„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Mikilvægt að missa ekki trúna á draumana“

„Mikilvægt að missa ekki trúna á draumana“

Nýlega horfðu menn­ing­ar­þyrstir lands­menn á aðventu­tón­leika Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands á RÚV. Þar steig á svið og söng Álf­heiður Erla Guð­munds­dóttir óperu­söng­kona og heill­aði alla sem á hlýddu. Hún hefur þegar slegið í gegn í Þýska­landi og var af því til­efni í við­tali í Vikunni. Álf­heiður Erla hefur átt mik­illi vel­gengni að fagna og fékk m.a. hlut­verk í Staatsoper Unter den Linden, einu virtasta óperu­húsi í borg­inni, sem er í fremstu röð í heim­inum. 

Það var mikil molla í Berlín dag­inn sem við Álf­heiður hitt­umst. Hitinn búinn að fara í 30 stig yfir dag­inn og stefndi í þrumu­veður. Loftið var þungt og skýja­bakk­arnir hrönn­uð­ust upp og við rétt sluppum inn á rólegan stað, áður en dramat­ískar eld­glær­ingar tóku að blika á lofti og þrum­urnar drundu rétt við okkur með því­líku offorsi að minnti á Wagner-óperu. Við  komum okkur fyrir og hlæjum dátt að því að þetta séu nú heldur betur við­eig­andi aðstæður og veð­ur­far til að eiga orða­stað við óperu­söng­konu.

Álf­heiður hefur lagt stund á tón­list síðan hún var barn og á ekki langt að sækja áhug­ann á tón­list. Móðir hennar, Val­gerður Jóns­dóttir, er mús­ík­með­ferð­ar­fræð­ingur og hefur um ára­bil rekið Tónstofu Val­gerðar og faðir hennar er Guð­mundur Emilsson, tón­list­ar­stjórn­andi og fyrr­ver­andi tón­list­ar­stjóri RÚV.

Berlín og Reykjavík tveir ólíkir og skapandi heimar

Nú fórst þú strax eftir að þú kláraðir stúd­ents­próf og fram­halds­próf frá Söng­skóla Sigurðar Demetz til Berlínar og ert búin að vera búsett í borg­inni í fimm ár. Eiga borgir eins og Reykja­vík og Berlín eitt­hvað sam­eig­in­legt í þínum huga? „Það að geta hjólað eða hoppað upp í lest og farið hvert sem er, eins og maður gerir hér í Berlín, er mikið frelsi. Og veðrið hér gerir þetta allt mjög þægi­legt. Ég hugsa stundum um það þegar ég er á Íslandi hvað það væri nú gott ef sam­göng­urnar hjá okkur væru betri og ein­fald­ari. Heima er ég svo háð því að fá lán­aðan bíl eða þarf skutl í allar áttir. Hins vegar sakna ég nátt­úr­unnar á Íslandi. Að geta farið út fyrir bæinn og notið þess að liggja í kyrrð í mosa eru mikil for­rétt­indi,“ segir Álf­heiður og brosir sínu bjarta og ein­læga brosi. „Það að vera ein­hvers staðar einn úti í nátt­úr­unni er svo ein­stök til­finn­ing. Berlín og Reykja­vík eru báðar miklar menn­ing­ar­borgir, en í Berlín er stutt tals­vert meira við lista­lífið. Hún er líka fremur ódýr borg og þess vegna alveg kjörin fyrir ungt lista­fólk. Auðvitað er hér meiri mann­fjöldi og klass­íska tón­list­ar­senan m.a. þess vegna mjög stór. Hér eru allar umboðs­skrif­stof­urnar og tón­list­ar­út­gef­end­urnir. Fram­boðið af tón­leikum í óperu­hús­unum og tón­leika­söl­unum er óþrjót­andi. Hérna er maður í miðri hring­iðunni.

„Ég hugsa stundum um það, þegar ég er á Íslandi, hvað það væri nú gott ef sam­göng­urnar hjá okkur væru betri og ein­fald­ari. Heima er ég svo háð því að fá lán­aðan bíl eða þarf skutl í allar áttir. Hins vegar sakna ég nátt­úr­unnar á Íslandi.“

Á  Íslandi þurfa lista­menn að hugsa meira út fyrir boxið og skipu­leggja sína við­burði sjálfir og þá getur komið sér vel hvað sam­fé­lagið er lítið og allir þekkja alla. Það getur verið mjög skap­andi en líka krefj­andi. En því miður hentar Reykja­vík ekki söngv­urum sem leita eftir fastri vinnu í óperu­húsi. Það væri þó ósk­andi að geta búið á Íslandi og sinnt ferl­inum í Evrópu en ég er viss um að þá þyrfti maður heldur betur að kolefn­is­jafna öll ferða­lögin. Berlín og Reykja­vík eru tveir heimar, finnst mér, en borg­irnar eiga það sam­eig­in­legt að vera mjög skap­andi þó að það sé með ólíkum hætti.“

Íslensk Mjallhvít í Ríkisóperunni

Ætlaðir þú alltaf að verða söng­kona? „Ég tel mig mjög lánsama að hafa alltaf vitað hvað ég vildi verða. Auðvitað hefur það kosti að staldra við, vera opin og prófa hluti. En það er líka gott að vita hvað maður vill því þannig nýt­ist tím­inn vel og margar ákvarð­anir verða auð­veld­ari. Ég vildi sem stelpa verða leik­kona og söng­kona. Það má segja að óperu­söngur sé þetta hvort tveggja,“ segir Álf­heiður og brosir íbyggin.

Svo fékkstu aðal­hlut­verkið, hlut­verk Mjall­hvítar (Schneewittchen) í sam­nefndri  barna­óp­eru Eng­el­berts Humperdincks/Wolfgang Mitterer í Staatsoper, einu af þremur stærstu óperu­húsum Berlínar, sem er óperu­hús á heims­mæli­kvarða. Hvernig atvik­að­ist það? „Við vorum í skól­anum að setja upp óper­una Il gondo della luna, eftir Haydn  sem var sex vikna krefj­andi verk­efni. Pró­fess­or­arnir við skól­ann komu og fylgd­ust með æfingum, þeir voru að skoða sam­starf okkar við leik­stjór­ann sem var utan­að­kom­andi. Við vorum þá nokkur sem voru valin úr til að syngja fyrir í Staatsoper. Ég var svo valin úr þeim hópi og átti að vera á frum­sýn­ing­unni. En þá gerð­ist það leið­inda óhapp, nokkrum dögum fyrir frum­sýn­ingu að ég við­beins­brotn­aði auk þess að sauma þurfti nokkur spor í neðri vör­ina. Aumingja lækn­ir­inn sem til­kynnti mér þetta fékk yfir sig mjög dramat­ísk við­brögð frá mér. Ég var alveg miður mín að þurfa að vera í fatla næsta mán­uð­inn og geta ekki tekið að mér hlut­verkið. En það má segja að fall sé far­ar­heill, því mitt í öllum von­brigð­unum gerð­ist und­rið.

Stuttu eftir áfallið fékk ég tölvu­skeyti og var boðið að koma aftur og syngja fyrir í Staatsoper. Ég var ekki fær um að fara í fötin eða svo mikið sem greiða mér en unnusti minn, Valgeir Daði Ein­ars­son, sýndi aðdá­un­ar­verða þol­in­mæði og hjálp­aði mér með þetta. Mér leið illa, var í upp­námi yfir þessu öllu og alls ekki til­búin að fara að syngja og gerði mér því ekki miklar vonir. En ég hugs­aði, þetta tæki­færi kemur ekki aftur. Ég fór bara með fatl­ann við minn  fín­asta kjól og leið fer­lega illa. Ég fór í pruf­una og reyndi eins og ég gat og var boðið aðal­hlut­verkið, hlut­verk Mjall­hvítar. Ég átti alls ekki von á þessu og var óskap­lega hissa og glöð. Kannski hjálp­aði að ég er dökk­hærð með sítt hár eins og Mjall­hvít á að vera,“ segir Álf­heiður af hóg­værð og hlær. „Að fá hlut­verk í Staatsoper eru mikil for­rétt­indi. Frábært að fá svona starfs­reynslu á meðan ég er enn í námi. Þetta ýtir mjög undir að ég fái fleiri góð verk­efni. Draum­ur­inn er svo að kom­ast á fastan samn­ing við eitt­hvert óperu­hús­anna, ef guð lofar, og þau eru mörg mjög góð í Þýska­landi.“

Söngstúdíóin, röddin og hlutverkin

Þú hefur auk þess að fá hlut­verk í Staatsoper fengið marg­vís­legar við­ur­kenn­ingar „ Já, ég er  m.a. „Britten Pears Young Artist“  og styrk­þegi „Yehudi Menuhin live music now Berlin.“ Fyrr á þessu ári var ég líka valin til að taka þátt í „Song studio for young vocalists“ hjá Renée Fleming í Carnegie Hall í New York. Næsta haust ræt­ist svo sá draumur minn að verða með­limur í óperu­stúd­íói. Þetta er Thür­in­ger Opern-stúd­íóið sem er m.a. stað­sett í Weimar. Þar verð ég í fullu starfi. Mörg stóru óperu­húsin hafa óperu­stúdíó en þar fá ungir söngv­arar nauð­syn­lega þjálfun. Ég er ekki búin að ljúka mínu námi, þannig að þetta verður svo­lítið  strembið púslu­spil. Ungu söngv­ar­arnir eru á launum þó ekki séu það alveg bestu launin. Þeir fara með minni hlut­verkin og læra að taka þátt í stórum sýn­ingum.

„Oftast nær er kirkjan þétt setin af góðum vinum og fjöl­skyldu og þá verð ég ofur­með­vituð um sjálfa mig og finnst ég verða að standa mig mjög vel því nú er ég komin heim til að syngja. Þá vil ég gera allt svo vel.“

Í þessu stúd­íói er aðal­húsið í Weimar en þeir eru líka í sam­bandi við fleiri hús og senda sína kandi­data þangað. Í stúd­íó­unum eru ungu söngv­ar­arnir undir vernd­ar­væng þeirra sem stjórna og fá mikið að gera. Ég hef heyrt að það sé stundum of mikið að gera miðað við að þessi starfs­kraftur er á skertum launum. Þannig virð­ist stundum vera til­hneig­ing til að nýta sér þessar aðstæður.“

Þú hefur sungið mörg hlut­verk, m.a. Súsönnu í Brúð­kaupi Figarós eftir Mozart, Marzelline í Fidelio eftir Beethoven og Poppeu í L‘incoronazione di Poppea eftir Monti­verdi. Hvaða hlut­verk langar þig mest til að syngja? „Þetta er ekki ein­föld spurn­ing,“ segir Álf­heiður og verður mjög hugsi. „Vegna þess að hlut­verkin verða að henta rödd­inni. Ég er léttur lýrískur sópran og ef ég er raunsæ og miða við minn aldur, þá henta Mozart og Händel mér mjög vel núna. Það væri t.d. æðis­legt að fá einn dag­inn að syngja hlut­verk Konstanze í Brott­nám­inu úr kvenna­búr­inu eftir Mozart. Það væri líka frá­bært að fá að spreyta sig á Anne Truelove í Rake‘s Progress eftir Stra­vin­sky og að syngja Kleópötru í Júlíusi Caesar efir Händel. Svo breyt­ist röddin og þá hlut­verkin með. Í fram­tíð­inni væri gaman að syngja greifaynj­una í Brúð­kaupi Fígarós í stað­inn fyrir Súsönnu, svo ég taki smá­dæmi. En það er alveg klárt mál að ég mun ekki syngja aðal­hlut­verk í Wagner-óperum, til þess þarf dramat­íska rödd sem yfir­gnæfir stóra hljóm­sveit,“ segir Álf­heiður og brosir kank­vís.

Áheyrendur á Íslandi og í Berlín og íslensku sönglögin

Þú hefur líka sungið mikið á Íslandi, eins og í tón­leika­röð­inni „Perlur íslenskra söng­laga“ og á Menn­ing­arnótt síð­ast­liðin fjögur ár. Er ein­hver munur á því að syngja fyrir Berlín­ar­búa eða Íslend­inga? „Það er ynd­is­legt að syngja heima eins og í „Perlum íslenskra söng­laga,“ allir þekkja lögin og allur sal­ur­inn syngur með í hug­anum, sem er dásam­legt. Það getur líka verið svo­lítið stressandi að koma fram á tón­leikum heima eins og ég hef gert í Dóm­kirkj­unni  á Menn­ing­arnótt. Oftast nær er kirkjan þétt setin af góðum vinum og fjöl­skyldu og þá verð ég ofur­með­vituð um sjálfa mig og finnst ég verða að standa mig mjög vel því nú er ég komin heim til að syngja. Þá vil ég gera allt svo vel. Þjóð­verjar klappa mjög mikið eftir sýn­ingar, eig­in­lega stundum of mikið finnst mér,“ segir Álf­heiður og kímir, „á meðan Íslend­ingar láta minna klapp nægja. Í Þýska­landi syng ég á þýsku eða ítölsku. Þegar sungið er á móð­ur­máli þjóð­verja er efnið þeim af eðli­legum ástæðum kunn­ug­legra. Stór hópur hér í Þýska­landi er alinn upp við að heyra t.d. Töfraflaut­una, af því að hér hefur öll þessi tón­list verið stunduð svo lengi.

„Áttu þér íslenskt upp­á­halds­söng­lag? „Já ætli það sé ekki „Vökuró“ eftir tón­skáldið og fyr­ir­mynd­ina Jórunni Viðar. „Smávinir fagrir“, ljóð Jónasar Hall­gríms­sonar við lag Jóns Nordal, er líka í miklu upp­á­haldi, en það er reyndar kór­lag. Svo er lagið „Hvíld“ eftir Huga Guð­munds­son líka ynd­is­legt. Ég á svo margar skemmti­legar minn­ingar frá veru minni í Hamra­hlíð­ar­kórnum þar sem við sungum öll þessi fal­legu lög og það er mjög erfitt að gera á upp á milli þeirra. Það fer svo mikið eftir stemn­ing­unni hverju sinni hvað maður vill hlusta á. Tónlist teng­ist svo mikið minn­ingum okkar og til­finn­ingum.“

Allt getur gerst

Hvað gefur söng­ur­inn þér sem önnur störf, þó mik­il­væg séu, gefa þér ekki? „Það að eiga töfra­stund með fólki og flytja lif­andi tón­list finnst mér heill­andi. Þetta er stund, þar sem allt annað er úti­lokað. Þetta er líka stund þar sem allt getur gerst. Í óper­unum mæt­ast mörg list­form og mynda eina heild. Texti og tón­list sem búið er að semja ásamt bún­ingum og allri umgjörð­inni sem hefur verið búin til. Að fá tæki­færi til að taka þátt í þessu ferli er alveg mögnuð til­finn­ing. Sá mögu­leiki að geta hreyft við fólki er alveg stór­kost­legur. Að gefa af sér og fá kannski þakk­læti frá áhorf­and­anum. Það jafn­ast ekk­ert á við það.“

„Já mér finnst svo mik­il­vægt í öllu atinu og áreit­inu sem dynur á okkur dag­lega að missa ekki trúna á draumana sem við eigum. Mér finnst lífið hafa kennt mér að ef unnið er að því að láta draumana ræt­ast, þá getur allt gerst. Að trúa á draum­inn sinn, jafn­vel þó að þér finn­ist allar aðstæður vera þér and­snúnar og allir vera klár­ari og betri en þú.“

Hver finnst þér vera til­gangur list­ar­innar? „Að segja sögur, segja alls­konar, mis­mun­andi sögur. Að vekja fólk mögu­lega til umhugs­unar, hrífa fólk með sér. Segja sögur þar sem allar til­finn­ingar eru leyfi­legar. Að snerta fólk, það er kjarn­inn.“

Er eitt­hvað sem þú vilt nefna að lokum? „Já mér finnst svo mik­il­vægt í öllu atinu og áreit­inu sem dynur á okkur dag­lega að missa ekki trúna á draumana sem við eigum. Mér finnst lífið hafa kennt mér að ef unnið er að því að láta draumana ræt­ast, þá getur allt gerst. Að trúa á draum­inn sinn, jafn­vel þó að þér finn­ist allar aðstæður vera þér and­snúnar og allir vera klár­ari og betri en þú. Að halda draumnum sínum alltaf lif­andi,“ segir Álf­heiður af sinni ein­stöku  ein­lægni. Við látum þessa fal­legu hvatn­ingu verða loka­orðin í spjalli okkar. Söng­konan unga og efni­lega og ég röltum úti í heitt og rakt sum­ar­kvöldið. Allar eld­glær­ingar eru á bak og burt. Loftið hefur hreins­ast, stór­vöxnu trén við göt­una hafa fengið lang­þráða vökvun og laufið blaktir hátíð­lega í kvöld­gol­unni.

Texti: Svala Arn­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu