„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Völvan ótrúlega sannspá

Nú þegar nýtt völvu­blað er á leið í versl­anir er ekki úr vegi að rifja upp hvað rætt­ist hjá völvu Vikunnar í fyrra. Hún sá ansi margt sem er lýsandi fyrir þetta erf­iða ár sem nú er að líða.

Völvan sá fyrir stór­slys eða ein­hverja aðra óáran sem myndi þenja heil­brigð­is­kerfi okkar að ystu þol­mörkum. „Og það eiga eftir að ger­ast erf­iðir hlutir á spít­öl­unum,“ sagði hún og síðar. „Mér finnst eins og þrír læknar eigi eftir að koma fram í fjöl­miðlum og koma þess­ari umræðu af stað.“

Kór­ónu­veiran og nú síð­ast hópsmitið á Landa­koti hefur óneit­an­lega skapað slíkt álag og ekki síður opnað augu fólks fyrir því hversu þörfin er mikil fyrir stærra og betra hús­næði fyrir sjúk­linga. Þótt Víðir Reyn­is­son sé ekki læknir er óneit­an­lega freist­andi að ætla að hér hafi völvan séð þrí­eykið, Ölmu Möller, Þórólf Guðnason og Víði Reyn­is­son. Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­alns og Már Krist­jáns­son yfir­læknir smit­sjúk­dóma­lækn­inga á Land­spít­l­anum hafa ekki síður verið dug­legir að koma fram í fjöl­miðlum meðan á þessu kór­ónu­veiru­fári hefur staðið og báðir bent á að aðstæður til að verja sjúk­linga séu ekki nægi­lega góðar og hafi átt stóran þátt í að smitið varð svo útbreitt á Landa­koti.

Skjálftar

„Ég sé tölu­vert af jarð­skjálfta­hringum og jarð­skjálfta á suð­vest­ur­horn­inu sem mun valda tjóni,“ sagði völvan. Allt þetta ár hefur jörð skolfið á Reykja­nesi og stundum hrist höf­uð­borg­ar­búa hressi­lega líka. Hrinan á Tjör­nes­brota­belt­inu fyrir norðan hefur einnig verið snörp og þótt ekki hafi orðið stór­tjón í þessum skjálftum hafa munir hrunið úr hillum og ýmis­legt smá­vægi­legt látið undan.

Völvu­blað Vikunnar 2020 kemur í versl­anir þriðju­dag­inn 22. des­em­ber

Ferðalög

„Þegar ég horfi inn í næsta sumar finnst mér vera mikil umferð, mikil hreyf­ing og fólk á far­alds­fæti svo ferða­lög inn­an­lands gætu auk­ist,“ sagði völvan og óhætt að segja að þar hafi hún reynst sann­spá. Hún sá að fólk myndi ferð­ast minna en áður til útlanda og meira inn­an­lands en hún sagði lands­menn þó alls ekki hætta utan­lands­ferðum og ferða­skrif­stofur myndu rétta úr kútnum.

Trump á brott

Hún sá að Trump væri á förum úr Hvíta hús­inu og að bar­áttan yrði rosa­lega milli hans og Biden. Hún var einnig viss um að Banda­ríkja­menn væru ekki enn búnir að bíta úr nál­inni með þau vand­kvæði sem Donald Trump og stjórn hans hafa skapað. Hún sagði að langan tíma tæki að laga klofn­ing­inn og koma Banda­ríkj­unum aftur í þann sess leið­andi þjóðar sem þau hafa haft á alþjóða­vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu