„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jólasveinarnir fínu í gluggunum

Jólasveinarnir fínu í gluggunum
Fjalar Ólafsson

Margir muna eftir litlu jóla­svein­unum sem hreyfð­ust svo fal­lega í jóla­legu búð­ar­glugg­unum í Hafn­ar­stræt­inu í miðbæ Reykja­víkur. Þessir jóla­sveinar til­heyrðu Ramma­gerð­inni, sem nú er orðin 80 ára en í þessa ára­tuga­fjöld hefur hún þró­ast og vaxið frá því að vera ramma­gerð og út í að vera ein elsta gjafa­vöru­versl­unin á land­inu en nú er flagg­skipið á menn­ingar- og lista­veg­inum Skóla­vörðu­stíg.  

Stofn­andi Ramma­gerð­ar­innar var Jóhannes Bjarna­son (1909-1978) en hann hóf að ramma inn myndir upp úr 1940 við Laugaveg 53 og flutti ári síðar í kjall­ara Hótels Heklu þar sem bróðir hans, Guð­laugur Bjarna­son (1908-2000), gekk til liðs við hann. Jóhannes var metn­að­ar­fullur í þeim verkum sem hann tók sér fyrir hendur og vann ötul­lega að því að byggja upp fyr­ir­tæki sitt Ramma­gerð­ina sem hann svo opn­aði við Hafn­ar­stræti 17, árið 1944.

„Eins og nafnið gefur til kynna þá sáu þeir bræður um inn­römmun fyrir okkar helstu íslensku mynd­list­ar­menn eins og Kjarval. Ramma­gerðin á sér nefni­lega merki­lega sögu sem teng­ist list og sem dæmi má nefna að margir Íslend­ingar áttu þá eft­ir­prent­anir eftir íslenska lista­menn sem voru seldar inn­ram­maðar í Ramma­gerð­inni. Verslun Ramma­gerð­ar­innar þró­að­ist áfram og upp úr 1950 fór hún að selja að auki gjafa­vöru úr íslenskri ull og keramíki. Flagg­skipið hefur ávallt verið í mið­bænum, þar hefur hjarta Ramma­gerð­ar­innar slegið í 80 ár, nú á Skóla­vörðu­stíg þar sem skap­andi hand­verk og stemn­ing blómstar,“ segir Fjalar Ólafsson inn­kaupa­stjóri bros­andi.

Gömlu sveinkarnir til Árbæjarsafns

En hvers vegna heitir versl­unin enn Ramma­gerðin úr því að kjarna­starf­semi hennar hefur breyst? ,,Okkur þykir vænt um nafn Ramma­gerð­ar­innar og viljum alls ekki breyta því. Ég á sjálfur, eins og ef til vill fleiri, minn­ingu, frá þeim tímum sem fyrstu teikn um jólin birt­ust í gluggum Ramma­gerð­ar­innar í Hafn­ar­stræt­inu og for­eldrar mínir fóru með mig að skoða í glugg­ana, þessa merki­legu jóla­sveina sem hreyfðu sig,“ segir Fjalar bros­andi. „Á þeim tíma komu jólin fyrst í Ramma­gerð­ina og því fylgdi mikil eft­ir­vænt­ing.“

Viðtal við Fjalar er í nýút­komnu köku­blaði Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu