítar­legt við­tal er við hana í nýj­ustu Vikunni þar sem hún talar einnig um hvernig sorgin hafi opnað henni nýja sýn.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rithöfundar

Tilnefndur meðal 8 bestu rithöfunda í heimi – „Hefur ekki staðið á torgum og kallað eftir hrósi“
Menning

Til­nefndur meðal 8 bestu rit­höf­unda í heimi – „Hefur ekki staðið á torgum og kallað eftir hrósi“

Rit­höf­und­ur­inn Gyrðir Elíasson var í gær til­nefndur sem einn af 8 bestu erlendu rit­höf­und­unum á hinum virtu frönsku bók­mennta­verð­launum Prix Médicis. Til­nefn­ing­una hlýtur hann fyrir bók­ina Sorg­armar­s­inn (eða Requiem á frönsku) og verður sig­ur­veg­ar­inn til­kynntur þann 7. nóv­em­ber næst­kom­andi. Verð­launin frönsku voru fyrst veitt árið 1958 og eru þau veitt rit­höf­undum sem „hafa ekki fengið nægi­lega verð­skuld­aða athygli“, eins og...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu