„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stymir og Heiðdís á meðal þeirra bestu: „Við erum í skýjunum!“

Stymir og Heiðdís á meðal þeirra bestu: „Við erum í skýjunum!“
Hjónin Styrmir Kári og Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir hafa und­an­farin ár myndað fólk hvaðanæva að úr heim­inum en þó mest frá Banda­ríkj­unum, Bret­landi og Þýska­landi.

Virt erlent tíma­rit setur íslensk hjón á lista yfir brúð­kaups­ljós­mynd­ara sem eru næst því að slá í gegn. Styrmir Kári og Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir eru him­in­lif­andi með útnefn­ing­una og segja hana mikla upp­hefð og við­ur­kenn­ingu.

„Við erum auð­vitað í skýj­unum með að hafa verið valin, með öllum þessum hæfi­leik­a­ríku ljós­mynd­urum hvaðanæva að úr heim­inum,“ segir Styrmir Kári, spurður hvernig til­finn­ing sé að þau hafi verið valin á list­ann. „Þetta er auð­vitað mikil upp­hefð fyrir okkur og við­ur­kenn­ing á allri þeirri vinnu sem við höfum lagt á okkur síð­ustu ár, eftir að við ákváðum að ein­beita okkur svo til ein­göngu að því að mynda ást­fangið fólk.“

Það er Rangef­inder-tíma­ritið sem gefur út umræddan lista yfir 30 rísandi stjörnur í brúð­kaups­ljós­myndun á hverju ári og hefur gert síðan 2012. Að sögn Styrmis er beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu eftir honum á hverju ári og mikil leynd sem hvílir ávallt yfir því hverjir eru valdir. „Þessi við­ur­kenn­ing er af mörgum talin til þeirra stærstu og virt­ustu í brúð­kaups­ljós­mynda­heim­inum og þá kannski helst vegna þess að til að hljóta til­nefn­ingu á list­ann þarf ein­hver sem er nú þegar áhrifa­mann­eskja í brans­anum að mæla með þér, til dæmis aðrir ljós­mynd­arar, rit­stjórar brúð­kaups­tíma­rita, umboðs­skrif­stofur og skipu­leggj­endur.“

Mynd / Styrmir Kári og Heiðdís

Valinn úr miklum fjölda hæfileikaríkra ljósmyndara

Styrmir segir að við til­nefn­ingu á list­ann sé hver og einn beð­inn um að senda inn 30 myndir teknar í brúð­kaupum á ferl­inum, sem megi ekki spanna meira en fimm ár, og segja frá sinni nálgun á ljós­myndun. „Dóm­nefndin sem sam­anstendur af rit­stjórum tíma­rits­ins fer svo í gegnum inn­sendu mynd­irnar og velur úr þeim mikla fjölda ljós­mynd­ara sem mælt er með á hverju ári, þá sem þeim finnst hafa sýnt ein­staka og efni­lega hæfi­leika, list­ræna sýn og rödd í brúð­kaups­ljós­myndun og vert er að fylgj­ast með í fram­tíð­inni.“

„Þurftum á upplífgun að halda“

Spurð hvort það hafi komið þeim á óvart að þau ættu mögu­leika að kom­ast á list­ann, seg­ist Heiðdís ekki vita hvort hægt sé að segja það. „Það er nefni­lega smá­vegis ferli í kringum list­ann þannig að við höfum vitað síðan í sept­em­ber að við ættum mögu­leika á að kom­ast inn,“ útskýrir hún. „Við lögðum tals­verða vinnu í umsókn­ina okkar og fannst við alveg eiga góða mögu­leika enda lagt hart að okkur sein­ustu ár, en auð­vitað veit maður aldrei hvað heillar dóm­nefnd­ina eða hverju hún leitar eftir það árið. Við erum fyrst og fremst bara ótrú­lega þakk­lát fyrir að hafa verið valin á list­ann, sér­stak­lega á þessu ári þar sem við þurftum svo sann­ar­lega á upp­lífgun að halda.“

Mynd / Styrmir Kári og Heiðdís

Stór nöfn í bransanum

Styrmir getur þess að margir af þeim ljós­mynd­urum sem þau hafi litið upp til og haft sem fyr­ir­myndir að þeirra eigin vinnu hafi verið á þessum lista í gegnum tíð­ina og margir þeirra séu núna stór nöfn í þessum afmark­aða heimi brúð­kaups­iðn­að­ar­ins. „Á list­anum núna eru svo margir ótrú­lega hæfi­leik­a­ríkir og sumir þeirra hafa fengið aðrar álíka við­ur­kenn­ingar frá öðrum blöðum eins og Harpes Bazar, Vouge og BRIDES,“ segir Heiðdís. „Það eru ein­hverjir ljós­mynd­arar þarna sem við höfum verið að fylgj­ast með en flest nöfnin höfum við ekki séð áður.

Annars finnst okkur alltaf pínu skondið að ræða um brúð­kaups­ljós­myndun við fólk utan þess hóps því þetta er svo ótrú­lega sér­hæfður bransi. En hann er risa­stór og margar stjörnur þar inni sem eru þó ekk­ert þekktar utan þessa geira. Þannig að þótt við myndum nefna hér ein­hver nöfn er óvíst að les­endur viti hverjir það eru.“

Mynd / Styrmir Kári og Heiðdís

Hvatning til að halda áfram

Hafið þið fengið ein­hverjar fyr­ir­spurnir í beinu fram­haldi af þess­ari útnefn­ingu? „Það er svo­lítið erfitt að svara því, þar sem fólk tekur það yfir­leitt ekki fram,“ segir Heiðdís. „Og svo eru bara nokkrir dagar liðnir síðan list­inn var opin­ber­aður. En við höfum fengið nokkra pósta sein­ustu daga sem gætu tengst þessu.“

Styrmir seg­ist vona að svona við­ur­kenn­ing hafi líka meiri lang­tíma­á­hrif sem skili sér á kom­andi árum og opni enn fleiri dyr fyrir þau. „Ekki endi­lega bara í auknum fyr­ir­spurnum, heldur gefi manni líka aukið vægi innan brans­ans og verði okkur hvatn­ing til að halda áfram á þess­ari braut og gera enn þá betur.“

Mynd / Styrmir Kári og Heiðdís

Í lokin hvetja þau áhuga­sama til að kynna sér list­ann. „Við mælum algjör­lega með því að fólk sem hefur áhuga á ljós­myndun kíki yfir list­ann og skoði mynd­irnar sem sendar voru inn,“ segir Heiðdís. „Þær eru alveg sturl­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu