Henrik Vibskov er einn fremsti hönnuður Dana, hvað þekktastur fyrir djarfar og frumlegar flíkur.
Hönnun hans er seld víða um heim meðal annars í París, Japan, Hong Kong og London og einnig hér á landi.

Henrik Vibskov.
Vibskov frumsýndi mottur á vetrarsýningu sinni nú í ár á tískuvikunni í París. Motturnar eru til sölu í Stefánsbúð og eru þrjár mismunandi týpur í boði, stærð 100 x 150 cm.

Motturnar voru frumsýndar á tískuvikunni í París.

Mottur sem gefa hverju rými sérstöðu.
Stefánsbúð er staðsett á Laugavegi 7, einnig er hægt að skoða úrvalið á heimasíðu verslunarinnar.





















Athugasemdir